Öreigaæska - 01.05.1934, Page 3
ÖREIGAÆSKA.
3
seðla I umferð, falsa bókhald
bankanna og hilma stórkostleg
fjársvik stórfyrirtækja,lætur banka-
valdið greipar sópa um eignir
smáútvegsmanna og smábænda
til lúkningar skuldum þeirra við
bankanna.
Harðast koma þessar árásir
auðvaldsins niður á verkalýðsæsk-
unni. Hún er að meiru og minna
leyti útilokuð frá allri atvinnubóta-
vinnu, og beitt hinni svívirðileg-
ustu launa og vinnukúgun. ís-
firsku kratabroddarnir hjálpuðu
atvinnurekendum til að afnema
unglingataxtann s. 1. vor undir því
yfirskyni að það væri ósk for-
eldranna. í Reykjavik gera þeir
allt til að eyðileggja sigursæla bar-
áttu sendisveina. Sjómannaæskan
er miskunarlaust arðrænd gegnum
hlutaskiftin. o. s. frv. o. s. frv.
Þrátt fyrir þessar vaxandi kúg-
unarárásir auðvaldsins, svika- og
ósigurs-pólitik og beinar árásir
Alþýðusambandsforingjanna hefir-
verkalýðnum tekist að heyja sig-
ursæla baráttu fyrir bættum kjör-
um. Novadeilan á Akureyri, Rík-
is.verksmiðju deilan á Siglufírði s.
1. sumar, 7. júlí, 9. nóvember I
Reykjavík og Sjómannadeilan I
Vestm.eyjum í vetur eru glæsileg
vitni um baráttuþrótt og samtaka-
mátt verkalýðsins. •
Nú í sumar undirbýr verka-
lýðurinn á Norðurlandi, undir
forustu K. F. í. og V. S. N., sig
undir baráttu fyrir launahækkun-
um og lágmarkstryggingu á síld-
veiðum. Verkalýðurinn á Blöndu-
ósi stendur nú þegar í verkfalli.
í öllum þeim vinnudeilum sem
hafa verið og verða háðar reyn-
ast Alþýðusambandsbroddarnir
hlutverki sínu trúir í þvl að skipu-
Ieggja ósigur verkalýðsins, annað-
hvort með svikastarfsemi bak við
verkalýðinn, eða beinum stuðn-
ingi við vopnaðar árásir auðvalds-
ins á hann. Það er þess vegna
höfuð skilyrði fyrir sigursæla bar-
áttu verkalýðsins að hann útrými
öllum tálvonum um Alþýðusam-
bandið sem baráttusamband
verkalýðsins, skilji hlutverk sosi-
aldemokratisins sem erindreka
auðvaldsins innan verklýðshreyf-
ingarinnar og losi sig undan á-
hrifum þess, en berjist samfylktri
baráttu án tillits til mismunandi
stjórnmála- og trúarskoðana fyrir
brýnustu hagsmunakröfum sínum
undir forustu K. F. í. og S. U. K.
Sosialdemokratíið og S. U. J. sem
þjóðfélagsleg höfuðstoð auðvalds-
ins og brautryðjandi fasismans.
Eftir því sem kreppan harðnar
og innri mótsetningar auðvaldsins
skerpast kemur þjóðfélagslegthlut-
verk sosialdemokratisins og S. U.
J. stöðugt betur í ljós. Með svik-
um sínum I verkalýðsbaráttunni,
beinum stuðningi og þátttöku í
blóðugum árásum yfirstéttarinnar
á verkalýðinn, opinni sundrunar
og klofningsstarfsemi innan verk-
lýðshreyfingarinnar, kenningunni
um stéttasamvinnu og stéttafrið og
stöðugt örari þróun á brautum
sosialfasismans, veitir sosialdemo-
kratíið auðvaldinu þann þjóðfé-
lagslega stuðning sem því er
nauðsynlegur til að viðhalda valdi
þess og kúgun. —
„Meðal verklýðsæskunnar leikur
S. U. J. hlutverk sitt sem þjóðfé-
lagsleg aðalstoð íslensku borgara-
stéttarihnar, og gengur sömu
fasistisku þróunarbrautina, sem
sosialdemokratíið í heild.. Meðal
verklýðsæskunnar er það aðal
brautryðjandi fasismans. Undir
slagorðinu „menningarstarf“,draga
ungkratarnir verklýðsæskuna, sem
þeim fylgir, frá stéttabaráttunni.
