Morgunblaðið - 15.02.2021, Síða 20

Morgunblaðið - 15.02.2021, Síða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. FEBRÚAR 2021 ✝ Birgir Lúð-víksson fædd- ist í Reykjavík 3. maí 1937. Hann lést á heimili sínu 3. febrúar 2021. Foreldrar Birgis voru Lúðvík Thor- berg Þorgeirsson kaupmaður, f. 2. nóvember 1910, d. 27. desember 1996, og Guðríður Hall- dórsdóttir, f. 4. nóvember 1911, d. 11. október 1997. Birgir átti tvo bræður: Halldór, f. 31. október 1930, d. 22. ágúst 2009, og Þorgeir, f. 20. apríl 1943. hennar maður Steingrímur Gautur Pétursson, þau eiga þrjú börn. Barnabarnabörnin eru tólf. Birgir var deildarstjóri hjá Sjóvá-Almennum tryggingum þar til hann lét af störfum vegna aldurs. Birgir stundaði knattspyrnu og handknattleik á sínum yngri árum hjá knatt- spyrnufélaginu Fram í Reykjavík. Hann sinnti mikið félagsstörfum fyrir Fram og var formaður knattspyrn- udeildar 1960-1961 og for- maður handknattleiksdeildar 1963-1969 og 1976-1981. Þá var hann formaður aðal- stjórnar 1986-1989 og heið- ursfélagi frá 2003. Birgir var einnig félagi í Frímúrararegl- unni. Útför Birgis fer fram frá Bústaðarkirkju í dag, 15. febr- úar 2021, og hefst athöfnin kl. 13:00. Eftirlifandi eig- inkona Birgis er Helga Brynjólfs- dóttir, f. 30. des- ember 1936. Börn þeirra eru: 1) Við- ar, f. 1958, d. 6. maí 2004, hans kona Unnur Jóns- dóttir, f. 1959, þau eignuðust fjóra syni. 2) Lúðvík, f. 1961, hans kona Ásdís Anna Sverrisdóttir, f. 1962, þau eiga þrjú börn, þau skildu. 3) Sigríður, f. 1965, hennar maður Brynjar Gauti Sveinsson, f. 1963, þau eiga þrjú börn. 4) Guðríður, f. 1966, Í dag kveð ég tengdaföður minn og vin Birgi Lúðvíksson eftir mjög stutt veikindi sem báru fljótt að. Ég er búinn að þekkja Birgi síðan ég var 17 ára gamall, eða í fjörutíu ár, síðan ég og Sigga mín byrjuðum að vera saman. Þær eru ófáar minningarnar sem hrannast upp. Góðar minningar úr Hval- firði þar sem við fjölskyldan vorum öllum stundum yfir sum- arið í Framheimum, sumarbú- stað og griðastað þeirra hjóna Helgu og Birgis. Þar var oft kátt á hjalla og mikil gleði en Birgi þótti ekkert skemmtilegra en að hafa allt sitt fólk í kring- um sig í sveitinni, gefa öllum vel að borða og drekka, þá var hann glaður. Verslunarmanna- helgarnar eru mér mjög minn- isstæðar en þar hef ég verið nánast öll ár frá því bústaðurinn var tekinn í notkun árið 1983. Alltaf mikil gleði og fjör og oft- ast var ég með alla mína fjöl- skyldu þar en börnin mín og barnabörn hafa alltaf unað sér vel í sveitinni hjá afa og ömmu. Birgir var Framari í húð og hár eins og allir vita en tók mér strax vel þótt ég hefði alist upp í Val. Ég er nú sennilega meiri Framari í dag enda annað mjög erfitt eftir að hafa verið innan um allt þetta frábæra fólk sem er í Fram-stórfjölskyldunni. Þegar árin liðu náðum við Birg- ir mjög vel saman og ég fann að hann hafði tekið mig undir sinn verndarvæng, ekki síst eftir að ég missti föður minn ungur maður. Ég minnist allra þeirra frábæru stunda sem við áttum saman í bústaðnum með Vidda, Lúlla og Steingrími við smíðar og fleira sem þurfti að gera enda var alltaf verið stækka, breyta og bæta. Þetta eru minn- ingar sem streyma nú fram og gleymast aldrei. Birgir var afar traustur mað- ur og gott að leita til, hann var alltaf tilbúinn til að hjálpa ef þess var óskað. Birgir vildi allt- af hafa allt sitt á hreinu og vildi aldrei skulda neinum neitt. Helst vildi hann vera búinn að borga fullt fyrir verk þótt rétt hafið væri. Það lýsir honum vel. Með söknuði kveð ég þig, hafðu þökk fyrir allt og allt. Elsku Helga mín, guð gefi þér styrk í sorginni. Þinn tengdasonur, Brynjar Gauti. Ég var svo lánsöm að koma í fjölskyldu Helgu og Birgis ung að árum þegar ég kynntist elsta syni þeirra, Viðari eða Vidda eins og hann var alltaf kallaður. Það var mikið gæfuspor. Ég kynntist Birgi tengda- pabba hægt og rólega næstu ár- in enda má segja að Birgir hafi ekki verið maður margra orða. Engu að síður hafði hann sterka lífssýn og var afar mikill fjöl- skyldumaður. Fjölskyldan var alltaf sett í fyrsta sæti. Birgir var einstaklega barngóður og reyndist strákunum okkar alltaf vel, hvort sem það var að greiða fyrir ökukennslu og bílpróf, lána bíl eða að læðupokast með peningagjöf svo að lítið bæri á, svo eitthvað sé nefnt. Það var afi Birgir, alltaf reiðubúinn að gefa. Á mínum námsárum reyndust Birgir og Helga okkur hjónunum ómæld stoð og stytta. Þá eru margar ógleymanlegar stundirnar í sumarbústað tengdaforeldra minna í Kjósinni en það má segja að þar hafi afi Birgir notið sín best. Þetta var lífið. Íþróttir áttu hug hans og hjarta, enda fæddur og uppal- inn á miklu Framaraheimili. Það voru allir Framarar í fjöl- skyldunni í huga Birgis og mér var það fljótt nokkuð ljóst. Hann hvatti öll börnin og barnabörnin til dáða í íþróttum, aðallega þó í hand- og fótbolta. Enski boltinn spilaði mikla rullu í hans lífi og um langt árabil var „tippað“ fyrir hverja helgi og fylgst grannt með úrslitum. Með síðustu samræðum mínum við Birgi heima í stofu voru um væntanlegan úrslitaleik Dana og Svía á heimsmeistaramóti í handknattleik. Sem svo oft áður hafði hann sterkar skoðanir á því hverjum hann ætlaði sig- urinn. Birgir féll frá eftir stutt og erfið veikindi en kvaddi í faðmi fjölskyldunnar heima á Sléttu- vegi, sem ég veit að var hans æðsta ósk. Kæri tengdapabbi, bestu þakkir fyrir lífsfylgdina í hart- nær fjörutíu og fimm ár. Takk fyrir að hafa tekið svona vel á móti mér inn í fjölskylduna allt frá fyrsta degi og fyrir allt okk- ar lífshlaup. Fyrir það er ég æv- inlega þakklát. Unnur. Elskulegur tengdafaðir minn Birgir Lúðvíksson verður til hvíldar borinn í dag eftir stutta en snarpa baráttu við illvígan sjúkdóm. Þrátt fyrir sáran söknuð er mér þakklæti í huga. Þakklæti fyrir að vera boðinn velkominn í sterka og samhenta fjölskyldu. Þakklæti fyrir að hann var börnum sínum og tengdabörnum klettur og barnabörnum sínum sá afi sem hann var þeim öllum. Honum var umhugað um að börn hans og barnabörn skorti aldrei neitt það sem honum fannst nauðsyn- legt í þeirra daglega lífi. Það verður aldrei að fullu metið. Eftirsjá okkar allra er mikil en allar góðu minningarnar vega mest og þær geymum við stolt um allan okkar aldur. Hugurinn reikar ósjálfrátt