Hjálmur


Hjálmur - 07.12.1953, Qupperneq 2

Hjálmur - 07.12.1953, Qupperneq 2
2 HJÁLMUR V. KAFLI. Stjóm og starfsmenn. 13. g r. Stjórn félagsins skipa 7 menn: formaður, vara- formaður, ritari, féhirðir, fjármálaritari og tveir meðstjórnendur. Varastjóm skipa 3 menn. End- urskoðendur 2 og 1 til vara. 14. gr. [Formaður kveður til félagsfunda og trúnaðar- ráðsfunda og stjórnar þeirn. I upphafi hvers fund- ar hefur hann leyfi til að stinga upp á einhverj- um viðstöddum félagsmanni til að stjóma fund- inum. Hann undirskrifar gerðir félagsins og gætir þess, að starfsmenn þess geri skyldur sínar. Hann hefur eftirlit með starfsemi félagsins og eftirlit með því, að fylgt sé lögum þess og reglum í öll- um greinum. Hann geymir skjöl þess, ef það hef- ur ekki skrifstofu, ella skulu þau geymd þar. Hann ávísar reikningum á félagið til greiðslu. Varafor- maður gegnir sömu störfum og fomiaður í for- föllum hans. 15. gr. Ritari heldur fundargerðarbækur félagsins og færir í þær allar fundargerðir, lagabreytingar og aðalreikning. 16. gr. Féhirðir hefur á hendi eftirlit með fjárhaldi félagsins og bókfærslu, sem að því lýtur, eftir nánari fyrimiælum stjómarinnar. 17. gr. Fjámiálaritari hefur eftirlit með innheimtu fé- lagsgjaldanna, eftir nánari fyrirmælum stjómarinn- ar. 18. gr. Aðalmenn í stjóm em skyldir að tilkynna for- föU svo tímanlega, að unnt sé að boða varamenn. 19. gr. Stjórn félagsins ræður starfsmann félagsins, á- kveður laun hans og vinnuskilmála. Enginn starfs- maður skal ráðinn til lengri tíma en kjörtímabils þeirrar stjórnar, er ræður hann. Starfsmenn félagsins mega ekki taka að sér launuð aukastörf, nema með samþykki stjórnar- innar. Stjómin getur sett starfsmönnum félagsins er- indisbráf, er tiltaki nánar starfssvið þeirra og skyldur í starfinu. Starfsmenn félagsins bera ábyrgð á fjárreiðum félagsins og eignum, og skulu þeir setja tryggingu fyrir varðveizlu sjóða félagsins og eigna, ella ber stjóm félagsins sameiginlega ábyrgð á eignum félagsins. Sjóði félagsins skal geyma á vöxturn í banka eða öðram jafntryggum stað, eftir nánari fyrirmælum stjómarinnar.] VI. KAFLI. Allsherjaratkvæðagreiðsla. 20. gr. [Allsherjaratkvæðagreiðslu skal viðhafa: a) Um kosningu stjómar, varastjómar, endur- skoðenda, svo og annarra trúnaðarmanna, er trúnaðarráð telur, að - allsherjaratkvæða greiðslu þurfi með. b) Þegar stjóm félagsins, trúnaðarráð eða lög- mætur félagsfundur, sem sóttur er af minnst 25 félagsmönnum, samþykkir að viðhafa alls- herjaratkvæðagreiðslu í félaginu. Slíkar at- kvæðagreiðslur er þó aðeins hægt að við- hafa um mál, sem lögð eru þannig fyrir, að hægt er að svara með já eða nei, eða kjósa megi milli tveggja tiHagna, og skulu þá út- búnir greinilegir atkvæðaseðlar um rnálið, svo að kjósandi þurfi aðeins að krossa við já eða nei, eða við aðra tillöguna, ef tvær eru. Á atkvæðaseðilinn má prenta álit félagsfund- ar, trúnaðarráðs eða stjórnar, um mál það, er greitt er atkvæði um. Allsherjaratkvæðagreiðsla er úrslitaályktun í öll- um málefnum félagsins.] VII. KAFLI. Kjörstjórn. 