Rit Mógilsár - 2013, Qupperneq 4

Rit Mógilsár - 2013, Qupperneq 4
 4 Rit Mógilsár 28/2012 Samantekt Verið er að kanna möguleika á því að Landsvirkjun fjármagni nýskógrækt á völdum svæðum á löndum Skógræktar ríkisins og geti á móti talið sér til tekna kolefnisbindingu sem á sér stað í 50 ár eftir gróðursetningu. Fjögur svæði hafa verið valin til nánari skoðunar og fyrir þau hafa verið unnar ræktunaráætlanir. Hér er kynnt spá um kolefnisbindingu nýskógræktar og arðsemi hennar á þessum svæðum. Kolefnisforðaferlar, sem voru gerðir út frá fyrirliggjandi gögnum sem safnað var um síðustu aldamót vegna vinnu við úttekt á skógræktarskilyrðum, voru nýttir til að gróskuflokka þær trjátegundir sem á að gróðursetja á þessum svæðum. Grósku- flokkar fyrir hvert svæði voru síðan ákvarðaðir eftir grósku skógarreita sem mældir voru í úttekt á skógræktar- skilyrðum á eða í næsta nágrenni við áformuð skógræktarsvæði. Munur var á metinni grósku milli svæðanna, fyrir stafafuru var t.d. árleg meðal binding CO2 á 50 árum fyrir þann stað með lökustu gróskuna 4,2 tonn á ha. en þar sem gróskan var mest 6,5 tonn. Munur á milli trjátegunda var mun meiri, t.d. var meðalsársbinding birkis 2,5 tonn CO2 en hjá alaskaösp 8,0 tonn í lakaska gróskuflokki. Þannig getur trjátegund skipt mun meira máli en svæðaval þegar gerður er samanburður á þessum fjórum stöðum. Meðalársbinding CO2 var metin um 4.400 tonn á öllum fjórum svæðunum. Bindingin mun samt ekki ná hámarki fyrr en á árabilinu 2043-2052 og verður þá að meðaltali um 8.000 tonn CO2. Þeir kostnaðarliðir sem taldir eru með í stofnkostnaði og stærðarhagkvæmni hafa áhrif á meðaltals stofnkostnað á flatareiningu sem liggur á bilinu 239 til 374 þús. kr. á ha. Aftur á móti hefur stofnkostnaður á flatareiningu minni áhrif á arðsemi kolefnisbindingar en þreföldun á verði á hverju bundnu tonni af kolefni. Þannig var mestur munur á arðsemi milli svæða 3,8% en á milli verðflokka á bundnu kolefni 5,9%.

x

Rit Mógilsár

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.