Þeir gera alt sem þeir geta til að
breiða yfir stéttamótsettningarnar,
þeir hætta að minnast á stétt og
tala í þess stað stöðugt um „þjóð-
ina“ og skapa þannig jarðveginn
fyrir hinn fasistíska hugsunarhátt.
Með gengdarlausum lygum og
æsingum gegn kommúnistum og
öðrum byltingarsinnuðum verkalýð
undirbúa þeir hina opinbera ógn-
arstjórn fasismans". (Úr pólitiskri
ályktun 5. þings S. U. K.)
S. U. J. neitaði samfylkingar
tilboði S. U. K. um baráttu gegn
auðvaldi og fasismans. í hags-
munabaráttu verkalýðsæskunnar
hefir það dyggilega fetað svika-
braut kratabroddanna. Héi á ísa-
firði studdu F. U. J. foringjarnir
að afnámi unglingataxtans, og
hafa stöðugt síðan gerst opinberir
verjendur þess. Með kenningum
sínum um nauðsyn á að kynn-
ast öllum stefnum þjóðfélagsins
og með gasprinu um að F. U. J.
sé pólitiskur skóli, þar sem hægt
sé að kynnast öllum stjórnmála-
stefnum, gerast F. U. J. foringjarn-
ir stuðningsmenn stéttasamvinn-
unnar og stéttafriðarins meðal
ísfirskrar verklýðsæsku. í stað þess
að ræða brýnustu hagsmunamál
verklýðsæskunnar láta þeir Fram-
sóknarmanninn Ólaf Guðmunds-
son og íhaldsmanninn Glsla Valdi-
marsson (Hannibal) halda ræður
um Framsóknar- og ihaldsstefn-
una. Ungkratarnir gerðu tilraun
til að hleypa upp æskulýðsfundi
sem F. U. K. hélt hét I vetur.
Þeir tóku ásamt ungfasistaskriln-
um þátt I árásum á fundi komm-
únista og gerðust þannig beinir
þátttakendur fasistiskra árása auð-
valdsins á verklýðinn.
Samfylking verkalýðsæskunnar
undir forustu K. F. í. og S. U. K.
Auðvaldið sér enga færa leið
út úr kreppunni. Með nýjum land-
vinningastrlðum, árásum á Sovejt-
ríkin, blóðugum ofsóknum á verka-
lýðinn og fasistiskri ógnarstjórn
hygst það að viðhalda valdi sinu
enn um stund. Með beinum stuðn-
ingi sosialdemokratisins undirbýr
það og framkvæmir þetta ætlun-
arverk sitt um allan heim, einnig
hér á íslandi. — Einungis Komm-
únistaflokkurinn og S. U. K. er
fær til að Ieiða vörn verklýðsins
gegn vaxandi árásum ahðvaldsins
og breyta henni I sókn á hendur
því. Sigrar samfylkingarbaráttu
verkalýðsins fyrir dægurhagsmun-
um eins og 9. nóvember og verk-
fallssigrar síðustu ára sýna, að
verkalýðsstéttin er þess megnug
undir forustu K. F. í. og S. U. K.
að stöðva fasistiska framrás ís-
lensku borgarastéttarinnar. Þess
vegna skorar Samband ungra
kommúnista á allan vinnandi
æskulýð til sjávar og sveita í alls-
herjarsamfylkingu með eldri stétt-
arsystkynum sinum 1. maí á þess-
um grundvelli:
1. Gegn fasismanum, ríkislögreglu
og hverskonar ofbeldisráðstöf-
unum auðvaldsins móti verka-
lýðnum og samtökum hans,
gegn atvinnuofsóknuin á hend-
ur veikalýðsæskunni.
2. Gegn atvinnuleysi, þegnskyldu-
og þvingunarvinnu, fyrir at-