Mosfellingur - 24.06.2021, Page 8
Ingólfur Hrólfsson formaður
s. 855 2085 ihhj@simnet.is
Úlfhildur Geirsdóttir varaformaður
s. 896 5700 bruarholl@simnet.is
Margrét Ólafsdóttir gjaldkeri
s. 863 3359 margretjako@gmail.com
Snjólaug Sigurðardóttir ritari
s. 897 4734 snjolaugsig@simnet.is
Kristbjörg Steingrímsdóttir meðstjórnandi
s. 898 3947 krist2910@gmail.is
Jóhanna B. Magnúsdóttir 1. varamaður
s. 899 0378 hanna@smart.is
Þorsteinn Birgisson 2. varamaður
s. 898 8578 thorsteinn.birgis@gmail.com
StJÓrn FaMoS
Eldri borgarar • þjónustumiðstöðin eirhömrum • fram undan í starfinu
Skrifstofa félagsstarfsins er opin
alla virka daga kl. 13–16. Sími félags-
starfsins er 586-8014. Forstöðumaður
félagsstarfs eldri borgara í Mosfellsbæ
er Elva Björg Pálsdóttir tómstunda-
og félagsmálafræðingur, s: 698-0090.
Skrifstofa FaMos á Eirhömrum
er opin alla fimmtudaga frá kl. 15–16.
FélaG aldraðra
í Mosfellsbæ og nágrenni
famos@famos.is
www.famos.is
- Fréttir úr bæjarlífinu8
SÍðSUMarSFErð 11. ÁGÚSt
Á vegum FaMos og félagsstarfsins á Eirhömrum
Farið verður að Flúðum á mjög flottan veitingastað hjá Flúðasveppum
þar sem við fáum okkur að snæða af þeirra flotta sælkerahlaðborði,
kaffi á eftir. Aðrir drykkir ekki innifaldir. Síðan verður farið í hellaskoðun
í Landsveit en þar er mjög gott aðgengi. Þar verður boðið upp á kaffi og
meðlæti. Verð í þessa ferð er kr. 8.000 á mann.
lagt verður af stað frá Eirhömrum kl. 10, heimkoma milli kl. 17–18.
Skráningarblöð liggja frammi hjá félagsstarfinu. Einnig er hægt að skrá sig
hjá Elvu, forstöðumanni félagsstarfsins, í síma 586-8014 milli 13-16 virka
daga eða hringja í Snjólaugu, ritara FaMos, í síma 897-4734.
Halla og Berta bjóða
upp á útileikfimi
Halla Karen Kristjánsdóttir og Berta
Þórhalladóttir standa fyrir fjögurra
vikna útinámskeiði í sumar. Þær
bjóða stelpum/konum að hittast á
Hlégarðstúninu þriðjudaginn 29.
júní kl. 17 í fríum kynningartíma, án
allra skuldbindinga. Boðið verður
upp á fjölbreyttar æfingar með
tónlist, stuði og stemmingu. Síðan
hefst fjögurra vikna útinámskeið
þrisvar í viku. Mánudögum kl. 20
(eitt fell ásamt öndunaræfingum
og góðum teygjum), þriðjudögum
og fimmtudögum kl. 17 og þá
eru fjölbreyttar þol-, styrktar- og
liðleikaæfingar. Frekari upplýsingar
er hægt að fá í gegnum netfangið
utifjor@gmail.com.
Sunnudaginn 20. júní var útialtarið við
Esjuberg undir Kerhólakambi á Kjalarnesi
vígt af Biskupi Íslands. Fjölmenni var við
vígsluna og hátíðarbragur var yfir gestum
sem gæddu sér á kaffi og kleinum eftir at-
höfn í boði Sögufélagsins Steina og sóknar-
nefndar Brautarholtssóknar.
Hátíðleg athöfn á Kjalarnesi
Ásamt Biskupi Íslands þjónuðu próf-
astur Kjalarnessprófastsdæmis sr. Hans
Guðberg Alferðsson, sóknarprestur Reyni-
vallaprestakalls sr. Arna Grétarsdóttir og
sr. Ragnheiður Jónsdóttir sóknarprestur
Lágafellsprestakalls. Reynivallaprestakall
og Lágafellsprestakall mynda samstarfs-
svæði prestanna á svæðinu.
Auk þeirra þjónuðu sr. Gunnþór Inga-
son, fyrrverandi prestur þjóðmenningar,
en hann var sérlegur ráðgjafi keltneskrar
kristni við hönnun og gerð altarishringsins.
Hrefna Sigríður Bjartmarsdóttir formaður
Sögufélagsins Steina flutti upphafsorð.
Bjarni Sighvatsson, varaformaður Sögu-
félagsins Steina, las úr Kjalnesingasögu.
Bænir fluttu Björn Jónsson sóknarnefnd-
arformaður Brautarholtssóknar, Guðlaug
Kristjánsdóttir, ritari sögufélagsins, og
Sigríður Pétursdóttir sem bæði situr í
sóknarnefnd og í stjórn sögufélagsins á
Kjalarnesi.
Fermingardrengur úr Brautarholtssókn,
Jón Þórður Björnsson, bar sálmabók á alt-
arið, handbók bar Björn Jónsson sóknar-
nefndarformaður og prófastur færði fallega
áletraða Biblíu til altarisins.
Þá söng kór Reynivallaprestakalls við
athöfnina.
tveggja metra hár kross
Útialtarið er hlaðinn altarishringur úr
grjóti í anda keltneskrar kristni. Altaris-
steinninn er stór grágrýtissteinn staðsettur
fyrir miðjum hringnum. Krossinn er steypt-
ur um 2 m hár og festur niður í altarisstein-
inn.
Á krossinn eru festir fjörusteinar sem
börn á Kjalarnesi tíndu og gáfu til krossins.
Á krossinum eru einnig fjörusteinar frá eyj-
unum helgu við Bretlandsstrendur, Iona og
Lindisfarne. Þar stóðu hin fornu keltnesku
kirkjuklaustur og fræðasetur.
til minningar um fyrstu kirkju landsins
Hugmynd að útialtari fæddist í hjörtum
velunnara sögu og kristni. Fyrsta skóflu-
stunga var tekin 8. maí 2016 af Biskupi Ís-
lands. Sögufélagið Steini tók þá ákvörðun
um að reisa keltneskt altari til minningar
um fyrstu kristnu kirkju á Íslandi sam-
kvæmt Landnámabók.
Safnað hefur verið fyrir framkvæmdum
og hafa framlög einstaklinga, fyrirtækja og
þjóðkirkjunnar verið vegleg.
Við altarið munu eflaust fara fram hjóna-
vígslur og skírnir auk þess sem Sögufélagið
Steini og kirkjan munu áfram standa fyrir
kyrrðar- og helgistundum við altarið. Fólki
er bent á að hafa samband við sóknarprest
Reynivallasóknar eða formann Sögufélags-
ins Steina ef það hefur í hyggja að leita eftir
kirkjulegri athöfn við altarið.
Altarið vígt af biskupi Íslands • Sögufélagið Steini stendur á bak við framkvæmdina
Útialtarið við Esjuberg vígt
Fjölmennt við
vígslu á Kjalarnesi