Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 15.01.2004, Blaðsíða 19
Verðlaunakrossgáta
Verðlaunakrossgáta. Krossgátan er fastur liður í Félagstíðindum og verður dregið úr réttum lausnum sem berast fyrir síðasta móttökudag, sem að þessu sinni er
15.febrúar nk. Verðlaunin eru val á milli 5.000 kr.peningaverðlauna eða helgardvalar í orlofshúsunum íVaðnesi/Húsafelli/ Kjarnaskógi/Arnarstapa eða íbúðum
á Akureyri og í Reykjavík einhvern tímann á tímabilinu 1. október til 1. maí að undanskildum jólum, áramótum og páskum. Bókstafirnir í tölusettu reitunum
mynda upphaf vísu eftir Sveinbjörn Egilsson. Nægilegt er að senda svarið sem lausn á krossgátunni, ásamt nafni, kennitölu, heímilisfangi og símanúmeri
sendanda til SFR, Grettisgötu 89,105 Reykjavík.Vinsamlegast merkið umslagið „Krossgáta".
19