Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.02.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.02.2021, Blaðsíða 4
FRÉTTIR VIKUNNAR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.2. 2021 Hristum þetta af okkur L augarnar í Rey k javí k w w w. i t r. i s 2m Höldumbilinu og sýnum hvert öðru tillitssemi Þrátt fyrir að undurvel hafigengið að hemja veirunagreindi Svandís Svavars- dóttir heilbrigðisráðherra frá því að tilslakanir á sóttvarnareglum hefðu ekkert verið ræddar. Hins vegar væri fyrir höndum skemmtilegur fundur með sóttvarnalækni um lita- sjatteringar. Ekki skortir skoðanir á frumvarpi Guðmundar Inga Guðbrands- sonar, umhverfis- og auðlinda- ráðherra, um hálendisþjóðgarð, en borist hafa á sjötta tug umsagna. At- hygli vekur hve margar þeirra eru neikvæðar miðað við hve hugmyndin um hálendisþjóðgarð naut víðtæks stuðnings. Í þinginu er farið að ræða um að taka rammaáætlun fyrir fyrst, hún sé auðveldari. Lögregla handtók tvo menn vegna skotárásar á bíl borgarstjóra, sem uppgötvaðist um síðir í fyrri viku. Annar var látinn laus eftir yfir- heyrslu en hinn hnepptur í gæslu- varðhald. Það var síðar framlengt og maðurinn nafngreindur í fjölmiðlum, en hann hefur áður borist í fréttir vegna sakamála og uppreistrar æru, sem m.a. vöktu athygli fyrir það að hann var eitt sinn lögregluþjónn. Fyrirtæki í ferðaþjónustu kvarta undan yfirburðum Icelandair í rekstri ferðaskrifstofu til hliðar við flugreksturinn. Samkeppniseftirlitið segist gefa því gætur og hefur lagt áherslu á að ríkisstyrkur til flug- rekstrar félagsins fari ekki í neitt annað. Atvinnuástand á Suðurnesjum er enn erfitt, en þar er nú helmingur fé- lagsmanna í Verkalýðs- og sjó- mannafélagi Keflavíkur atvinnulaus.    Vatnshæð í Jökulsá á Fjöllum sveifl- aðist til, en hún rennur undir gadd- freðnum krapa og íshröngli frá krapaflóðinu í liðnum mánuði. Stutt er undir brúargólfið í miðjunni og umferð því aðeins leyfð í birtu. Ójafnvægi á markaði fyrir svínakjöt hefur leitt til þess að verð til bænda lækkaði um 11% í haust, en verðið á því út úr búð hefur hækkað í takt við aðrar verðbreytingar. Skal enn á það minnt að allt er betra með beikoni. Að sögn Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra er stefnt að útboði í Íslandsbanka snemmsumars, en hann vonast til þess að fá a.m.k. 119 milljarða króna fyrir hann, sem þá ætti að hrökkva fyrir fjárfestingunni til að örva efnahagslíf í heimsfar- aldrinum. Stór hluti innflytjenda á Íslandi er menntaður langt umfram það sem störf þeirra krefjast. Um 40% hafa háskólanám að baki, en hafa ekki fundið störf við hæfi. Þær fréttir bárust frá Svíþjóð að Björn Zoëga, læknir og forstjóri Karólínska sjúkrahússins í Stokk- hólmi, hefði snúið rekstri þess úr tapi í hagnað, en auk þess fengið meiri fjárframlög vegna aukinnar framleiðni. Árangurinn hefur vakið athygli og hafa stjórnendur stórspít- ala í öðrum löndum kynnt sér að- ferðirnar. Ekki þó frá Íslandi, enda hefur enginn neitt að kenna þeim. Heilbrigðisráðuneytið hafnaði því enn að upplýsa um bóluefnasamn- inga sína við framleiðendur og bar við trúnaði líkt og ætti við um alla samninga samkvæmt Evrópusam- vinnu við öflun bóluefnis. Vikunni áður höfðu bæði AstraZeneca og ESB greint frá efni samnings síns. Um 5-7 þúsund manns eru talin búa í óleyfisíbúðum. Húsnæðisekla á höf- uðborgarsvæðinu og hátt leiguverð á almennum markaði er talin helsta skýringin.    Framtíðarmöguleikar eru taldir í skráningu erlendra loftfara hér á landi, sem aldrei munu þó til lands- ins koma. Kostnaðurinn fer eftir vigt, en svo kann að bætast við kostnaður vegna ferða eftirlits- manna á 5 stjörnu hótel í framandi löndum. Panama norðursins! Sjúkratryggingar Íslands leita nú einhverra til þess að reka hjúkr- unarheimili í Vestmannaeyjum, Fjarðabyggð og á Akureyri. Sveitar- félögin þar eru búin að gefast upp á hallarekstri sínum og ætla að láta núverandi samninga renna út án endurnýjunar. Innflutningur á gerviosti minnkaði mikið á liðnu ári en hins vegar var talsvert meira flutt inn af mjólkur- osti. Innlend framleiðsla hefur nú 89% markaðshlutdeild. Þórólfur Guðnason, hinn hressi sóttvarnalæknir, sló á orðróm um að tilraunaverkefni með Pfizer um bólusetningu þorra þjóðarinnar væri við það að verða að veruleika. Íslendingar vilja leggja sitt af mörk- um til heimsminjaskrár Unesco og ræða einkum um íslenska torf- hleðslu í því samhengi. Sem segir sitt. Tíðni öndunarfærasýkinga á liðnu ári var meira en þriðjungi minni en raunin hefur verið undanfarin ár. Ástæðan er talin færri smit vegna aukinnar aðgæslu í heimsfaraldr- inum. Sýklalyfjanotkun hefur einnig minnkað mjög verulega.    Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) telja Póstinn brjóta samkeppnislög með niðurgreiðslu sendingarkostn- aðar, sem grafi undan samkeppni. Sigurður Ingi Jóhannsson sam- gönguráðherra sagðist ætla að skoða málið. Spennan eykst. Dani játaði að hafa orðið íslenskri konu á Jótlandi, Freyju Egilsdóttur Mogensen, að bana, en hann er fyrr- verandi sambýlismaður hennar og hefur áður banað sambýliskonu. Freyja var 43 ára og lætur eftir sig tvö ung börn. Áratugalöng deila um Sundabraut kann senn að vera á enda, en sér- fræðingar og hagsmunaaðilar í starfshópi samgönguráðherra um hana voru sammála um að 30 m há hábrú yfir Kleppsvík væri málið. Sú niðurstaða hafði varla verið kynnt þegar Birkir Guðnason, for- stjóri Samskipa, sagði lítið samráð hafa verið um hvaða leið yrði fyrir valinu. Hann segir brúna myndu hafa mikil áhrif á starfsemi félags- ins. Norður á Akureyri stendur til að endurbæta lengsta stiga landsins, kirkjutröppurnar, enda er snjó- bræðslukerfið í þeim ónýtt. Upplýst var að fréttir af lækkandi spillingarvísitölu Íslands, sem er samantekin af gögnum nokkurra rannsókna, væru mikið á misskiln- ingi byggðar, ekki væri tölfræði- legur munur milli ára. Hins vegar mætti rekja lækkandi vísitölu undanfarinna ára til aðeins einnar rannsóknar, sem aukinheldur hefði aðeins tvo heimildarmenn. Sífellt hefur sigið meira í annan þeirra und- anfarin ár vegna þess að hann týndi nýju stjórnarskránni. Janúarmánuður reyndist vera sá kaldasti það sem af er öldinni. Mikil snjóþyngsli hafa verið norðanlands, en um leið snjóléttasti vetur í Reykjavík í 100 ár. Trausti Jónsson veðurfræðingur minnti þó á að nóg væri eftir af vetri enn.    Breytingum á brjóstaskimun var mótmælt með 37 þúsund undir- skriftum, sem afhentar voru heil- brigðisráðuneytinu. Heldur hefur hýrnað yfir loðnusjó- mönnum eftir að Hafrannsókna- stofnunin tvöfaldaði fyrri veiðiráð- gjöf eftir loðnuleit og mælingu. Stefnir nú í 17,5 milljarða króna loðnuvertíð. Sömuleiðis hefur verið bitist um landanir norskra loðnu- skipa, en loðna er nú unnin á Íslandi í fyrsta sinn í þrjú ár. Loks kom fram frumvarp um breyt- ingar á áfengislögum, sem gerir ráð fyrir að leyfa handverksbruggurum að selja öl á framleiðslustað, en brugghúsin hafa verið vinsæll áfangastaður ferðamanna. Hins veg- ar var fallið frá því að leyfa inn- lendum netverslunum smásölu á áfengi, svo menn verða áfram að fá sprúttið heimsent frá útlöndum. Minna virðist vera að gera á Alþingi en oft áður, en þar liggja menn yfir lagasafninu og leita laga til þess að grisja burt. Sóttvarnalæknir sendi tillögur um slakanir á sóttvarnareglum til heil- brigðisráðherra, en þær þóttu til þess að gera slakar og lítt slakandi. Sagt var frá því í fréttum að biðlist- ar héldu áfram að lengjast og óviss- an alger. Þar var þó ekki um að ræða opinbera þjónustu, heldur leikjatölv- una Playstation 5. Hins vegar var óvissu um varnar- viðbúnað Íslands eytt þegar utan- ríkisráðherra upplýsti að tveir her- menn væru með fasta viðveru í landinu, annar bandarískur og hinn norskur. Þeir hittast lítið. Nóg eftir af vetri enn Það var ekki óhætt að aka yfir brúna yfir Jökulsá á Fjöllum nema í björtu, eftir að krapaflóðið fraus þar. Þetta hefur verið kaldur vetur og snjóþungur nyrðra, en sá snjóléttasti í bænum í 100 ár. Ekki er hann þó úti enn og það getur allt breyst. Ljósmynd/Gunnar Sverrisson 31.1.-5.2. Andrés Magnússon andres@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.