Morgunblaðið - 09.02.2021, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 2021
Opið mán - fim 8:30 – 17:00, fös 8:30 – 16:15
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
ÚTSALA
30-60% AFSLÁTTUR AF
VÖLDUM VÖRUM
fastus.is/utsala
„Vilhjálmur, ekki klóra
krítartöfluna.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að gefa allt sem þú
átt.
ÞÚ ERT ÓTTALEGA
VEIKLULEGT BLÓM
JÁ ER
ÞAÐ?!
EKKI EF ÞÚ VÆRIR MEÐ
OFNÆMI, VÆNI MINN!
NÝIR OFN-
HANSKAR?
NEI, BOX-HANSKAR – EF EINHVER SKYLDI
KVARTA YFIR KVÖLDMATNUM!
„ERU FISKARNIR MEÐ FÆÐUOFNÆMI
EÐA AÐRAR SÉRÞARFIR SEM ÞARF AÐ
UPPFYLLA?”
BEITUSALA
í Reykjavík í meira en hálfa öld þá
upplifi ég mig enn sem Ísfirðing og
mér hlýnar alltaf um hjartaræturnar
þegar ég kem vestur.“
Fjölskylda
Eiginkona Rúnars er Tamila
Gámez Garcell, f. 27.8. 1974, kennari í
Melaskóla. Þau búa á Sólvallagötu í
Vesturbæ Reykjavíkur. Foreldrar
hennar eru Angel B. Gámez Leyva, f.
29.7. 1951, logsuðumaður, búsettur í
Holguin á Kúbu og Mayra Garcell
Buedo, f. 7.9.1951, húsmóðir í Holguin.
Þau eru skilin. Fyrri eiginkona Rún-
ars er Inga Rósa S. Joensen, f. 18.6.
1953, leikskólakennari.
Börn Rúnars eru 1) Ylfa Mist, f.
31.3. 1974, sjúkraliði, búsett í Bolung-
arvík, eiginmaður hennar er Haraldur
Ringsted rafeindavirki; 2) Guðný, f.
18.11. 1980, myndlistarkona og skóla-
stjóri á Drangsnesi; 3) Vilberg Samúel
Rúnarsson Gámez, f. 8.5. 2007. Barna-
börn eru Björgúlfur Egill Pálsson, f.
9.11. 1994; Birnir Ringsted, f. 31.7.
2001; Baldur Hrafn Ringsted, f. 3.3.
2004 og Kári Markússon, f. 26.5. 2008.
Systkini Rúnars eru Sara J. Vil-
bergsdóttir, f. 2.8. 1956, myndlistar-
kona í Reykjavík; Bryndís Vilbergs-
dóttir, f. 8.7. 1959, sérfræðingur í hljóð-
og myndsafni Landsbókasafnsins, bú-
sett í Hafnarfirði; Svanhildur Vil-
bergsdóttir, f. 12.10. 1964, mynd-
listarkona og kennari í Reykjavík.
Foreldrar Rúnars: Hjónin Vilberg
V. Vilbergsson, f. 26.5. 1930, hárskeri
og tónlistarmaður, og Guðný Magnús-
dóttir, f. 17.3. 1929, d. 3.2. 2017, hús-
móðir. Vilberg býr á Ísafirði þar sem
þau Guðný bjuggu öll sín búskaparár.
Rúnar
Hartmann
Vilbergsson
Oddný Ólafsdóttir
húsfreyja á Vestdalseyri, f. í
Berjanesi undir Eyjafjöllum
Guðmundur Einarsson
útvegsbóndi á Vestdalseyri í
Seyðisfirði, f. í Vestmannaeyjum
Júlíana Guðmundsdóttir
húsmóðir á Seyðisfirði
Magnús Símon Guðfinnsson
bátasmiður á Seyðisfirði
Guðný Magnúsdóttir
húsmóðir á Ísafirði
Guðný Einarsdóttir
húsfreyja á Seyðisfirði, f. í Reykjavík
Guðfinnur Jónsson
húsasmiður og útvegsbóndi á Seyðisfirði,
f. í Vestra-Fíflholti í Landeyjum
Oddný Kristjánsdóttir
húsfreyja í Straumfjarðartungu,
f. á Arnarstapa
Guðmundur Jóhannesson
bóndi í Straumfjarðartungu í
Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi,
f. á Hóli í Staðarsveit
Jóhanna Steinunn Guðmundsdóttir
húsmóðir á Flateyri
Vilberg Jónsson
vélsmiður á Flateyri
Marsibil Kristjánsdóttir
húsfreyja á Kirkjubóli, f. á Veðrará
Jón Guðmundsson
smiður og bóndi á Kirkjubóli í Valþjófsdal,
Önundarfirði, f. á Grafargili
Úr frændgarði Rúnars H. Vilbergssonar
Vilberg Valdal
Vilbergsson
hárskeri og
tónlistarmaður á Ísafirði
Ásunnudag skrifaði SigurlínHermannsdóttir á Boðn-
armjöð: „Hér skín sólin og smáfugl-
arnir tísta sem aldrei fyrr“:
Vaknar fagur vetrardagur
vænkast hagur okkar brátt.
Fátt sem plagar, fæðist bragur
fuglaþvaga syngur dátt.
Ólafur Stefánsson býr í Biskups-
tungum og skrifaði á laugardag brag-
hendugrey með þessari skýringu:
„Snjóleysi sunnanlands og vestan og
jörð rifnar og springur með hljóðum í
frostbitrunni“:
Nauða vindar, norpar jörð sem nakin
kona,
ég sem er á vor að vona
vil það sé ei lengi svona.
Friðrik Steingrímsson sendi
kveðju úr Mývatnssveit:
Fyrir norðan felur jörðu fönnin hvíta.
Syðra elstu menn ei muna,
meiri og verri sinubruna.
Ólafur sendi til baka:
Satt er það sem sagt var hér
af sinubruna ljótum,
en skömm hvað lítið skáldað er
um skíðasnjó í Fljótum.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir veltir
vöngum:
Þó ég sé bæði hógvær og hæg
hugsa ég stundum að
ég verði á endanum virt og fræg
en veit ekki fyrir hvað.
Guðmundur Arnfinnsson fléttar
úr gömlu stefi limruna „Bakkabróð-
ir“:
Oft glingraði Gísli við stútinn
og gerðist af drykkjuskap þrútinn,
hann flæktist á bar
og fullur sat þar,
uns faðir hans kallaði á kútinn.
Og hér er „Hestalimra“ eftir Guð-
mund:
Gráni var enginn góðhestur,
geðstirður eins og flóðhestur,
pratinn og þrár
og par ekki frár,
en Pegasus vængjaður ljóðhestur.
Ingólfur Ómar Ármannsson yrk-
ir:
Þegar neyðin ógnar önd
auðnu deyðir treginn
þá er leiðin löngum vönd
lífs um breiða veginn.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir svar-
ar:
Eg veit nú að mjói vegurinn
er vegur til efsta dags.
En veit líka að breiði vegurinn
vísar á hamingju strax.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vel ort á fögrum vetrardegi