Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 15.01.2004, Blaðsíða 3
| Heimsókn á vinnustað
Landspítali - háskólasjúkrahús
Sá vinnustaður sem hvað rnest er í umræðunni þessa dagana er
Landspítali - háskólasjúkrahús og vart þarf að taka fram hvers vegna.
Miklar breytingar eru frarn undan á rekstri spítalans eftir að stjórnvöld
ákváðu að verða ekki við ósk stjórnenda hans um aukið
rekstrarfjárframlag. Það hefur í for með sér að skera verður niður þá
þjónustu sem veitt hefur verið á staðnum og segja upp starfsfólki.
Félagstíðindum lék forvitni á að vita hvernig starfsfólkinu liði og tóku
því þgá þeirra tali.
Þórir Kristmundsson, rábgjafi á geðdeild
Ég hef starfað á Landspítalanum í
14 ár og lengst af sem starfsþjálfi
á lokaðri deild þar sem málið
snýst um að hafa ofan af fýrir
sjúklingunum þar til þeir öðlast
bata. Síðastliðið ár hef ég hins
vegar unnið sem áfengisráðgjafi
hér á 32E en það er göngudeild
fyrir fólk sem hefur átt við
áfengis- og vímuefnavanda. Hér
beitum við svokölluðu 12 spora
kerfi og öðrum tiltækum aðferð-
um til að hjálpa einstaklingum til
að ná tökum á vandanum. Þeim
fer því miður ört fjölgandi sem
þurfa að takast á við fíkn sína og
sérstaklega hefur ungu fólki,
sem hefur misst stjórn á neysl-
unni, fjölgað. Ég vona að sá nið-
urskurður sem nú vofir yfir eigi
ekki eftir að koma niður á þeim
einstaklingum sem hér sækja sér
hjálp. Það yrði mikill skaði ef
það starf sem við erum að vinna
lendir undir niðurskurðarhnífn-
um, segir Þórir og bætir við að
hann verði ekki var við annað en
starfsfólkið, sem vissulega sé hálf-
lamað vegna ástandsins, reyni
eftir bestu getu að hlífa sjúkling-
unum við því ástandi sem nú
ríkir á spítalanum.
Sigrún Hjartardóttir, læknaritari ó hjartadeild
Hlutverk okkar læknaritaranna
er að flokka, skrá og ganga frá
öllum læknabréfum sem verða til
hér á deildinni. Þessi vinna krefst
mikillar nákvæmni því menn
verða að geta gengið að öllurn
upplýsingum vísum um hvern
þann sjúkling sem hingað leitar.
Hér eru allir með lífið í lúk-
unum vegna yfirvofandi upp-
sagna, Ég er nýskriðin úr skóla
þar sem ég sótti mér réttindi senr
læknaritari, en hafði að vísu
starfað við þetta í eitt ár áður.
Mér finnst brýnt að almenningur
geri sér grein fýrir hvað það
kostar að halda úti almennilegri
heilbrigðisþjónustu. Það er sorg-
legt að heyra fólk, sem hefur
ekki þurft á slíkri þjónustu að
halda, tala stöðugt um að hér sé
mikið sukk í gangi. Það er oft
ekki fyrr en menn finna það á
eigin skinni að það rennur upp
fyrir þeim að hér er ekkert sukk
á ferðinni, heldur eru þvert á
móti allir að reyna standa sig við
erfiðar aðstæður, segir Sigrún
sem vonar að þjóðin og og þá
ekki hvað síst stjórnvöld átti sig á
því að vel hefur verið með pen-
inga farið á spítalanum og hún
telur að sá niðurskurður sem nú
hefur verið boðaður muni
skerða þjónustuna verulega.
Jóhanna S. Gunnarsdóttir, aðstoóarmaóur ó svæfingardeild
Ég sinni störfum aðstoðarmanns á svæf-
ingardeild. Hlutverk okkar er að sjá um
þau tæki og tól sem notuð eru þegar
sjúklingar eru svæfðir fýrir skurðað-
gerð. Það má eiginlega segja að við
séum hægri hönd svæfmgarhjúkrunar-
fræðinganna.Við erum sex sem störfum
við þetta hérna á Hringbrautinni og
það er samhentur hópur sem gaman er
að vinna með.Við vinnum óreglulegar
vaktir og þurfum að standa bakvaktir
um lielgar. Vinnustaðir okkar eru allar
skurðstofurnar við Hringbraut og
þannig flökkum við á milli eftir
ákveðnu kerfi. Stundur er vinnudagur-
inn langur því alltaf að lokinni aðgerð
er gengið frá og gildir þá einu hversu
lengi aðgerðin hefur staðið yfir, segir
Jóhanna sem ekki er hress með það
ástand sem nú ríkir á spítalanum.
Það er sama hvar maður kemur innan
spítalans, alls staðar hittir maður fýrir
niðurdregið starfsfólk. Það eru allir
undrandi og hissa á þessari ákvörðun og
jafnframt leiðir yfir því ástandi sem hér
hefur skapast.
3