Kaupfélagsblaðið - 01.12.1978, Qupperneq 5

Kaupfélagsblaðið - 01.12.1978, Qupperneq 5
Fréttir úr starfinu Haustfundur deildarstjóra og forstöðumanna Síðastliðin 5 ár hefur það orðið venja hjá Kaupfélaginu að halda fundi í nóvember með öllum deildarstjórnum, deildarstjórum og öðrum trúnaðarmönnum í kaupfélagi og hraðfrystihúsi. Hinn árlegi haustfundur var haldinn þann 12. nóvember sl. Kaupfélagsstjóri og framkvæmdastjóri hraðfrystihússins gerðu grein fyrir rekstri fyr- irtækjanna fyrstu 9 mánuði ársins. í skýrslu kaupfélagsstjóra kom fram að vörusala hafði aukist um 43% frá árinu áður og er það nægilegt til að halda í við verð- bólguna. Gert var upp með rúmlega 12 millj. kr. rekstrarhalla til 30/9 og er það heimingi meira en á sama tíma í fyrra. I lok síðasta árs hafði þó tekist að rétta hallann af, en mun erfiðar verður að ná því marki nú, sagði kaup- félagsstjóri. Framkvæmdastjóri hraðfrystihússins gaf skýrslu um rekstur hússins og taldi hann mjög erfiðan. Aflib.v. Aðalvíkurvar rúmlega 2.200 tonn og var það heldur minna en á sl. ári, enda tafðist skipið frá veiðum nokkurn tíma fyrr á árinu er settur var flotvörpubúnaður í skipið. Rætt var um fræðslu- og félagsmál og hafði þar framsögu hinn nýi félagsmálafulltrúi Sambandsins, Guðmundur Guðmundsson. Var almennur áhugi fundarmanna um að efla hin félagslegu tengsl milli félagsmanna með auknu fræðslustarfi, m.a. með útgáfu félags- blaðs. Fræðslufulltrui skýrði og frá þeim at- burðum er helst væru á döfinni hjá Samband- inu í þessum efnum. V erslunarnámskeið Þann 28. nóvember var haldið námskeið fyrir starfsfólk kaupfélagsins er vinnur að búðarstörfum. Námskeiðið var á vegum Sam- vinnuskólans og er liður í nýju fræðslustarfi á þessu sviði á vegum skólans. Áformað er að skólinn taki virkari þátt í starfsmenntun á vegum samvinnufélaganna en verið hefur. Hefur verið útbúið námsefni fyrir slíkt námskeiðshald í fjórum liðum er fjallar um hina ýmsu þætti í verslunarstörfum. Almenn ánægja var með námskeiðið en það sóttu 25 starfsmenn kaupfélagsins. I lok þess fengu menn viðurkenningarskjal fyrir þátt- töku í því. Á næsta vetri mun verða haldið annað slíkt námskeið. Frá hraðfrystihúsinu Þann 26. nóvember bilaði togspil b.v. Aðal- víkur og mun viðgerð taka allt að 3 vikum. Hafði þetta í för með sér að algjör hráefnis- skortur varð hjá hraðfrystihúsinu og varð því að segja verkafólki upp með löglegum fyrir- vara. Er þetta mjög bagalegt ekki síst á þessum tíma, er allir hafa þörf fyrir sitt svona rétt fyrir jólin. Könnun hefur verið gerð á stöðu hrað- frystihúsanna á Suðurnesjum, í því augnamiði að bæta stöðu þeirra. Starfshópur sá er fékk þetta verkefni telur í áliti sínu að fækka þurfi vinnslustöðvum og bæta aðrar sem fyrir eru. Er vonandi að þessi úttekt leiði til betri afkomu fiskiðnaðarins í heild á svæðinu. Jólatrésskemm tun Kaupfélag Kaupfélagsins verður haldin Suðurnesja á annan í jólum kl. 4 í Stapa. óskar ykkur öllum gleðilegra jóla Verið Góða og þakkar ágæt viðskipti velkomin skemmtun á árinu.

x

Kaupfélagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kaupfélagsblaðið
https://timarit.is/publication/1570

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.