Morgunblaðið - 15.02.2021, Síða 1
M Á N U D A G U R 1 5. F E B R Ú A R 2 0 2 1
Stofnað 1913 38. tölublað 109. árgangur
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS | www.fi.is
Sjáumst á fjöllum
HLEÐSLUSTÖÐVAR
STANDA Í VEGI GANG-
ANDI VEGFARENDA
BLÓM HINS ILLA
BREYTT ÁSÝND
FRAMBOÐSLISTA
SAMFYLKINGAR
DÚPLUM DÚÓ 29 LOGI HREINSAR TIL 14STAURAR Á STANGLI 6
Reykjavíkurborg ætti að beita hvötum
eða veita ívilnanir til þeirra fyrirtækja
sem setja sér græna samgöngustefnu.
Þetta segir Hildur Björnsdóttir, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem
hyggst leggja fram tillögu þessa efnis í
borgarstjórn innan tíðar. Í grænu
stefnunni gætu verið möguleikar á
fjarvinnu eða sveigjanlegum vinnu-
tíma, enda myndu fyrirtækin þannig
leggja sitt af mörkum við lausn sam-
gönguvandans með því að draga úr
umferð.
Orðræðan til betri vegar
Aðeins 17% aðspurðra í viðhorfs-
könnun treystu borgarstjórn; minnst
allra stofnana samfélagsins. „Svo
kjörnir fulltrúar geti fengið skýrt um-
boð til að leiða mikilvægar breytingar í
borginni þarf traust. Við verðum því að
ræða starfsumhverfið og færa orðræð-
una til betri vegar,“ segir Hildur. »10
Hvatar til
að draga
úr umferð
Kemur til greina
að ívilna fjarvinnu
Albana á fertugsaldri var ráðinn
bani fyrir utan heimili sitt í Rauða-
gerði í Reykjavík aðfaranótt sunnu-
dags. Hann lætur eftir sig íslenska
konu og ungt barn. Einn er í haldi
lögreglu vegna málsins, erlendur
karlmaður á fertugsaldri. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
tengist málið að líkindum valdabar-
áttu í undirheimum ólöglegra vímu-
efna. Áverkar eftir skotvopn fund-
ust á líki mannsins.
Innan lögreglu er óttast að árás-
in kunni að leiða til hefndarað-
gerða. Átök eru sögð vera um yf-
irráð yfir fíkniefnamarkaði í
undirheimum um þessar mundir,
vegna valdatóms sem myndaðist
þegar stórtækur íslenskur fíkni-
efnasali tók að draga sig í hlé fyrir
skömmu.
Rannsókn á frumstigi
Í samtölum við Morgunblaðið
sagðist lögregla ekkert geta tjáð
sig um málið umfram það sem þeg-
ar hefði komið fram í fréttatilkynn-
ingum. Því fékkst ekki svarað hvort
óskað yrði eftir gæsluvarðhaldsúr-
skurði yfir manninum sem er í haldi
lögreglu.
Íbúar í Rauðagerði ræddu marg-
ir við mbl.is í gær og sögðust þeir
allir hafa einskis orðið varir. Engir
skothvellir hefðu heyrst í götunni
og velti einn nágranni því upp hvort
hljóðdeyfir hefði mögulega verið
notaður við verknaðinn.
Húsið þar sem maðurinn fannst
látinn skipti um eigendur á síðasta
ári og segja íbúar í kring að mikið
hafi verið um grunsamlegar manna-
ferðir við húsið síðan. Nágrannar
sögðust ekki kannast við þá sem
keypt hefðu húsið. Rannsókn máls-
ins hefur forgang hjá lögreglu.
Uppgjör í undirheimum
Manndráp í Rauðagerði á sunnudagsnótt Einn í haldi
Lögregla óttast hefndaraðgerðir Nágrannar einskis varir
MEinn í haldi eftir morðið »2
Sjóður sem rekinn er af bandaríska
risabankanum Goldman Sachs hefur
samið um kaup á meirihluta hluta-
fjár í Advania.
Til stóð að skrá Advania á hluta-
bréfamarkað í Stokkhólmi en undir-
búningsvinna leiddi til þess að
samningar náðust við Goldman og
var því hætt við skráningu.
Stjórnendur Advania segja við-
skiptin viðurkenningu á góðum ár-
angri fyrirtækisins en síðastliðin
fimm ár hefur rekstur Advania vax-
ið um rösklega 20% ár hvert.
Ægir Már Þórisson, forstjóri
Advania á Íslandi, segir aðkomu
Goldman meðal annars kunna að
vera til marks um vaxandi áhuga
bandarískra fjárfesta og sjóða á
norrænum tæknifyrirtækjum og
nefnir máli sínu til sönnunar sölu
LS Retail og Ueno til bandarísku
fyrirtækjanna Aptos og Twitter
fyrr á þessu ári. „Fleiri horfa til
Skandinavíu og veita því eftirtekt
að fyrirtæki í þessum heimshluta
eru mjög framarlega á sínu sviði,“
segir hann. »12
Goldman Sachs
fjárfestir í Advania
Stjórnendahópur og stefna óbreytt
Bolludagurinn er í dag og landsmenn munu af
því tilefni sporðrenna hundruðum þúsunda af
bollum. Margir tóku forskot á sæluna í gær og
gæddu sér á bollunum úr bakaríum, þar sem
unnið var á vöktum alla helgina. Vatnsdeigs-
bollur eru vinsælt bakkelsi en margt annað er þó
í boði, eins og sjá mátti í Mosfellsbakaríi um
helgina. Þar var ys og þys, viðskiptavinir margir
og starfsfólk með sóttvarnir alveg á hreinu. »11
Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir
Bolluflóðið
hellist yfir
landsmenn