Hjálmur - 07.12.1953, Page 3

Hjálmur - 07.12.1953, Page 3
HJÁLMUR 3 Þá skal gefin skýrsla um störf stjómar og trún- aðarráðs fvrir síðasta starfsár og ákveðið ársgjald.] X. KAFLI. Trúnaðarráð. 32. gr. Heimilt er að mynda trúnaðarráð innan félags- ins. Umsagnar trúnaðarráðs skal leitað í öllum mikilvægum málum félagsins. Fundir skulu haldn- ir í trúnaðarráði rninnst einu sinni í mánuði. Trún- aðarráð skal skipað trúnaðarmönnum félagsins á vinnustöðvunum og stjórn félagsins. Stjón félags- ins lætur kjósa trúnaðarmennina á vinnustöðvun- um eða skipar þá. XI. KAFLI. T rúnaðarmannaráð. 33. gr. Trúnaðarmannaráð hefur vald til þess að taka ákvörðun um það, hvenær hefja skal vinnustöðv- un, og hvenær henni skuli aflétt. í trúnaðarráði eiga sæti stjórn félagsins og fjórir fullgildir félags- menn, kosnir til eins árs í senn ásamt varamönn- um. I forföllum aðalstjórnarmanna taka varamenn sæti í trúnaðarmannaráði. Trúnaðarmannaráðsfundur er lögmætur ef 2/3 meðlima þess mæta. Fonnaður félagsins skal vera fonnaður trúnaðarmannaráðs og ritari hjlagsins r.itari þess. Formaður kveður trúnaðarmenn sam- an með þeim hætti, er hann telur heppilegastan. Akvarðanir um að hefja vinnustöðvun eða aflétta eru lögmætar og bindandi fyrir félagið, ef minnsta kosti 3/4 hlutar greiddra atkvæða á lögmætum trúnaðannannaráðsfundi hafa samþykkt þær. XII. KAFLI. Fjármál. 34. gr. [Upphæð árstillaga og greiðsluaðferð skal ákveða á aðalfundi hverjum fyrir það ár, sem yfir stendur. Skal félagsstjómin leggja fyrir aðalfund ákveðnar tillögur um það. Tillaga um lækkun á árstillagi nær því aðeins samþykki, að 2/3 atkvæða séu með henni. Gjalddagi ársgjaldsins er 15. marz ár hvert. Stjórn félagsins hefur heimild til að veita sjúkum og öldruðum félagsmönnum ívilnanir um ársgjöld. 35. gr. Skuldi einhver félagi til félagsins, missir hann atkvæðisrétt í því og á einnig á hættu að verða sviptur félagsréttindum í því. Skal félagsmönnum þó gefinn kostur á að greiða tillag sitt til félags- ins fram að þeim degi, sem kosning stjómar fer fram. Af tekjum félagsins skulu greidd öll gjöld fé- lagsins við störf þess, fundarhöld, ritföng, prent- kostnaður og annar kostnaður, sem stafar frá sam- þykktum félagsfunda.] XIII. KAFLI. Nefndir. •36. gr. Fastar nefndir í félaginu skulu vera: Fræðslu- nefnd, skipuð þrem mönnum, og laganefnd, skip- uð þrernur mönnum. 37. gr. Verkefni fræðslunefndar skal vera að halda uppi í félaginu fræðslu um verkalýðsmál, einkurn er varða hagsmunalega og menningarlega baráttu verkalýðsins og alþýðunnar og um sögu verka- lýðshreyfingarinnar. 38. gr. Laganefnd skal á ári hverju endurskoða lög fé- lagsins og skal hún hafa lokið því starfi fyrir 1. desember og skilað áliti. Einstakir félagsmenn skulu fyrir þann tíma hafa sent nefndinni tillögur eða óskir urn breytingu á lögum félagsins. Skulu þær sæta sörnu meðferð sem tillögur frá nefndinni, ef þær koma fram í tillögufonni, enda þótt nefnd- in flytji þær ekki sem sínar tillögur, en leita skal álits laganefndar um þær. XIV. KAFLI. Lagabreytingar. 39. gr. Lögurn þessum rná breyta með meírihluta at- kvæða við allsherjaratkvæðagreiðslu, enda hafi breytingin verði rædd á tveim löglegum félags- fundum. A atkvæðaseðlinum skal fylgja álit meirihluta trúnaðarráðs. Lög þessi öðlast þegar gildi. x ■& TILKYIVIVIIVG Samkvæmt samningi vorum við Vinnuveitendasamband íslands og at- vinnurekendur í Hafnarfirði, Árnessýslu, Akranesi, Keflavík og Rangár- vallasýslu, verður leigugjald fyrir vörubifreiðir frá og með deginum í dag og þar til öðruvísi verður ákveðið, sem hér segir: Nætur- Dagv. Eftirv. og helgid v. Fyrir 2’i tonns bifreiðir .... 47,98 55,75 63,51 Fyrir 2% til 3 tonna hlassþunga 53,57 61,64 69,10 Fyrir 3 til 3/1 tonna hlassþunga 59,13 66,90 74,66 Fyrir 311 til 4 tonna hlassþunga 64,71 72,48 80,24 Fyrir 4 til 4/1 tonna blassþunga 70,27 78,04 85,80 Allir aðrir taxtar eru óbreyttir. Reykjavík, 1. desember 1953. Vörubílastöðin Þróttur, Vörubílastöð Hafnarfjarðar, Reykjavík. Vörubílstjórafélagið Mjölnir, Ámessýslu. Vörubílastöð Keflavíkur, Keflavík. Hafnarfirði. Bifreiðastöð Akraness, Akranesi. Bílstjórafélag Rangæinga, Hellu. ír,- ■■■. ' --=---: 1 " ■...... =■ Skrifstofa Yerkamannafélagsins Hlífar ER FLUTT AÐ AUSTURGÖTU 47. Opin alla virka daga nema laugardaga frá kl. 5 til 7. Pöntunarfélag Hlífar er á sama stað. Pöntunardagar: Mánudaga og þriðjudaga frá kl. 5 til 7. Afhending fer fram á laugardögum. d ' ..-. ■■ --------v

x

Hjálmur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hjálmur
https://timarit.is/publication/1567

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.