Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.02.2021, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.2. 2021
A
ðeins er rétt rúmur mánuður frá
formlegri útgöngu Breta úr
ESB.
Gott mál eða vont?
Nokkuð er í það að kveða megi
upp úr með vissu hvort útgangan sú hafi verið
bresku þjóðinni til farsældar eða ekki. Við þá ein-
kunnagjöf verða brúkaðar hagtölur af ýmsu tagi.
Þær hafa iðulega þótt handhægar sem molar í slíka
sönnunarfærslu, en sömu tölur geta hæglega ýtt
undir mismunandi niðurstöðu. Þar ræður framsetn-
ing og túlkun þá mestu. Við þekkjum það mörg á
okkar skrokki Íslendingar að algengir vísar eins og
„hagvöxtur,“ sem er breiðvirkandi upplýsing, svo
notaður sé talsmáti lyfjabókarinnar, segja ekki alla
söguna. Enda margsannað að þótt allra viður-
kenndra þátta sé gætt getur hagvöxtur liðins árs
breyst mikið frá fyrsta ári og til hins fjórða eða
fimmta, því þau kurl eru lengur að koma til grafar
en handhægt er.
Seðlabankamenn og þeir sem fikta við fjár-
lagagerð horfa þó jafnan til fyrstu niðurstöðu og
hafa sem bakhjarl við sínar ákvarðanir um líklega
þróun í næstu framtíð. Þeirra getur verið að ýta
undir eða draga úr tiltekinni atburðarás með hlið-
sjón af meintum hagvexti árið á undan eða rúmlega
það.
Hefur margur seðlabankamaður fengið roða í
kinn þegar þriggja eða fjögra ára gamlar tölur, og
réttari en þær fyrri sem því nemur, sýna að hag-
vöxturinn á þeirri tíð, sem var lykilstærð fyrir spá-
forsögn til næstu tveggja ára, var nú gjörbreyttur
frá fyrstu tölum um liðið ár.
Og þegar „spár“ eru nefndar þá er ekki átt við
næstu ár heldur getgátur um nýliðinn tíma. Ekkert
þykir hagfræðingum flottara en að svara fjölmiðla-
fólki til með því að segja: „Það er mjög flókið að spá
um nýliðna fortíð.“ Og í næstu andrá frábiðja þeir
sér ályktun af nýveifaðri speki, að sé svo torsótt að
spá fyrir liðna tíð hljóti að vera alls ómögulegt að
spá um framtíðina. „Nei,“ segja þeir, „framtíðin er í
raun fastari í hendi en sú fortíð sem er á bak og
burt og enginn fær neitt við ráðið.“
En svo haldið sé strikinu um útgöngu Breta úr
ESB, þá er sennilegast að matið á stjórnmála- og
efnahagslegum afleiðingum hennar muni fara mest
eftir því hvernig sá var stefndur sem kynnir mat
sitt á meintum afleiðingum. En fyrir aðra, utan sem
innan Bretlands, stendur sennilega efst í minning-
unni hversu tæpt stóð að ákvörðun þjóðarinnar
fengi að ganga eftir, hvað sem öllum heitstreng-
ingum líður um að óhugsandi væri að nokkur reyndi
að hlaupa frá þeirri niðurstöðu.
