Morgunblaðið - 15.02.2021, Page 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. FEBRÚAR 2021
vinnuföt fást einnig í
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
„HUNDURINN ÞINN ÁKVAÐ AÐ VERA
ÁFRAM HJÁ OKKUR EFTIR AÐ ÞÚ LÆTUR
AF STÖRFUM.”
„SÍÐAST ÖSKRAÐIR ÞÚ ÞAÐ!”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að sakna kossanna og
knúsanna.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
NAFNIÐ ÞITT ER
FRÁBÆRT, LÍSA
LÍÍSSAA
LÍSA, LÍSA, LÍSA, LÍSA, LÍSA,
LÍSA, LÍSA, LÍSA, LÍSA, LÍSA,
LÍSA, LÍSA, LÍSA, LÍSA, LÍSA,
ÞÁ SAGÐI HÚN MÉR
AÐ HALDA KJAFTI
VÁ! ÉG HELD AÐ VIÐ SÉUM BÚNIR AÐ
UPPGÖTVA NÝJA DÝRATEGUND.
VEISTU HVAÐ ÞAÐ ER ÆÐISLEGT!
JÁ! ÞÁ ÞURFUM VIÐ EKKI AÐ BORÐA
KJÚKLING FJÓRÐA DAGINN Í RÖÐ!
SEGÐU
„grettir”
úrskarandi námsárangur. Einnig
hlaut hún viðurkenningu frá Akur-
eyrarbæ fyrir mikilvægt framlag á
sviði menningar- og félagsmála.
Helstu áhugamál Guðlaugar eru
tónlist, leiklist og bóklestur. „Íslenski
hesturinn fangaði mig í gegnum
yngsta barn mitt, Sigrúnu, og voru
hestar og hestaíþróttir líf mitt og
yndi um árabil þar sem ég fylgdist
með Sigrúnu á þó nokkrum hesta-
mannamótum innan lands og utan.
Ég er núna að skrifa ættarsögu
mína, og birtist grein eftir mig í bók-
inni Raddir – annir og efri ár sem
kom út í fyrra.“
Fjölskylda
Eiginmaður Guðlaugar er Brynjar
Skarphéðinsson, f. 18.11. 1931, skóg-
ræktarfræðingur. Þau eru búsett á
Skálateigi 1 á Akureyri. Foreldrar
Brynjars voru hjónin Laufey
Tryggvadóttir, f. 5.4. 1911 d. 28.12.
1997, kaupmaður, og Skarphéðinn
Ásgeirsson, f. 3.3. 1907, d. 22.9. 1988,
kaupmaður. Þau voru búsett á Akur-
eyri.
Börn Guðlaugar og Brynjars eru 1)
Harpa, f. 5.11. 1957, leikskólastjóri í
Reykjavík. Börn hennar eru Brynjar
Már Magnússon, f. 1980, Tinna Dögg
Magnúsdóttir, f. 1985, Elsa Lind
Austfjörð, f. 1993, og Kolfinna Mist
Austfjörð, f. 1996; 2) Hermann Ágúst,
f. 15.6. 1960, viðskiptafræðingur á
Akureyri. Maki: Ragna Gerður Jóels-
dóttir lögfræðingur. Dóttir Her-
manns er Guðlaug, f. 1981; 3) Sigrún
María, f. 27.8. 1973, lögfræðingur í
Vermont í Bandaríkjunum. Börn
hennar eru Kamila Brickner, f. 2010,
og Tristan Brickner, f. 2012.
Bróðir Guðlaugar var Halldór Her-
mannsson, f. 14.1. 1931, d. 3.4. 2009,
tæknifræðingur í Svíþjóð.
Foreldrar Guðlaugar voru hjónin
Ágústa Tómasdóttir, f. 3.8. 1906, d.
3.4. 2001, saumakona í Vík í Mýrdal,
síðast búsett á Akureyri, og Her-
mann Einarsson, f. 27.1. 1903, d. 6.3.
1941, bifreiðarstjóri í Vík í Mýrdal.
Guðlaug
Hermannsdóttir
Margrét Árnadóttir
bóndi áArngeirsstöðum
Jón Erlendsson
bóndi áArngeirsstöðum
María Jónsdóttir
bóndi áArngeirsstöðum í
Fljótshlíð og Móakoti í Garðahverfi
Einar Sigurðsson
bóndi áArngeirsstöðum og í Móakoti
Hermann Einarsson
bifreiðarstjóri í Vík í Mýrdal
Helga Einarsdóttir
bóndi á Fagurhóli
Sigurður Einarsson
bóndi á Fagurhóli í
Austur-Landeyjum
Ingibjörg Einarsdóttir
bóndi í Breiðuhlíð í Mýrdal
Jón Jónsson
bóndi og sjómaður í Breiðuhlíð
Margrét Jónsdóttir
húsmóðir og tóvinnukona í Vík í Mýrdal
Tómas Jónsson
tómthúsmaður í Vík í Mýrdal
Hólmfríður Jónsdóttir
bóndi í Skammadal
Jón Tómasson
bóndi í Skammadal í Mýrdal
Úr frændgarði Guðlaugar Hermannsdóttur
Ágústa Tómasdóttir
saumakona í Vík í Mýrdal
Meðan við vorum á þingi samanSighvatur Björgvinsson og
Hjálmar Jónsson og ég samgöngu-
ráðherra sendi Sighvatur Hjálmari
bréf þar sem stóð: „Þótti mörgum
eigi til snimma um slíkan höfðingja
sem Halldór var, at um hann yrðu
kveðnar vísur dróttkvæðar“ og kvað:
Blöndal stár við Blöndu,
blandar vín fyr’sína
gesti og gistivini,
gefst þat best þeim flestum.
Skærum hvössum sker’ann,
skrautlegt band at vanda.
Bætir enn umb betr,
borðaklippr fyr’norðan.
Hjálmar svaraði og orti í tilefni af
því að Ingibjörg Sólrún borgarstjóri
og Halldór samgönguráðherra vígðu
í sameiningu Gullinbrú:
Halldór í háu veldi
hallar fram gráum kolli,
greppur á góðum jeppa
geysist um vegaleysur.
Yrkinga mörg sjást merki,
mæringur bregður skærum.
Grafarvogs-Gullinbrúva
gengur til Ingibjargar.
Sigurlín Hermannsdóttir yrkir á
Boðnarmiði:
Hún Vanda er sérlega’ að vanda sig
sem vefgyðja ætlar að standa sig.
Með draumana stóra
og fylgjendur fjóra
sig áhrifavald telur Vanda Sig.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir yrkir:
Einar var útigangsróni
og yfirleitt hálfgerður dóni.
en vorkvöldin löng
var hann ljúfur og söng
lof sínu farsældar Fróni
Einar var alltaf á róli
eða hímdi í skjóli.
Í febrúar fór
hann að finna sér bjór
og varð úti á Arnarhóli.
Eggert J. Levy yrkir um „Ljósið
bjarta“:
Ljósið bjarta lifir skært
logar sem sagt betur.
Láttu ætíð loftið tært
lýsa þér í vetur
Ég fékk ágætan póst frá Guð-
mundi Ó. Guðmundssyni á dögunum,
þar sem hann segir að ekki sé ný-
mæli að kalt sé á þorra, enda orti
Sigurður bóndi Óskarsson í Krossa-
nesi í Vallhólmi:
Frostið er heldur að harðna,
harðfennið ógnar mér.
Bændur hættir að barna
og bind’ann við lærið á sér.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ort dróttkvætt
um borðaklippi