Rit Mógilsár - 2013, Qupperneq 5

Rit Mógilsár - 2013, Qupperneq 5
Rit Mógilsár 28/2012 5 Inngangur Verið er að kanna möguleika á því að Landsvirkjun fjármagni nýskógrækt á völdum svæðum á löndum Skógræktar ríkisins og geti á móti talið sér til tekna kolefnisbindingu sem á sér stað í 50 ár eftir gróðursetningu. Þessi svæði eru: Á Vesturlandi: Laxaborg í Haukadal í Dalasýslu Á Norðurlandi: Belgsá í Fnjóskadal Á Austurlandi: Ormsstaðir í Breiðdal Á Suðurlandi: Skarfanes í Landsveit Á einu þessara svæða, Laxaborg, er þegar búið að ganga frá samningum milli Skógræktar ríkisins og Lands- virkjunar. Tilgangur þessarar vinnu sem hér er kynnt og gerð er fyrir og kostuð af Landsvirkjun er að; 1. Spá fyrir um kolefnisbindingu ný- skógræktar með tilliti til vaxtarskil- yrða eða gróskustigs a. viðkomandi svæða b. trjátegunda sem á að rækta á þessum svæðum 2. Meta arðsemi kolefnisbindingar ný- skógræktar miðað við kostnað við skógrækt og ræktunaráætlanir á hverjum stað og mismunandi verð á bundnu tonni af CO2. Samkvæmt ræktunaráætlunum fyrir svæðin og gögnum sem safnað var við gerð þeirra (Lárus Heiðarsson 2011, Rúnar Ísleifsson 2011 a,b,c) er áætlað að rækta á þessum svæðum skóga með fimm trjátegundum; alaskaösp, ilmbjörk (kallað hér birki), síberíulerki1, sitka- greni og stafafuru. Þessar fimm trjá- tegundir eru algengustu trjátegundirnar í skógrækt á Íslandi (Einar Gunnarsson 2011). Á Belgsá er gert ráð fyrir að nota náttúrulegan blending af sitkagreni og hvítgreni sem oftast gengur undir nafninu sitkabastarður. Vaxtareinkenni flestra kvæma sitkabastarðs sem notuð eru hér á landi eru mun líkari einkennum sitkagrenis en hvítgrenis og verður því fjallað um hann með sitka- greni sem ekki ósjaldan ber í sér væga blöndun við hvítgreni þó að það sé skráð sem sitkagreni (Aðalsteinn Sigurgeirsson 1992). Vaxtar- og lífmassarannsóknir á þessum trjátegundum eru mislangt komnar á Íslandi. Fyrir liggja jöfnur um lífmassa ofanjarðar hjá einstökum trjám (Arnór Snorrason o.fl. 2006, Brynhildur Bjarna- dottir o.fl. 2007, Jón Ágúst Jónsson 2007, Matthias Hunziker 2011) ásamt rannsóknum á hlutfalli neðanjarðarhluta trjánna (Arnór Snorrason o.fl. 2002c, Brynhildur Bjarnadottir o.fl. 2007, Matthias Hunziker 2011). Bolviðarvöxtur og bolviðarmagn síberíu- lerkiskóga hefur verið rannsakað nokkuð ítarlega á Hallormsstað og næsta nágrenni og hafa þær rannsóknir gefið 1Hér er notað nafnið síberíulerki sem samheiti fyrir síberíulerki og rússalerki sem eru skildar tegundir og oftast taldar vera undirtegundir einnar tegundar sem heitir síberíulerki.

x

Rit Mógilsár

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.