21. gr. [Kjörstjóm skal skipuð þremur félagsmönnum. Skal einn skipaður af stjórn félagsins, annar af trúnaðarráði og sá þriðji af félagsfundi. Jafnmarg- ir varamenn skulu tilnefndir af sömu aðilum. Kjör- stjórn skal skipuð í október ár hvert. Þess skal gætt, að ekki séu fleiri en einn af stjórnarmeðlimum félagsins í kjörstjóm. 22. gr. Kjörstjórn annast prentun allra atkvæðaseðla, er gilda eiga við aUsherjaratkvæðagreiðslu og sér um, að atkvæðagreiðslan fari löglega fram og að fullkomin leynd sé á því, hvemig menn greiða atkvæði. Hún telur atkvæði að lokinni atkvæða- greiðslu og úrskurðar um vafaatkvæði. 23. gr. Kjörstjórn heldur gerðabók, og skal í hana fært, hvenær kosningar hefjast. Þá skal og bókað, hve- nær kosningar hefjast. Þá skal og bókað, hvenær atkvæðakassi er innsiglaður og tölu atkvæðaseðla áður en kosning hefst, svo og þegar henni er lok- ið og þá tekið fram, hve margir seðlar era ónot- aðir, hve margir hafa greitt atkvæði, svo og, eftir talningu, hver úrslit atkvæðagreiðslan sýnir. Kjör- stjóm skal þegar eftir talingu atkvæða er lokið, í hvert skipti, afhenda formanni félagsins gerða- bókina, eða afrit af úrslitum atkvæðagreiðslu. 24. gr. Kjörseðill er gildur, ef hann ber greinUega með sér, hver eða hverja kjósandi hafi ætlað að kjósa og enginn sérstök einkenni era á honum, er sýni, hver kosið hafi. 25. gr. Urslit kosningu stjómar og trúnaðarmannna skal tilkynna á aðalfundi. Eru þeir kosnir, sem flest fá atkvæði. Séu atkvæði jöfn ræður hlutkesti. Urslit annarra allsherjaratkvæðagreiðslna skal til- kynna á næsta félagsfundi eftir atkvæðagreiðslu. 26. gr. Stjórn félagsins skal láta gera skrá yfir alla fuU- gilda félagsmenn í sérstaka bók — kjörskrá —. Skal merkja við hvern þann í skránni, er neytt hef- ur atkvæðisréttar síns. Umboðsmönnum þeirra, sem standa að sérstök- um listum við kosningu stjómar og trúnaðarmanna, skal heimill aðgangur að kjörskrá.] VIII. KAFLI. Kosningar. 27. gr. [Þriggja manna nefnd gerir tiHögur til allsherjar- atkvæðagreiðslu, um hverjir skipi stjórn félagsins, varastjórn, endurskoðendur, trúnaðarráð, svo og aðra trúnaðarmenn félagsins, er trúnaðarráð telur að allsherjaratkvæðagreiðslu þurfi um. Nefndin skal skila tillögum sínum, um hverjir skipi fyrrgreindar trúnaðarstöður, til trúnaðarráðs félagsins. Sé nefndin klofin, skal tiHaga meiri- hluta nefndarinnar merkt A. En kjörstjóm merkir aðrar tiUögur, er fram kunna að koma. Nefndin skal skipuð þannig. Tveir skulu kosnir af félagsfundi, en einn af trúnaðarráði. Sömu að- ilar kjósa jafnmarga varamenn. Nefndin skal kosin í októbermánuði ár hvert og starfa árið. Nefndinni skal skylt að leggja tillögur fyrir trún- aðarráð 15 dögum áður en kosning á að hefjast. TiUaga A skal lögð fram á skrifstofu félagsins, og auglýst félagsmönnum til sýnis, 10 dögum áður en kosning hefst. Korni fleiri tillögur, skulu þær afhentar skrif- stofu félagsins ekki síðar en 7 dögurn áður en kosning hefst. 