Víkurfréttir - 27.05.2021, Page 12
Fjölmenn útskrift á vorönn FS
Skólaslit vorannar og brautskráning Fjölbrautaskóla Suðurnesja fór fram föstudaginn 21.
maí. Að þessu sinni útskrifuðust 128 nemendur; 102 stúdentar og 20 útskrifuðust af verk-
og starfsnámsbrautum. Þá luku 12 nemendur prófi af starfsbraut og 5 af framhaldsskóla-
braut. Nokkrir nemendur brautskráðust af tveimur námsbrautum. Konur voru 75 og karlar
53. Alls komu 92 úr Reykjanesbæ, 17 úr Suðurnesjabæ, 10 úr Grindavík og einn frá Reykja-
vík, Hafnarfirði, Húsavík og Neskaupstað.
Vegna fjöldatakmarkana gátu gestir ekki sótt útskriftina
að þessu sinni og því voru aðeins útskriftarnemendur og
starfsfólk skólans viðstatt. Þess í stað var athöfnin send
út á vef skólans og á Facebook. Dagskráin var annars með
hefðbundnu sniði. Kristján Ásmundsson, skólameistari,
afhenti prófskírteini og flutti ávarp og Guðlaug Pálsdóttir,
aðstoðarskólameistari, flutti yfirlit yfir störf annarinnar.
Ingibjörg Birta Jóhannsdóttir, nýstúdent, flutti ávarp
fyrir hönd brautskráðra og Ragnheiður Gunnarsdóttir,
kennari, flutti útskriftarnemendum kveðjuræðu starfs-
fólks. Að venju var flutt tónlist við athöfnina en að þessu
sinni léku Kristberg Jóhannsson, nýstúdent, og Magnús
Már Newman trommudúett og Emilía Sara Ingvadóttir,
Eygló Ósk Pálsdóttir og Kristín Þóra Pétursdóttir léku
á klarinett.
Við athöfnina voru veittar viðurkenningar fyrir góðan
námsárangur. Að þessu sinni voru veitt fjölmörg verð-
laun enda voru tíu útskriftarnemendur með meðalein-
kunn yfir 9,0. Kristján Ásmundsson, skólameistari, af-
henti námsstyrk úr skólasjóði en hann er veittur þeim
nemanda sem er með hæstu meðaleinkunn við útskrift
og hlaut María Tinna Hauksdóttir 100.000 krónu styrk
en hún var með 9,55 í meðaleinkunn.
Jórunn Tómasdóttir, Ragnheiður Gunnarsdóttir og
Sumarrós Sigurðardóttir voru kvaddar á útskriftinni
en þær voru að hætta störfum eftir að hafa kennt við
skólann um árabil. Sigurlaug Kristinsdóttir, bókari, hættir
einnig störfum í sumar eftir áralangt starf. Þeim var
öllum þakkað fyrir vel unnin störf í þágu skólans.
Við athöfnina veitti skólameistari Guðlaugu Páls-
dóttur, aðstoðarskólameistara, gullmerki Fjölbrautaskóla
Suðurnesja en hún hefur starfað við skólann í 25 ár. Það
er hefð að veita starfsfólki skólans þessa viðurkenningu
við þessi tímamót.
Emilía Sara Ingvadóttir, Eygló Ósk Pálsdóttir og Kristín Þóra
Pétursdóttir léku á klarinett við upphaf hátíðarinnar.
Námsstyrkir voru afhentir
úr minningarsjóði
Gunnars Sveinssonar.
Alls útskrifuðust 102 nemendur sem stúdentar. Hér var húfum lyft.
María Tinna Hauksdóttir, dúx vorannar, hlaut fjölda verðlauna,
m.a. 100 þúsund króna námsstyrk úr skólasjóði. Hér afhendir
Kristján Ásmundsson, skólameistari, henni viðukenningar.
Tíu nemendur voru með yfir níu í meðaleinkunn.
Alls útskrifuðust 128
nemendur á vorönn 2021.
Ljósmyndir: Oddgeir Karlsson
Skólameistari afhenti Guðlaugu Pálsdóttur aðstoðarskólameistara
gullmerki FS en hún hefur starfað við skólann í 25 ár. Hún mun taka
við skólameistarastarfinu næsta haust þegar Kristján fer í ársleyfi.
12 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár