Nýr dagur - 20.08.1933, Qupperneq 4
grunað, að þröngt myndi verða í
búi hjá fólki hér í sumar, því bæði
í ræðu og riti, voru menn hvattir
til að í'ara héðan að heiman, eitt-
hvað út á land í atvinnuleit, án
þess þó, að benda mönnum á þá
staði, er þeir gætu fengið mán-
aðarkaup og tryggt með því af-
komu sína og sinna. Urðu margir
til þess að fara að heiman, en
flestir munu hafa orðið að blta
í það súra epli, að taka part af
afla upp í kaup sitt, enda er út-
koman orðin sú, að menn eru
farnir að koma heim á miðju
sumri, sumir með skuld á bakinu,
og dæmi eru til þess, að konan,
sem heima var við þröngvan kost,
varð að taka sinn síðasta eyri og
borga fargjaldið fyrir manninn,
svo hann kæmist heim. Þannig
hefir þá farið sumaratvinnu
manna. Þannig hafa þau reynzt
ráðin, sem Tanginn gaf mönnum.
Eftir að þeir eru búnir að vinna
nótt og nýtan dag fyrir auðvaldið
og skapa óhemju auð, sem fáír
sérgóðir auðkífingar slá eign sinni
á, vilja þeir reka verkalýðinn
landshornanna á milli, svo þeir
ekki einu sinni fái reykinn af
réttunum, auðmennimir geti í
næði setið að krásinni og þó fyrst
og fremst til þess að þurfa ekki
að eiga yfir höfði sér sókn og
baráttu þess verkalýðs, sem
krefst atvinnu og lífsframfæris
af yfirstéttinni.
Verkamenn! Lærið af reynsl-
unni. Látið ekki þá menn, sem
ykkur eru fjandsamlegir og hafa
ánægju af því að taka í sundur
heimili ykkar tæla ykkur til að
fara út í óvissa atvinnuleit, berj-
íst heldur sameinaðir heima fyrir
vinnu og brauði.
Síðastliðið sumar og haust
kröfðust verkamenn atvinnubóta
af bæjarstjórninni og fengu því
til leiðar komið með öflugum sam-
tökum og með því að fjölmenna á
bæjarstjómarfundina þegar kröf-
urnar vom ræddar, að á annað
hundrað manns fengu atvinnu.
Það er enginn vafi á því, að
hefðu verkamenn ekki staðið
jafn einhuga saman í baráttunni
fyrir atvinnubótunum, þá hefði
bæjarstjórnin ekki látið vinna
einn einasta dag.
Verkamenn! Við verðum að
fara að hefjast handa og krefja
bæjarstjómina um atvinnu handa
öllum þeim verkamönnum, sem nú
eru atvinnulausir, við verðum að
gera þá kröfu til bæjarstjórnar,
að hún haldi bráðlega fund, þar
sem atvinnuleysismálið er tekið
fyrir og afgreitt þannig að kröfur
okkar verði uppfylltar. Við skul-
um fjölmenn á alla þá fundi, sem
verkamannafélagið heldur, þvi að-
eins með öflugri baráttu getum
við varið lífsrétt okkar. Verka-
menn! Stöndum sameinaðir í
þeirri baráttu sem framundan er,
þá er sigurinn vís.
A.
Hvernig tekur verkalýð-
urinn erlendis á móti
Hitlers-skipum ?
Verkfalli skelt á fjölda
Hitlers-skipa.
Gegn hakakrossinum í
öllum dönskum höfnum.
Vaxandi reiði ríkir nú í öllum
dönskum hafnarborgum gegn ýf-
ingum nazistaskipstjóranna. í
Odense, Aalborg, Nakskov, Nörre-
Sundby og Svendborg hafa hafn-
arverkamennirnir neitað að snerta
á nokkru verki á meðan að haka-
krossinn hverfi ekki af skipunum.
Já, í Aalborg og Nörre-Sundby
fylktu verkamennirnir sér saman
til stórrar kröfugöngu, þar eð
kröfum þeirra var ekki sinnt,
gengu um borgina og meðfram
höfninni og sungu „Internation-
alinn“. — Næstum alltaf hafa
verkamennímir sigrað.
Hin sósíaldemókratiska stjórn
verkamannasambandsins hefir al-
staðar att ríkisvaldinu fram til
baráttu gegn and-fasistunum og
lýst yfir, að allir atvinnulausir
hafnarverkamenn yrðu sviftir
styrknum ef vinnan við skipin
með morðfána Hitlers yrði ekki
strax hafin aftur.
Atvinnurekendumir fylgja
þessu fordæmi og leggja nú mál-
Hreinlætisvörur. Handsápur,
margar teg. Þvottasápa, blaut-
sápa, sóda, Þvottaduft 4 teg.
Tannkrem, andlitskrem, hár-
þvottaduft, raksápa. Ódýrast eg
bezt að kaupa í Kaupfélagi verka-
rnanna.
Til sölu með tækifærisverði, er
hvít emalierað baðker. Afgr. vís-
ar á.
Lítill kolaofn óskast keyptur.
A. V. á.
ið fyrir gerðardóm og krefjast
þess, að hafnarverkamennirnir
verði dæmdir fyrir taxtabrot og
brot á lögum um bann við verk-
föllum, sem ríkisþingið sam-
þykkti nýlega. Eins og xunnugt er
hefir Stauning-stjórnin, sem
sósíaldemókratar eru ráðandi í,
höfðað mál gegn „Rauða fagleja
andstöðuarmi“ sjómanna og hafn-
arverkamanna fyrir útgáfu á
flugriti, sem hvatti til verkfalls
við nazistaskip.
4. júlí komu þýzk skemmtiskip
til dönsku hafnarinnar Korsör, og
eitt þeirra hafði dregið upp haka-
krossinn. I kveðjuskyni var einn-
ig fáni morðflokksins dreginn
upp á þýzka konsúlsbústaðnum.
Niður við skipin safnaðist saman
mikill hluti íbúa borgarinnar og
laust hann upp fagnaðarópi þegar
ungur verkamaður einn reif fán-
ann á skipinu niður. Fáum mín-
útum síðar féll einnig hinn risa-
stóri fáni konsúlsins til jarðar,
hann hafði komizt í alltof náin
kynni við rafhníf eins andfasist-
ans. Til hollensku hafnarinnar
Arnhem kom skipið „Flint“ frá
Ruhrort 6. júlí, með steinfarm.
Um hádegi, þegar skipstjórinn dró
upp Hitlersfánann neituðu allir
hafnarverkamennirnir, sem unnu
í skipinu, að halda áfram að skipa
upp úr því. Eftir margra klukku-
tíma verkfall gaf skipstjórinn
eftir.
„Antifaschistische Front“
12. júlí 1933.
Ábyrgðarmaður: ísleifur HöguaKon.
PrentsmiQjan Acta.