upp í Hvalfjörð í fjölskyldupara- dísina Framheima, sem þau hjónin Birgir og Helga byggðu frá grunni. Þetta athvarf var tengdapabba allt og ekkert veitti honum meiri gleði en þeg- ar fjölskyldan var þar öll saman komin og barnabörnin og barnabarnabörnin skottuðust þar út um allt. Myndin sem kemur upp í hugann er af stolt- um og hæglátum manni sem stendur á pallinum í Framheim- um og fylgist með öllum börn- unum að leik og veltir um leið fyrir sér hverju þarf næst að dytta að á landareigninni. Ég geymi þessa mynd og minn- inguna um örlátan og ljúfan mann. Hér fór geðprúður og grandvar maður, sem var vel liðinn hvar sem hann kom. Hann var og er mér og mínum börnum mikil og góð fyrirmynd. Elsku Helga, Lúlli, Sigga og Gauja mín, ykkar missir er mik- ill en þið eigið öll fjársjóð af góðum minningum sem þið varðveitið og við munum rifja upp saman um ókomin ár. Steingrímur Gautur Pétursson. Að sitja og skrifa minning- argrein um afa Birgi er skrítið, ekki eitthvað sem ég bjóst við að gera alveg strax, enda voru veikindin afar stutt. Eftir sitja margar minningar og söknuðurinn er mikill. Ég er svo lánsöm að hafa fengið tæki- færi til að umgangast ömmu og afa mikið og eyða mörgum gleðistundum með þeim. Afi minn var ekki maður margra orða, enda sagði hann oft að hann þyrfti ekki að tala, við frænkurnar sæjum yfirleitt um það, sem var alveg hárrétt hjá honum. Í kringum okkur fjölskylduna er aldrei dauð stund og fannst afa skemmtileg- ast að fá okkur til sín í Fram- heima, þar sem honum leið best, hlæja með okkur og hrista hausinn yfir vitleysunni í okkur. Ég hef mjög gaman af því að taka myndir af fólkinu mínu og afi var orðinn vanur því að ég tæki upp símann til að smella af og heyrðist þá oft í honum: „Jæja, Bjarnleifur ljósmyndari mættur.“ Þessar myndir eru dýrmætar minningar í dag. Amma og afi skelltu sér oft til Tenerife á haustin, þar sem þau nutu þess vel að sleikja sól- ina og hafa það huggulegt með kunningjum sínum. Eitt árið skellti ég mér með þeim í viku. Sú ferð er mjög eftirminnileg og með þeim skemmtilegri sem ég hef farið í. Amma og afi voru samrýmd hjón og mikill kærleikur þeirra á milli. Missir ömmu er mikill. Elsku afi minn, þín verður minnst með gleði í hjarta. Hvíl í friði. Þín Gerður Anna. Það eru ótrúlega margar fal- legar stundirnar sem kvikna í huga mér þegar ég hugsa til afa míns. Þegar við kveðjum hann í dag vekja allar þessar minn- ingar hjá mér hlýju og þakk- læti. Ótal hittinga í Hvassaleit- inu eins og á bollukaffi, 17. júní og margra jóla- og áramóta- veislna. Við afi Lúlli í Sigtúni vorum alltaf saman inni til að byrja með enda álíka hræddir við flugeldana sem án undan- tekningar voru keyptir af Fram. Enda Fram sterkur þráður í sögu fjölskyldunnar. Afi tók virkan þátt í því starfi í gengum allt sitt líf, bæði sem leikmaður og í félags- og for- mennskustarfi og var á end- anum kosinn heiðursfélagi Fram. Sumarvin fjölskyldunnar í Hvalfirðinum bar auðvitað heitið Framheimar og í mínum huga var það alltaf Paradís. Ótal góðar stundir og minning- ar frá því að ég var lítill patti sitjandi í hjólbörum afa míns við