Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 10.03.2002, Blaðsíða 15

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 10.03.2002, Blaðsíða 15
SkfrsU stjórnar SFR 2 0 0 1 Félagstíðindin mælast vel fyrir Þróttmikil útgáfa Félagstíð- inda tíu sinnum á ári. Móttök- urnar góðar, segir Jóhanna Þórdórsdóttir fræðslustjóri. Blaðið mælist mjög vel fyrir og fé- lagarnir virðast sáttir, segir Jóhanna Þórdórsdóttir, annar umsjónar- manna blaðsins og fræðslustjóri SFR, en Félagstíðindin hafa komið út af miklum þrótti síðastliðið ár í glæsilegum búningi. -Útgáfan er reglubundin mánað- arlega nema yfir hásumarið, þannig að alls hafa tíu tölublöð verið gefin út frá síðasta aðalfundi. Upplagið er í kringum 6200 eintök, en það er sent bæði heim til félagsmanna og á vinnustaði þeirra. Eldri félagsmenn og fjöldi annarra fá auk þess blaðið sent og því má segja að það fari nokkuð víða. -Auðvitað er mun meiri vinna í kringum nýja útgáfuformið en það er ánægjulegt hversu vel það mælist fyrir. Breytingarnar urðu um áramót- in 2000/2001 þannig að reynsla er komin á þetta form. Miklu skiptir líka að fyrir vikið eru Félagstíðindin orðin vænlegri auglýsingamiðill en áður var. Hverjir skrifa í blaðið? -Auk mín skrifa blaðið ritnefndar- menn, starfsmenn á skrifstofu fé- lagsins og Sævar Guðbjörnsson hjá Blaðasmiðjunni. Síðan skrifa ein- Jóhanna Þordórsdóttir fræðslustjóri. staka félagsmenn, ína varaformaður og fleira gott fólk. Viðbrögð við breytingum á blaðinu hafa verið góð en við vildum gjarnan fá tillög- ur eða efni í blaðið frá félagsmönn- um. - Ritnefndin heldur fundi tvisvar í mánuði. í ritnefnd eru Birna Karls- dóttir, Jan Agnar Ingimundarson, Eyjólfur Magnússon, Sigríður Krist- insdóttir og Valdimar Leó Friðriks- son. Ný heimasíða á döfinni Heimasíðan er unnin sérstaklega og ekki beinlínis (tengslum við Félags- tíðindin. Tækninni fleygir ört fram þannig að bæði efni og framsetning þarf stöðugt að vera í endurskoðun. Von er á endurbættri heimasíðu nú á vormánuðum þar sem allt aðgengi verður mun auðveldara en nú er, segir Jóhanna fræðslustjóri kankvís- lega að lokum. Erlend samskipti SFR verður í forsæti norrænu samtak- anna NSO á næsta ári. f ársbyrjun tók stjórn SFR þátt í sérstakra ráðstefnu í Kaupmannahöfn um kosti og galla Evrópusambandsins frá sjónarhóli stéttarsamtaka. Frá þessu var sagt ( síðustu ársskýrslu. Þátttakendur voru auk okkar systur- samtök SFR í Noregi en fyrirlesarar voru frá öllum Norðurlöndunum. Að öðru leyti voru erlend sam- skipti í hefðbundnum farvegi. SFR leggur mikið upp úr samstarfinu inn- an NSO, sem eru norrræn samtök rík- isstarfsmanna. Ráðstefna á vegum NSO var haldin í Helsingeyri síðastlið- ið sumar. Forysta í þessum samtökum skiptist á milli aðildarfélagana og á næsta starfsári er röðin komin að SFR. Þá verður Jens Andrésson forseti samtakanna og Árni Stefán Jónsson framkvæmdastjóri þeirra. Sjúkra- og styrktar- sjóður - 1356 fengu styrki til forvarnar Á árinu 2001 voru samþykktar 158 umsóknir vegna sjúkradagpeninga að upphæð rúmar 15 milljónir króna. 1356 umsóknir voru samþykktar vegna forvarnarstarfs, krabbameins- leitar og fleira og voru heildar- greiðslur vegna þessa um 5,7 milljón- ir króna. Starfsmenntunar- sjóður SFR Starfsmenntunarsjóður SFR samþykkti 1025 umsóknir á síðastliðnu ári að upphæð samtals 27,5 milljónir króna. Félagið þitt Félagið þitt, sem er almennur bæk- lingur um starfsemi félagsins, var endurútgefinn í nóvember á síðast- liðnu ári. Bæklingurinn er sendur nýj- um félagsmönnum og einnig er hon- um dreift á námskeiðum. Félagstfðindi - mars 2002 15

x

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana
https://timarit.is/publication/1544

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.