28. gr. Minnst 25 og ekki fleiri en 35 félagsmenn geta lagt fram tillögu um kosningu trúnaðarmanna við aUsherjaratkvæðagreiðslu. Tillögunni skulu fylgja meðmæli 25—35 félagsmanna. Skrifleg viðurkenn- ing þeirra manna, sem í kjöri eru, skal jafngilda meðmælum. I enga tiUögu má taka upp nöfn manna, sem gefa skriflegt leyfi til þess, að nafn þeirra sé sett á aðra tillögu. Kosning stjómar skal fara fram 1. sunnudag í febrúarmánuði ár hvert. Skal hún standa yfir frá kl. 10 árdegis til kl. 12 síðdegis. Kosning fer fram á skrifstofu félagsins og skal þar komið fyrir kjörklefa, svo að kosning geti farið fram leynilega. Oski kjósandi að kjósa eina prentaða tillögu, óbreytta á kjörseðli, krossar hann við tillögubók- stafinn, en óski hann að gera breytingu á tillögu, er hann kýs, er honum heimilt að strika út nöfn og getur hann kosið menn í staðinn af annarri tiUögu, og skal hann þá krossa við nöfn þeirra. Ávallt skal einn maður, tilnefndur af kjörstjórn, vera kjörstjóri. Þeir, sem fyrirfram er kunnugt um, að hafi 25— 35 stuðningsmenn til kjörs, hafa einnig rétt til að hafa viðstadda fulltrúa fyrir sig. Óheimilt er að við- hafa nokkurn kosningaáróður á kjörstað, né við liann, né hafa þar tillögur, áskoranir eða hvatn- ingar, um kosninguna, aðrar en leiðbeiningar sam- kvæmt lögum félagsins. 29. gr. Eftir að félagsmaður hefur greitt atkvæði skal hann láta atkvæðaseðilinn í lokaðan atkvæðakassa. Lykillinn að kassanum geymir fonnaður kjörstjóm- ar. Kjörstjóm skal ganga úr skugga um, að kassinn sé tómur, áður en hún innsiglar hann. Þeim sem að tillögum standa, er einnig heimilt að vera við- staddir innsiglun atkvæðakassa og að innsigla kass- ann með eigin innsigli. Kosning má aðeins standa yfir fyrirfram auglýstan tíma daglega. Urnboðs- mönnum þeirra, er að tillögum standa, er ávaUt heimilt að vera viðstaddir við kosninguna. Hver kjósandi skal undirrita, með eigin hendi, viðurkenningu fyrir því, að hann hafi tekið við atkvæðaseðli. Kjörstjórn skal merkja við nöfn þeirra, félagsmanna, í kjörstjórn, er neytt hafa at- kvæðisréttar síns.] IX. KAFLI. Fundir. 30. gr. [Fundur skal haldinn í félaginu, þegar stjómin álítur þess þörf eða minnst 15 félagsmenn óska þess skriflega. Þó skal fundur haldinn eigi sjaldn- ar en einu sinni í mánuði frá 1. sept til 1. apríl. Fundum skal stjórna eftir fundarsköpun, sem fé- lagið hefur samþykkt. Meirihluti atkvæða á fé- lagsfundum ræður úrslitum í málurn félagsins nema öðru vísi sé ákveðið í lögum þessum. Vafa- atkvæði um fundarsköp úrskurða fundir við ein- stök tækifæri. í öllum stærri málum, er félagið varða, skal viðhöfð leynileg atkvæðagreiðsla á fund- um þess, ef óskað er. Fundir eru lögmætir í félag- inu, ef minnst 25 félagsmenn mæta á fundi.] 31. gr. [Aðalfundur félagsins skal haldinn í byrjun febr- úar ár hvert. Þar skulu lagðir fram reikningar félagsins endurskoðaðir, til athugunar og samþvkkt- ar. Þar skal lýsa kosningu stjómar, varastjórnar, endurskoðenda, trúnaðarráðs og annarra trúnað- armanna.

x

Hjálmur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjálmur
https://timarit.is/publication/1567

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.