Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 15.01.2004, Blaðsíða 2
Stöðvum aðför að LSH
Á sameiginlegum fundi trúnaðarmanna allra stéttarfélaga á Land-
spítalanum 15. janúar síðastliðinn kornu fram hörð mótmæli við
niðurskurði á þjónustu og uppsagnir innan heilbrigðisþjónustunnar
og varað var við afleiðinguum þess, bæði til skemmri og lengri
tíma litið.
Fjöldauppsagnir starfsmanna á stærsta sjúkrahúsi landsins munu
óhjákvæmilega bitna illa á sjúklingum auk þess sem þær munu hafa
þær afleiðingar að þjónusta sem veitt hefur verið á vegum sjúkra-
hússins verður flutt út fyrir veggi þess. Einkavæðing heilbrigðis-
þjónustunnar mun ekki leiða til sparnaðar nema síður sé og auka
hættu á félagslegri mismunun.
Landspítali - háskólasjúkrahús er stærsta og tæknivæddasta sjúkra-
hús landsins. Með stórfelldum niðurskurðarkröfum á hendur
sjúkrahúsinu gerir ríkisstjórnin aðför að hátækni í heilbrigðisþjón-
ustu landsmanna.Uppbygging þróaðs hátæknisjúkrahúss byggir á
rnargra ára starfi færustu sérfræðinga og annarra starfsmanna. Upp-
byggingarstarfið er erfitt en eyðileggingin auðveld.
Engu er líkara en aðförin að Landspítalanum hafi verið undirbúin.
I því samhengi er ástæða til að mótmæla metnaðarleysi heilbrigðis-
ráðuneytisins að gera ekki athugasemd við ákvörðun Ríkisendur-
skoðunar um að bera saman kostnað, mönnun og árangur af starfi
Landspítalans við sjúkrahús á Bretlandi. Sjúkrahús þar í landi munu
seint bíða þess bætur að hafa þurft að sæta niðurskurði og annarri
aðför ríkisstjórnar Bretlands að heilbrigðisþjónustunni þar í landi sl.
fimmtán ár. Árangri af markvissri uppbyggingu Landspitalans er
stefnt í hættu með vanhugsuðum skammtímaaðgerðum af því tagi
sem við nú stöndum frammi fyrir. Islendingar eiga að gera saman-
burð við þau ríki sem státa af heilbrigðisþjónustu sem sómi er að.
Vanhugsaður niðurskurður veikir stoðir öflugasta vísinda- og
tæknisjúkrahúss landsins og grefur undan möguleikum til að
hlynna að sjúku fólki.
Nú er mál að linni. Snúum bökum saman til að tryggja að sjúkra-
húsið geti sinnt þeirri þjónustu sem það hefur gert hingað til. Nú-
verandi ákvörðun um samdrátt í þjónustunni mun valda þjóðinni
óbætanlegum skaða.
JA
Aðalfundur
SFR 2004 verður haldinn ab
Grettisgötu 89, 105 Reykjavík,
laugardaginn 20. mars kl. 13.00.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Reikningar félagsins.
3. Lagabreytingar.
4. Stjórnarkjör kynnt.
5. Kosinn löggiltur endurskoðandi,
tveir skoðunarmenn og tveir til vara.
6. Kosnir fimm menn í kjörstjórn og
jafnmargir til vara.
7. Akvörðun um iðgjald og skiptingu milli
sjóða.
8. Tekin fyrir málefni starfsmenntunar-
sjóðs SFR, skv. reglugerð sjóðsins.
9. Tekin íyrir málefni verkfallsjóðs SFR, skv.
reglugerð sjóðsins.
10. Tekin fyrir málefni styrktar- og
sjúkrasjóðs SFR, skv. reglugerð sjóðsins.
11. Fjárhagsáætlun.
12. Alyktanir aðalfundar afgreiddar.
13. Onnur mál.
Á aðalfundinum verða teknar fyrir ýmsar laga-
breytingar sem verða kynntar á vefsíðu félagsins
www.sfr.is
Felagstíðindi
Ábyrgðarmaður: Jens Andrésson
Ritnefnd: Birna Karlsdóttir, Jan Agnar Ingimundarson, Eyjólfur
Magnússon, Sigríður Kristinsdóttir og Valdimar Leó Friðriksson.
Umsjón: Árni St. Jónsson og Sara Hlín Hólfdanardóttir.
Umbrot: Blaðasmiðjan Prentun: GuðjónÓ - vistvæn prentsmiðja
Skrifstofa SFR er 3. hæð ó Grettisgötu 89, 105 Reykjavík.
Sími 525-8340. Bréfasími 525-8349.
Opið mónud. - fimmtud. 8 -16.30, föstud. 8-16. Símatími 9-16.
Netfang sfr@bsrb.is
Veffang www.sfr.is
Starfsmenn skrifstofu SFR
Árni Stefán Jónsson framkvæmdastjóri
Guðlaug Hreinsdóttir, sérhæfður fulltrúi
Guðlaug Sigurðardóttir sjóðstjóri
Lilja Laxdal verkefnisstjóri
Sara Hlín Hálfdanardóttir fræðslustjóri
Sverrir Jónsson verkefnisstjóri
Stjórn SFR
Jens Andrésson formaður
Ina H.Jónasdóttir varaformaður
Ari B.Thorarensen ritari
Guðrún Ivars gjaldkeri
Guðjón Steinsson
Gréta Sigurðardóttir
Kristrún B.Jónsdóttir
Olafur Hallgrímsson
Svala Norðdahl
Tryggvi Þorsteinsson
Valdimar Leó Friðriksson
arni@sfr.bsrb.is
gulla@sfr.bsrb.is
gudlaug@sfr.bsrb.is
lilja@sfr.bsrb.is
sara@sfr.bsrb.is
sverrir@sfr.bsrb.is
jens@sfr.bsrb.is
ina@tr.is
arith@simnet.is
givars@hi.is
gs@fmr.is
greta@landspitali. is
kristrun.b.jonsdottir@skattur.is
oli@lhi.is
svala@listdans.is
iddi@vortex.is
umfa@simnet.is
2