Skákblaðið - 01.02.1936, Page 19
Skákblaöiö
13
Flohr, Botvinnik, Eliskases, Fine og heimsmeistarann dr. Euwe. —
Stórþýzka sknksambandið ráðgerir þinghald í Wiesbaden 7. — 14. júní
næstk. — í Zandwoort í Hollandi verður háð þing 19. —31. júlí n k.
Helztu þátttakend ,r eru: dr. S. 0. Bernstein, Botwinnik. Spielmann,
dr. Tartakower, Koltanowski, van den Bosch, Landau og dr. Euwe.
í Bad Nauheim verður háð þing 16.—25. júlí og í Ostende í maí. —
Auk þess skákþingið í Miinchen í ágúst, sem fyr er getið, í sam-
bandi við Olympisku leikana.
Hinn 9. janúar var Dr Euwe gestur alþýðuháskólans og skák-
félagsins í Rotterdam. — Við þetta tækifæri gerði hann ráð fyrir,
að endurkeppni sín við Dr, Aljechin færi fram t síðasta árs
fjórðungi 1937, í Semmering. — Samningar um eiristök atriði
einvígisins voru gerðir í Wien í febrúar. — Ef Dr. Euwe heldur
heimsmeistaratign sinni, ætlar hann að láta Alþjóða Skáksambandið
ákveða hver verði næsti keppinautur hans, þar sem margir eru um
boðið. Capablanca hefir stungið upp á því viö Dr. Euwe að binda
heimsmeistaratignina við 16 skákir. Euwe heldur þvi aftur á móti
fram, að skákstyrkur sé ekki fyllilega reyndur með svo fáum skák-
um — Capablanca vildi einnig láta breyta skáktímanum þannig, að
fyrst yrði teflt í 4 stundir, síðan vildi hanrt gefa 1 l/s tíma hvíld ög
að því lóknu tefla í 3 tímá Með þessu móti hélt hann því fram,
áð skákmennirnir fengju ekki tíma til að gjörhugsa skákir sínar í
hvíldartímanúm, eins og þótt hefir brenna við. Dr. Euwe Vildi ekki
gera mikið úr þessu. — Aftur á móti taldi hann gott að hafa ein
hvern til að telja í sig kjarkinn en það gérði Flohr ósþat't í heims-
meistarakeppninni síðustu.
F. J. Marshall, sem 27 síðustu ár hefir verið skákmeistari Banda-
ríkjanna hefir nú afsalað sér tigninnr, án þess að nokkur keppni um
hana fari fram. — Einvígið milli þeirra Kashdan og Marshaíl, sem
ráðgert var, fellur þvf niður og verður teflt um meistaratignina á
skákþingi innan skamms. -
Dr. Em. Lasker, sem nú dvelur í Rússlandí, hefir verið gerður
að heiðursdoktor við háskólann í Moskva.
.. . .■Ti’jt ■;! -- *'-• ■ * • ' ' - í -. ■
Á skákþingi í Zlirich í janúar s.l. sigraði H. Grob, fékk 7 v. af
8, 2.—3. Seitz og Schiirmann 6 v., 4. Staehelin 5 v.