Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 15.01.1999, Page 3
élcia smadurinn
Kann vel
við mig hjá
Fiskistofu
Fiskistofa er líflegur vinnu-
staður. Við önnumst hér hina
daglegu stjómun og eftirlit
með fiskveiðistefnu okkar Is-
lendinga. Mitt hlutverk hér er
að vinna að landeftirliti, segir
Sigurjón Aðalsteinsson deild-
arstjóri, en hann hefur starfað í
rúm tvö ár hjá Fiskistofu.
- Það eru 14 sem starfa við
landeftirlit og eru það upp til
hópa allt þaulreyndir menn
sem gjörþekkja allar aðstæður
og því hægt að komast af með
svo fáa í þessu mikilvæga
starfi. Við erum í sambandi
við hafnarvogir og þá aðila
sem hafa leyfi til endurvigtun-
ar á afla. Við söfnum saman
upplýsingum frá þessum
aðilum um landaðan afla og
fyljumst með að þær upplýs-
ingar séu réttar. Til þess að
þetta geti gengið þurfum við
að eiga gott samstarf við
hafnarstarfsmenn á hverjum
stað. Sem betur fer fyrir okkur
þá byggjast tekjur hafnanna á
þeim afla sem þar er landað.
Þannig að sveitarfélögin hafa
einnig hag af því að ekkert fari
fram hjá vigt, segir Sigurjón,
en bætir við að ekki sé mikið
um að menn reyni að komast
fram hjá vigt en alltaf sé þó
eitthvað um það.
- Við fáum stundum
ábendingar frá starfsmönnum
hafnanna þar sem þeir hafa
orðið varir við að menn eru að
landa fram hjá vigt. Það getur
oft verið erfitt fyrir starfsmenn
hafnanna að fara í slik mál og
því snúa þeir sér beint til
okkar, segir Sigurjón, sem auk
þess að stjórna landeftirlitinu
sinnir nefndarstörfum fyrir
Fiskistofu.
Sigurjón er Vestmanna-
eyingur og hefur lokið námi í
útgerðartækni frá Tækniskóla
íslands, en ólíkt flestum
öðrum Vestmannaeyingum
hefur Sigurjón lítið sem ekkert
verið til sjós, aðeins eitt sumar
á trolli og mánuð á loðnu. Eftir
sögulegan túr með loðnubát
lauk sjómannsferli Sigurjóns.
- Það má segja að þessi túr
með loðnubátnum hafi gert út
um minn sjómannsferil, því á
heimleiðinni lentum við í
snarbrjáluðu veðri og fengum
tvisvar brotsjó yfir skipið.
Þegar fyrra brotið reið yfir
stóð ég á stímvakt með skip-
stjóranum og má þakka fyrir
að hafa ekki staðið við glugga
þá stundina.
Seinna brotið varð sínu
verra því þá drapst bæði á
ljósavél og aðalvél skipsins
Það er ekkert sérstaklega gam-
an að vera um borð í
fulllestuðum loðnubát sem
rekur stjórnlaust í snar-
brjáluðu veðri. Sem betur fer
var ráðagóður vélstjóri um
borð, en honum tókst með
harðfylgi að koma vélunum í
gang aftur. Allt endaði þetta
þó vel og við komumst heim
til Vestmannaeyja að lokum í
fylgd varðskips, segir Sigur-
jón sem minnist þessarar sjó-
ferðar með hrolli.
Það fór hins vegar enginn
hrollur um Sigurjón þegar
hann var inntur eftir því hver
Sigurjón Aðalsteinsson er deildarstjóri landeftirlits hjá
Fiskistofunni.
væru hans helstu áhugamál.
- Eg eyði mest frítíma
mínum með fjölskyldunni og
ég er áhugamaður um líkams-
rækt. A sumrin ferðast ég mik-
ið og reyni að komast til út-
landa á hverju ári, segir Sigur-
jón, en bætir síðan við að
honum líði þó hvað best þegar
hann ásamt sínum félögum fer
út í Suðurey að veiða lunda.
- Eg verð að segja eins og
er að það eru þessar veiðar og
dvölin út í eyju sem gefa lífinu
gildi og ég vildi ekki undir
neinum kringumstæðum
missa af þessum veiðiferðum,
segir Sigurjón sem eins og
sannur Vestmannaeyingur
heldur með ÍB V í öllum grein-
um íþrótta. Hann segir að
mikill íþróttaáhugi sé meðal
starfsmanna Fiskistofu og oft
verði heitt í kolunum þegar
íþróttir eru ræddar. Sigurjón
segist vera mjög ánægður í
sínu starfi, hafi reyndar aldrei
unnið við eins gefandi og
skemmtilega hluti eins og þá
sem hann vinnur nú við hjá
Fiskistofu.
Starfsmannafélags ríkisstofnana
Ábyrgðarmaður: Jens Andrésson
Ritnefnd: Anna Atladóttir,
Birna Karlsdóttir, Eyjólfur Magnússon, Sigríður
Kristinsdóttir og Örn Egilsson
Umsjón: Árni St. Jónsson og Jóhanna Þórdórsdóttir
Umbrot: Blaðasmiðjan Prentun: Fljá GuðjónÓ
Skrifstofa SFR er á Grettisgötu 89, 105 Reykjavík
Opið: 8-16 Sími: 562 9644 Bréfasími 562 9641
Símatímar: 9-16
Jens Andrésson formaður og Árni Stefán Jónsson
framkvæmdastjóri eru með símatíma kl. 9-10
Netfang: framkvæmdastjóri: arni@sfr.bsrb.is
formaður: jens@sfr.bsrb.is
Félagstíðindi
3