Víkurfréttir - 27.05.2021, Qupperneq 22
Keflvíkingar hafa ekki átt neina draumabyrjun í Pepsi Max-deild karla og árangur liðsins ekki
staðið undir væntingum. Þótt staðan líti ekki vel út sem stendur ríkir jákvæðni í herbúðum
Keflavíkur og þjálfarar og leikmenn liðsins snúa bökum saman og hafa fulla trú á að gæfan
muni snúast á sveif með þeim. Víkurfréttir ræddu við Eystein Húna Hauksson, annan aðal-
þjálfara meistaraflokks karla, um stöðuna eins og hún horfir við honum.
„Þetta hefur ekki verið neitt drauma-
start en sem betur fer hafa liðin í
kringum okkur átt svipuðu gengi
að fagna,“ segir Eysteinn. „Úr því að
leikurinn við FH, sem átti að vera á
sunnudaginn, verður ekki spilaður
þá verða næstu fjórir leikir (gegn HK,
Leikni, ÍA og Stjörnunni) mjög mikil-
vægir. Ekki það að þetta hafi verið
neitt minna mikilvægt hingað til en
það verður mikið undir í þessum
leikjum, við erum að renna inn í mjög
mikilvægan hluta af mótinu.“
– Það mátti greina mikla bætingu á
liðinu í síðasta leik.
„Já, það var ágætis bragur á liðinu.
Menn voru einbeittir og búnir að
vinna í sjálfum sér, sem var það sem
við auglýstum eftir. Við vorum allir
sammála um að við værum að leika
undir getu og við hefðum ekki efni
á því að vera þannig í marga leiki.“
Það er hægt að vera á sama máli
og Eysteinn að úrslit síðustu leikja (á
undan Valsleiknum) eru ekki að gefa
rétta mynd af liðinu. Keflavík fékk á
sig tólf mörk í þremur leikjum sem er
alveg óskiljanlegt.
„Það er margt sem er hægt að
rýna í ef menn vilja, bæði jákvætt
og neikvætt. KA leikurinn var heilt
yfir ekki góður, gegn Breiðabliki er
leikurinn í jafnvægi þangað til við
fáum gusu yfir okkur sem erfitt er
að útskýra og öðrum leikjum höfum
við tapað þrátt fyrir ýmsa jákvæða
tölfræði eins og sköpun færa. Þar
er margt sem bendir til þess að það
þurfi ekki svo mikið að falla með
okkur til að mikilvægasta tölfræðin
fari að verða oftar okkur í hag.“
– Það hefur virst eins og menn
sjokk erist eitthvað við að fá mark á
sig og fá svo annað á sig í kjölfarið.
„Já og það var eitt af því sem við
ræddum fyrir Valsleikinn. Við vorum
búnir að ákveða hvernig við myndum
bregðast við ef við lentum í mótlæti
eða undir í leiknum. Menn voru
ákveðnir í því að láta það ekki á sig
fá og þar mátti sjá bætingu frá síð-
ustu leikjum – og eftir seinna markið
gáfust menn ekki heldur upp og héldu
áfram að sækja. Við gáfum alls ekkert
eftir, heldur féllum einfaldlega á tíma.
Það sem var við Valsleikinn er að
við vorum bara samstilltir og solid
varnarlega, vorum að vinna þetta
saman sem er eitthvað sem við
söknuðum dálítið í leikjunum á móti
KA og Fylki. Við gerðum hins vegar
slæm mistök í föstum leikatriðum
þar sem við ætlum að gera betur í
framhaldinu.
Það sem stendur auðvitað upp
úr eru úrslitin og staðan er eins og
hún er. Nú fer að líða lengra á milli
leikja og þá fáum við meiri tíma til að
vinna í okkar málum – í staðinn fyrir
að vera bara að hvíla okkur og bíða
næsta leiks. Ég tel að það sé mikil-
vægara fyrir okkur en mörg önnur
lið í þessari deild.
Ég var ánægður með það hvað
menn komu klárir í leikinn á móti Val,
því það höfðu bara liðið laugardagur
og sunnudagur frá Fylkisleiknum
sem var töluvert andlegt kjafts-
högg. Hvernig menn komu til leiks
gegn Val og hvernig menn kláruðu
þann leik. Það kom mér ánægjulega
á óvart hvað það var mikill kraftur í
strákunum en við vorum einfaldlega
felldir á augnabliks einbeitingarleysi
og munum gera betur þar. Við getum
ekki endalaust sagt að þetta komi í
næsta leik, við þurfum að fara að færa
okkar fólki fleiri stig.“
Það verður
Keflavíkurfjölskyldan
sem klárar þetta saman
– Þið eruð ekkert að láta þetta slá
ykkur út af laginu. Það er alveg
stemmning í liðinu, er það ekki?
„Það er enginn að fara á taugum
hjá okkur. Fyrir leikina í kvöld
[þriðjudag] erum við þrátt fyrir allt
í bestu stöðu sem karlalið Kefla-
víkur hefur verið í síðan 2014. Í því
eru klárlega sóknarfæri og þannig
eigum við að líta á þann punkt sem
við stöndum á. Þetta er bara rétt að
byrja og spurningin er ekki hvernig
við byrjum, heldur hvernig við
endum. Við erum ákveðnir í því að
láta nokkur högg ekki á okkur fá og
halda áfram að læra og þróa okkur
– og vinna fleiri leiki sem fyrst í
þessari deild. Það er mikill hugur í
mannskapnum.
Nú á að fara að leyfa fleiri áhorf-
endur á leikjum og við treystum á að
Keflvíkingar flykki sér saman, standi
að baki liðinu og láti í sér heyra – það
er svo sannarlega þörf á því. Ef við
klárum þetta verkefni þá verða það
ekki þessi ellefu sem eru úti á vell-
inum eða þessir tuttugu sem eru í
hópnum sem gera það, heldur verður
það Keflavíkurfjölskyldan sem klárar
þetta saman. Það er bara þannig að
við þurfum mikinn stuðning, ekki
bara að Keflvíkingar mæti á völlinn
heldur láti líka virkilega í sér heyra
– það mun skipta öllu máli í fram-
haldinu. Ég vil leggja áherslu á það.“
FRÍSTUNDIR.IS
Nýr upplýsingavefur um
frístundastarf á öllum Suðurnesjum
Samband sveitarfélaga
á Suðurnesjum
STYRKT AF
vinalegur bær
Keflavíkurfjölskyldan
mun þjappa sér saman
Sögusagnir um ósætti
Það er ekki hægt að sleppa Eysteini án
þess að spyrja hann að lokum hvort eitt-
hvað sé hæft í þeim gróusögum sem
ganga um að samband aðalþjálfara Kefla-
víkur sé stirt um þessar mundir.
„Við erum í það minnsta sammála um
að það vanti fleiri stig á töfluna. Samstarf
okkar hefur verið í gangi með miklum
ágætum síðan í október 2019 og síðan
þá held ég að allir séu sammála um að ár-
angurinn hjá Keflavík verið mjög ásættan-
legur. Gangurinn hefur hikstað aðeins
núna en slíkt þjappar mönnum bara saman
ef þeir hafa einhvern karakter.“
Engin virðing var borin fyrir Íslandsmeisturunum þegar þeir mættu á HS Orkuvöllinn í Keflavík. Ísak Óli Ólafsson hér í skallaeinvígi.VF-myndir Hilmar Bragi
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
Fimmtudagur 27. maí 2021 // 21. tbl. // 42. árg.sport
Stöðugar uppfærslur og úrslit leikja á vf.is