Rit Mógilsár - 2013, Side 11

Rit Mógilsár - 2013, Side 11
Rit Mógilsár 28/2012 11 gróðursetninga er ennþá meðtalin (sjá 4. töflu). Þetta verður að hafa í huga þegar ferlar yfir árlega bindingu eru skoðaðir en þeir eru birtir í 2. mynd Ljóst er á 2. mynd að hámarksbinding næst ekki fyrr en að 30 árum liðnum. Þetta sést betur í 5. töflu þar sem tíma- bilið með mestri árlegri bindingu er á árabilinu 2043-2052. Það tímabil er með 25-30% meiri bindingu en næstu tímabil á undan og eftir. Áætlaður kostnaður við nýskógrækt Nákvæmar kostnaðaráætlanir, þar sem stofnkostnaður við skógræktina var tilgreindur og færður á áætluð gjaldaár, voru til fyrir þrjár af jörðunum. Gerð var l ít i lsháttar lagfæring á þessum kostnaðaráætlunum til að samhæfa kostnaðarliði. Þrátt fyrir það eru ekki allir hefðbundnir kostnaðarliðir teknir með þar sem í sumum tilvikum var búið að ljúka framkvæmdum áður en kom til tals að Landsvirkjun ætlaði að fjármagna nýskógrækt á þessum svæðum (sjá 6. töflu). Ekki lá fyrir sundurliðuð kostnaðaráætlun fyrir Skarfanes en þar var stofnkostnaður áætlaður 300 þús. kr á hvern brúttó- hektara nýskógræktar. Brúttóflatarmál nýskógræktar er, eins og áður hefur verið getið, 504 ha en nettóflatarmál nýskógræktar er 444 ha. Stofn- kostnaður á hvern ha var því metin 340 þús. kr. í tilviki Skarfaness. Eins og sjá má í 6. töflu var eininga- kostnaður nokkuð misjafn á milli svæða. Þar sker Belgsá sig mest út með lægstan kostnað. Þar voru líka tveir kostnaðarliðir undanskildir. Hæsti einingakostnaðurinn var á Laxaborg og er þar smæð svæðisins áreiðanlega stór áhrifavaldur. Hér er einungis talinn til stofnkostnaður en í hefðbundinni skógrækt mun líka verða kostnaður vegna umsýslu og um- hirðu að loknum stofnframkvæmdum. Í samningsdrögum Landsvirkjunar og Skógræktar ríkisins tekur Skógrækt ríkisins á sig þann kostnað enda mun hún eiga skóginn og hafa möguleika á að uppskera hann af samnings- Laxaborg Belgsá Ormsstaðir Skarfanes Áætlanagerð Ekki innifalin Ekki innifalin Innifalin Innifalin Girðing Innifalin Ekki innifalin Innifalin Innifalin Slóðagerð Innifalin Innifalin Innifalin Innifalin Eftirlit og úttektir Innifalin Innifalin Innifalin Innifalin Endurplöntun 10% Innifalin Innifalin Innifalin Innifalin Stjórnunargjald 6% Innifalin Innifalin Innifalin Innifalin Kostnaður á hektara (þús. kr.) 374 239 345 340 6. tafla. Kostnaðarliðir stofnkostnaðar í ræktunaráætlunum ásamt stofnkostnaði á flatareiningu.

x

Rit Mógilsár

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.