Rit Mógilsár - 2013, Síða 12

Rit Mógilsár - 2013, Síða 12
 12 Rit Mógilsár 28/2012 tímabilinu liðnu. Arðsemi eða innri vextir fjárfestingar í bindingu CO2 með nýskógrækt Að lokum eru birtar niðurstöður úr ein- földum arðsemisútreikningum fyrir ný- skógrækt á þessum fjórum svæðum (sjá 7. töflu). Reiknaðir er innri vextir fjárfestingar, sem segir þá til um hvaða vexti fjárfestingar, sem jafngilda stofn- kostnaði við skógræktina, munu bera miðað við mismunandi verð fyrir hverja losunarheimild sem er hér á forminu bundið tonn af koldíoxíði. Tekið er mið af opinberum Evrópumarkaði með framtíðarlosunarheimildir en verðið þar hefur farið lækkandi eftir að fjár- málakreppan hófst. Miklar sveiflur eru í verði á markaði en frá miðju ári 2010 til lok mars 2012 sveiflaðist framtíðar- verðið frá því að vera hæst um 28 € í mars 2011 niður í 14 € í lok tímabilsins (http://www.emissierechten.nl/). Þó er gert ráð fyrir að á árunum 2013-2020 muni verð fara hækkandi aftur vegna áætlana Evrópusambandsins um að minnka árlega losunarheimildir iðnfyrir- tækja um 1,74% á þessu árabili fram- lengingar Kyótó samningsins. Í öllum tilvikum er arðsemi kolefnis- bindingar jákvæð. Munur í stofnkostnaði á flatareiningu á milli svæða (sbr. tafla 6) hefur minni áhrif á arðsemi kolefnis- bindingar en verð á hverju bundnu tonni af kolefni. Þannig er mestur munur á arðsemi milli svæða 3,8% en á milli verðflokka á bundnu kolefni 5,9%. Verð losunarheimilda Laxaborg Belgsá Ormsstaðir Skarfanes 30 € 6,0% 9,8% 7,8% 8,4% 20 € 4,3% 7,3% 5,6% 6,0% 10 € 1,6% 3,9% 2,6% 2,7% 7.tafla. Arðsemi eða innri vextir fjárfestingar í kolefnisbindingu með nýskógrækt á fjórum svæðum Skógræktar ríkisins miðað við mismunandi verð losunarheimilda.

x

Rit Mógilsár

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.