að planta trjám, seinna að útfæra fótboltavelli, búa til laut- ir, safna í verslunarmannahelg- arbrennu og taka til hendinni og grisja í seinni tíð. Mér er sérstaklega minnisstætt árið þegar ég var að klára verkfræð- ina og starfaði hjá byggingar- fulltrúa með námi. Ég hafði rúman tíma í hádegismat og varð fastagestur í Hvassaleit- inu. Amma lagaði súpu, afi keypti bakkelsi og fréttir dags- ins og heimsmálin voru reifuð áður en vinnan tók aftur við. Síðar hóf ég störf hjá trygging- arfélaginu Sjóvá á sama stað og afi hafði starfað og forvera þess Almennum tryggingum. Það voru mikil meðmæli fyrir mig að vera barnabarn afa míns sem naut mikillar virðingar og hylli fyrir sín störf fyrir félagið. Afi var stoð og stytta við fráfall föður míns sem eðli málsins samkvæmt tók sinn toll af fjöl- skyldunni allri. Það hefur auð- vitað verið þungt að missa elsta barnið sitt eins og amma og afi máttu reyna, en í gegnum það erfiða ferli reyndust þau okkur fjölskyldunni afar traust. Þau hjálpuðu mikið til í uppvexti okkar bræðra og studdu mig og strákana í námi. Afi var ekki maður margra orða en hlýr var hann og tilfinningaríkur, þó að menn af hans kynslóð væru ekki mikið að bera tilfinningar sínar á torg. En oft gat það ver- ið við gleðileg tíðindi eða stórar stundir í lífi okkar, að maður sá stundum á bak honum eitt augnablik. Hann sneri sér við, þerraði augun og saug lítið eitt upp í nefið. Svo labbaði hann rólega til baka. Við fundum sterkt fyrir því að hann var afar stoltur af okkur. Margar af þeim sögum sem afi sagði mér hef ég verið að rifja upp með börnum mínum. Á dögunum gengum við fjölskyldan úr Hvassaleitinu niður í bæ fram hjá Sjómannaskólanum og rifj- aðist þá upp fyrir mér að afi hafði sagt mér frá því þegar Framvöllurinn gamli hafði verið nýttur undir síldargeymslu á síldarárunum. Syni mínum 11 ára fannst þetta eins og æv- intýri líkast og á dánarbeði afa sagði ég honum frá upplifun Garps okkar af sögunni af fót- boltavellinum og síldartorfun- um. Þá eins og svo oft áður sá ég svo vel stoltið hjá gamla manninum. Ég minnist afa míns af mikilli hlýju og virðingu og er þakk- látur fyrir allar góðu stundirnar og minningarnar. Hvíl í friði. Birgir Viðarsson. Elsku afi okkar. Við eigum ótrúlega margar fallegar og skemmtilegar minningar um þig, það sem stendur upp úr er líklegast allar sumarbústaðar- ferðirnar í fallega Hvalfjörðinn. Þú varst alltaf svo sæll í sveit- inni í lopapeysunni með afahatt- inn og hafðir svo gaman af því að fá öll börnin og barnabörnin þín í heimsókn yfir helgi. Þú varst alltaf svo góður og gerðir allt fyrir barnabörnin þín, skutlaðir okkur fram og til baka og svo teygðir þú þig reglulega í skyrtuvasann og dróst upp peningaseðlana sem þú laumaðir til okkar og reyndir að láta lítið fara fyrir því. Við söknum þín og erum Birgir Lúðvíksson Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, PÉTURS MAACK PÉTURSSONAR, fv. bifreiðastjóra, Lómasölum 4, sem var jarðsunginn 15. janúar. Hlýjar kveðjur til ykkar allra. Bjarndís Markúsdóttir Þórhildur Þöll Pétursdóttir Birgir Bragason Reynir Freyr Pétursson Eva Arnfríður Aradóttir og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, PÁLL RAGNARSSON tannlæknir, Sauðárkróki, verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju föstudaginn 19. febrúar klukkan 14:00 að viðstöddum nánustu ættingjum og vinum. Útförinni verður streymt og má finna virkan hlekk á facebooksíðu Sauðárkrókskirkju og á mbl.is/andlát. