Kaupfélagsblaðið - 01.12.1978, Blaðsíða 3
Verðkönnun
Samvinnuskólans
Dagana 6.-9. nóvember
stóð Samvinnuskólinn fyrir
könnun á útsöluverði í mat-
vöruverslunum víðs vegar
um land. Var verðkönnun
þessi framkvæmd af nem-
endum og kennurum Sam-
vinnuskólans.
Alls var verðkönnun fram-
kvæmd í 70 verslunum, þar
af 39 samvinnuverslunum og
31 einkaverslun.
Verðkönnunin náði til al-
gengustu tegunda matvöru
og hreinlætisvöru og var
ákveðið fyrirfram hvaða
vörutegundir yrðu kann-
aðar. Alls var kannað verð á
71 vörutegund. í verðkönn-
uninni fóru fram alls 4005
verðtökur eða 57,2 verðtök-
ur að meðaltali í hverri
verslun.
Fundið var út meðalverð á
hverri vörutegund með því
að leggja saman verðið á við-
komandi vörutegund í sér-
hverri verslun þar sem varan
fékkst og deila síðan í þá töl
með fjölda verslananna sem
varan fékkst í. Meðalverðið
var síðan sett 100 og var vísi-
tala á verði vörunnar í ein-
stökum verslunum reiknuð
út frá því.
Vöruverð á Suðurnesjum
(vöruverð í öllum verslunum
á Suðurnesjum = 100).
j
I