Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.02.2021, Qupperneq 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.02.2021, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.2. 2021 FÉLAGSMIÐLAR Jakkaföt og skyrtur Gluggatjöld og áklæði Úlpur, kápur og frakkar Rúmföt og heimilisþvottur Kjólar og blússur Servíettu- og dúkaþvottur STOFNAÐ 1953Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • Sími: 553 1380 • haaleiti@bjorg.is Ert þú með allt á hreinu 2021? Við tökum vel á móti herðatrjám og endurnýtum Donald Trump er farinn úrHvíta húsinu og hefur hafttiltölulega hægt um sig, en hann er enn bannaður á fé- lagsmiðlunum Twitter, Facebook, Reddit, Snapchat, Grindr (!), Pinte- rest og TikTok, svo nokkrir þeir helstu séu nefndir. Það vakti verulega athygli þegar félagsmiðlarnir, einn af öðrum, tóku Trump forseta úr umferð á síðustu valdadögum hans, að sögn vegna þess að hann segði ósatt um hvernig forsetakosningarnar síðasta haust hefðu í raun og veru farið, en hann hélt því fram að brögð hefðu verið í tafli. Það var svo sem ekki í fyrsta sinn í veraldarsögunni, sem stjórn- málamaður var talinn hafa farið óvarlega í umgengni við sannleikann og tæplega í síðasta sinn heldur, en orðræða forsetans þótti greinilega svo miklu verri og hættulegri, að þaggað var niður í honum á þessum vettvangi, sem hann hafði að miklu leyti helgað sér. Þessu banni var víða fagnað. Raunar svolítið sérstakt að sjá vinstrimenn um víða veröld vart ráða sér fyrir kæti yfir að margmillj- arðamæringar og auðhringir þögg- uðu niður í rétt kjörnum forseta öfl- ugasta lýðræðisríkis heims. Auðvitað hugsuðu þeir það fæstir þannig, heldur létu einfaldlega und- an ofur mannlegri kennd ánægju með að stungið hefði verið upp í and- stæðing þeirra. Og auðvitað bland- aðist pólitísk afstaða inn í það; síð- astliðið sumar datt hvorki félagsmiðlum né nokkrum öðrum í hug að þagga þyrfti niður í Kamölu Harris, sem síðan er orðin varafor- seti, fyrir óvarleg hvatningarorð til Black Lives Matter þegar óeirðirnar vestra stóðu sem hæst. Ritskoðun Trumps hættulegt fordæmi En það glöddust ekki allir. Angela Merkel Þýskalandskanslari, sem löngum elti grátt silfur við Trump, lét þannig í ljós ríkar efasemdir um tiltæki tæknirisanna og sagði að ekki ætti að vera í verkahring einka- fyrirtækja að skenkja fólki málfrelsi. Hún veit hvað hún syngur um mál- frelsið, fædd og uppalin í Austur- Þýskalandi. Rússneska stjórnar- andstöðuhetjan Alexei Navalníj gekk lengra og sagði þetta „óþolandi ritskoðun“. Og jafnvel Jack Demp- sey, forstjóri Twitter, játaði að þarna hefðu félagsmiðlar sett hættu- legt fordæmi. Það er þó ekki aðeins Trump eða einhverjir rasistakimar sem finna fyrir ritskoðunartilburðunum, og það gerist ekki aðeins í Bandaríkj- unum. Í Bretlandi var útvarpsstöð- inni TalkRadio úthýst af YouTube (í eigu Google) fyrir það eitt að hafa útvarpað skoðunum manns, sem var á móti sóttvarnaútgöngubanni. Í sama landi var Sósíalíska verka- mannaflokknum (SWP) hent út af Facebook fyrir skömmu, sem er óneitanlegu ögn fyndið í ljósi þess að hann hefur um árabil barist fyrir þöggun tiltekinna skoðana eða manna í háskólum, fyrirtækjum, fjölmiðlum og opinberri umræðu. En svo má spyrja að öðru. Um 80% notenda á félagsmiðlum búa ut- an Bandaríkjanna, en þessi þróun hefur að megninu átt sér stað