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð Rúnars Inga Björnssonar í Blóma- og gjafabúðinni á Sauðárkróki. Margrét Steingrímsdóttir Ragnar Pálsson Helga Margrét Pálsdóttir Jón Þorsteinn Oddleifsson Anna Rósa Pálsdóttir Gunnar Valur Stefánsson og barnabörn Ósjaldan hef ég leitt hugann að því hvað tónlistarkenn- arar eru í mikilli áhrifastöðu gagnvart nemendum sínum. Oft eru þeir eina utanað- komandi fullorðna manneskjan í lífi barns sem talar við það sem jafningja, leiðbeinir, nærir og fræðir. Ég var svo heppin að fá Hrönn Geirlaugsdóttur sem kennara í Tónmenntaskólanum og segja má að hún hafi verið ör- Hrönn Geirlaugsdóttir ✝ Hrönn Geir-laugsdóttir fæddist 11. sept- ember 1959. Hún lést 20. janúar 2021. Útför Hrann- ar var gerð 5. febr- úar 2021. lagavaldur í mínu lífi. Við fréttirnar af ótímabæru fráfalli Hrannar reikar hugurinn til baka og ljúfar minningar birtast ljóslifandi fyrir hugskotssjón- um. Minningar um brosmilda glæsilega konu, vinkonu, sem kom fram við nem- endur sína af ein- stakri umhyggju, virðingu og natni. Þess verð ég eilíflega þakklát að hafa fengið að vaxa og dafna undir hennar handleiðslu. Með söknuð í hjarta votta ég Frey og fjölskyldu hans mína dýpstu samúð. Guðný Þóra Guðmundsdóttir. Þann 11. febrúar 2021 var útför elsku Ásdísar frænku sem kvaddi svo snögglega þann 1. febrúar síðastliðinn eftir stutt veikindi. Ég hitti Ásdísi síðast í maí á síðasta ári í útskriftarveislu hjá honum Mána okkar og þar var hún svo glöð og hress, brosandi út að eyrum og hamingjusöm. Ekki óraði mig fyrir því að níu mánuðum seinna myndi ég vera staddur í útför hennar. Ásdís frænka var ein sú dásamlegasta kona sem ég hef verið samferða í gegnum lífið, alltaf glöð og kát og ég man ekki eftir henni öðruvísi en hlæjandi og bros- andi. Þegar ég var krakki var alltaf tilhlökkun að fara í heim- Ásdís Hannesdóttir ✝ Ásdís Hann-esdóttir fædd- ist 23. september 1941. Hún lést 1. febrúar 2021. Útför Ásdísar fór fram 11. febr- úar 2021. sókn til hennar og Gunna og voru þau alltaf jafn glöð að fá mann í heim- sókn eða gistingu. Fjölskyldan var henni allt í lífinu og hún var til margra ára klett- urinn sem hélt okkur saman, t.d. með þorláksmessu- hittingnum þar sem hún hóaði öllum saman í nokkra klukkutíma, þetta gerði hún til margra ára og var orðið partur af jólahátíðinni, mjög svo þótti mér vænt um þessar stundir. Ég er svo óendanlega þakklátur fyrir að hafa fengið að hitta hana þarna í maí á tím- um Covid þegar maður allt í einu fattaði að það sem manni þótti sjálfsagt hér áður var ekki lengur þannig og heim- sóknir takmarkaðar. Hvíl í friði elsku Ásdís og takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig. Hlynur Baldursson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.