Rit Mógilsár - 2013, Page 6
6 Rit Mógilsár 28/2012
af sér gróskuflokka fyrir síberíulerki á
þessu svæði (Lárus Heiðarsson 1998,
Pesonen o.fl. 2009). Svipaðar rannsóknir
hafa verið gerðar á stafafuru á helstu
ræktunarsvæðum Skógræktar ríkisins
(Mervi Juntunen 2010). Þar tókst þó
aðeins að skilgreina einn gróskuflokk
fyrir tegundina enda ræktunarsvæði
Skógræktar ríkisins bundin við staði þar
sem skógræktarskilyrði og gróska eru
frekar jöfn og með betra móti. Aðrar
trjátegundir hafa verið lítið rannsakaðar
og gróskuferlar fyrir lífmassa trjánna og
þ.m.t. kolefnis hafa ekki verið útbúnir
fyrr en í úrvinnslu sem farið var í sam-
bandi við þá vinnu sem hér er kynnt
(Arnór Snorrason, í handriti).
Efni og aðferðir
Stærð ræktunarsvæðis, val trjátegunda
og gróðursetningartími
1. tafla sýnir stærð áætlaðrar nýskóg-
ræktar á svæðunum fjórum ásamt hlut
trjátegunda samkvæmt ræktunaráætl-
unum og árabil framkvæmda við ný-
gróðursetningu.
Gerðar voru smávægilegar breytingar á
upphaflegum áætlunum varðandi gróður-
setningartíma. Áætlunin var óbreytt fyrir
Laxaborg enda búið að ganga frá
samningi fyrir það svæði. Á Belgsá var
gróðursetningu hliðrað fram um eitt ár.
Fyrir Ormsstaði var gróðursetningartími
óbreyttur en í Skarfanesi var í drögum að
ræktunaráætlun ekki búið að tímasetja
gróðursetningar. Það var gert hér og
markið sett á að gróðursetja í a.m.k. 50
ha árlega frá og með 2014. Í 1. töflu er
birt nettóflatarmál nýskógræktar fyrir
Skarfanes en það er skilgreint sem það
svæði sem verður gróðursett í. Aftur á
móti er í áætlun birt brúttóflatarmál
nýskógræktar 504 ha. Þessi mismunur
Jörð Laxaborg Belgsá Ormsstaðir Skarfanes
Sveit Dalir Fnjóskadalur Breiðdalur Landssveit
Landshluti Vesturland Norðurland Austurland Suðurland
Brúttóflatarmál svæðis (ha) 46 705 178 751
Flatarmál nýskógræktar (ha) 10 49 139 444
Hlutfall trjátegunda í gróðursetningu
Alaskaösp 33% 0% 3% 11%
Stafafura 57% 75% 76% 45%
Sitkagreni 10% 9% 21% 4%
Síberíulerki 0% 16% 0% 0%
Birki 0% 0% 0% 40%
Gróðursetningarár 2012-2014 2013-2014 2015-2019 2014-2022
Fjöldi ára 3 2 5 9
1. tafla. Stærð og staðsetning nýskógræktarsvæða. Taflan sýnir einnig hlutfall trjátegunda á
hverju svæði og árabil gróðursetningar.