þar og í samræmi við bandaríska löggjöf. Verður þessum viðmiðum fylgt víð- ar? Mega íslenskir stjórnmálamenn sæta slíku banni ef einhverjum starfsmanni Facebook í Indlandi líst ekki á færslurnar hjá þeim? Eða eitthvert af algrímunum ógurlegu? Og hvað með alræðisríki eins og Hvíta-Rússland eða Kína? Munu fé- lagsmiðlarnir fara að ritskoðunar- kröfum þarlendra stjórnvalda eða bæta sínum eigin ofan á þær? Verð- ur Vesturlöndum þá lengur stætt á að finna að tjáningarfrelsisskerð- ingum í ófrjálsari ríkjum? Enginn skyldi efast um völd og áhrif netrisanna. Þeir teygja sig um nánast allan heim og eru í 1., 3., 4. og 5. sæti yfir verðmætustu fyrirtæki heims. Og það er tiltölulega nýtil- komið, því ekki þarf að fara lengra aftur en til 2008, að enginn þeirra slapp inn á þann lista. Fyrir þeim fara snjallir tæknifrumkvöðlar og viðskiptavesírar, sumir harla ungir, en enginn þeirra sterkur á svellinu þegar kemur að heimspeki og stjórnmálum, siðfræði eða mann- réttindum. Velflestir eiga gríðarlega mikið undir því að vita meira um notendur sína en flestir kærðu sig sennilega um, en ekki þó síður að kunna að veita til þeirra „rétta“ efn- inu, alltaf og endalaust í bland við auglýsingar. Veita eða útgefandi eftir því sem hentar Þetta með veituna er mikilvægt. Öll þessi fyrirtæki eru bandarísk, en í árdaga netsins voru þau á lagalegu flæðiskeri stödd, enda lá eðli þeirra ekki endilega fyrir. Allt þetta breyttist með lögum um fjarskipti og efni þeirra, sem sam- þykkt voru á Bandaríkjaþingi 1996. Þar var kveðið á um það í 230. gr. að félagsmiðlar væru veitustofnanir í þeim skilningi að þau væru ekki ábyrg og skaðlaus vegna þess efnis, sem notendur kæmu á framfæri fyr- ir þeirra tilstuðlan. Hins vegar mættu þau jafnframt hafna hverju því efni sem þau kærðu sig um. Þetta var vafalaust af góðum hug gert, en afleiðingin var sú að fé- lagsmiðlarnir gátu bæði étið kökuna og átt hana. Einu gildir hvaða við- bjóður er settur inn á félagsmiðla, þeir bera enga ábyrgð á því af því að þeir eru bara veita, svona rétt eins og símafélögin bera ekki ábyrgð á því sem fólk segir í símann. En sé fé- lagsmiðlunum eitthvað á móti skapi, þá geta þeir fjarlægt það án þess að skulda nokkrum skýringar á því. Einokunarstaða í skjóli ríkisvaldsins Þessi löggjöf og þessi tiltekna laga- grein lögðu grunninn að ótrúlegum vexti félagsmiðlanna og auðlegð þeirra, en um leið varð hún og hegð- un notenda þeim hrein hvatning til þess að ýta undir æsingakennt efni, sem væri líklegt til aflestrar, svara, „læka“ og deilingar. Það var beinlín- is í skjóli hennar sem Facebook komst nánast í einokunaraðstöðu, Twitter á sinn stall og sigurganga Google varð mun léttari. Það er því ekki jafneinfalt og ein- hverjum kynni að finnast, að Face- book eða Twitter séu einfaldlega einkafyrirtæki með notkunarskil- mála og geti því farið sínu fram. Burtséð frá einokunaraðstöðu, sem þau kunna óvart að hafa komist í fyr- ir atbeina löggjafans, þá eru þau um margt í reyndinni orðin markaðs- torg hugmyndanna, hið opna torg Málfrelsið á félagsmiðlum Helstu félagsmiðlar heims skrúfuðu á dögunum fyrir Donald Trump við hrifningu margra. En er lýðræðið betra fyrir það að auðkýfingar netrisanna taki að sér hliðvörslu á torgi þjóðmálaumræðu? Andrés Magnússon andres@mbl.is 

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.