„Víst er hún flöt“-liðið
Systurflokkarnir á Íslandi, Samfylking og Viðreisn,
hafa fátt handbært til að veifa nú sem mæli með
inngöngu Íslands í ESB, eins og álit og atburðarás
hafa leikið sambandið síðustu ár. Það sem helst er
reynt að hanga í er ímyndaður ávinningur af mynt-
inni sem Íslendingar „fengju að taka upp“ álpuðust
þeir inn. Þeirri sömu mynt sem tryggði að þau lönd
sem í hana voru hnýtt voru mörgum árum lengur
að jafna sig en Ísland eftir bankaslysið. Orðalagið
„fengju“ er kúnstugt þegar staðreyndin er sú að
lengi var það valkvætt fyrir þjóðir sem vildu inn
hvort þær tækju upp myntina, en nú er gerð ófrá-
víkjanleg krafa um að þær neyðist til þess. Bretar
komust því hjá því að taka myntina upp, þótt Tony
Blair berðist á hæl og hnakka þá náði hann því ekki
fram. Fullyrt var að metnaður Blair til að fá að
gegna öðru hvoru forystuembætti ESB, í kommiss-
arahópi eða leiðtogaráði, hefði verið bundinn því
skilyrði að hann kæmi Bretum í myntina áður en
hann færi. ESB-fræðimenn halda því fram að Sví-
um hafi í raun verið skylt að taka upp evru þegar
þeir fóru inn á sínum tíma. Sænskir stjórn-
málamenn töldu að tillaga um inngöngu hefði verið
felld ef það skilyrði væri upplýst. Svíar hafa form-
lega hafnað því að taka upp evru en stjórnmálager-
ið þar, sem allt er meira eða minna eins, bíður og
vonar að eitthvað óvænt gerist svo afstaða þjóð-
arinnar breytist og þá megi sæta lagi. Dæmin héð-
an hræða. Svíar virðist þó í augnablikinu fremur
hneigjast til annarrar áttar en þeirrar. Enda töldu
margir þar á bæ að þeir hefðu haft skjól af Bretum
inni í sambandinu gegn allsráðandi blokk þýskra
og franskra.
Litla myntin
Hér á Íslandi ráða fyrrnefndir pólitískir tvíburar
illa við umræðuna um myntina og forðast því raun-
verulega umfjöllun um hana. Þeir tyggja einungis
að krónan sé „of lítil mynt“. Meginmálið er að
myntin lesi stöðu síns þjóðfélags eins og krónan
gerir og bregðist við. Viðbrögðin geta orðið skörp.
En þau taka mið af beinhörðum þjóðarhagsmunum.
Seðlabankinn horfir í sömu andrá til hagsmuna
landsins. Dettur einhverjum í hug að Seðlabankinn
í Frankfurt myndi gera það? Að sjálfsögðu ekki.
Það væri heimskulegt af honum. Í því tilviki væri
rétt að tala um að hagsmunirnir væru alltof, alltof
litlir! Mestu skiptir að krónan er sinnar þjóðar
mynt. Hún les það sem að henni snýr og lagar sig
að því. Margir gerðu sitt til að draga íslenska þjóð
að landi eftir bankafallið fyrir rúmum áratug. En
enginn þó eins og krónan. Með þessu tali um smá-
krónuna mætti ætla að þar sem fjöldinn er mestur
væri allt í mestum sóma.
Stóra myntin
Kína slær flest út í því skilyrði. En samt býr Kína í
senn við eina mynt og tvær. Þær heita báðar sömu
tveimur nöfnunum (renminbi-yuan). Seðlarnir eru
þeir sömu, en það sem öllu skiptir er að virði þeirra
er mjög ólíkt. Í alþjóðlegri merkingu (ISO) fyrir
ríkismyntir eru þær merktar með CNY annars veg-
ar og CNH hins vegar. Önnur er ætluð til
innanríkisviðskipta en hin til utanríkisviðskipta. Á
síðustu áratugum hefur umfang og afl kínverskrar
framleiðslu til utanríkisviðskipta við hinn vestræna
heim bólgnað hratt út. Peningaflæði gjaldeyris inn í
Kína hefur margfaldast, og það svo að það orð nær
ekki utan um þá þróun. Kínastjórn var í mun að ná
að binda innstæður í sínum bönkum í miklum fúlg-
um án þess að skerða möguleika hennar á að hafa
fullt vald á því hvernig efnahagsleg starfsemi þró-
aðist innanlands. Lausnin varð sú að hafa tvær al-
gjörlega hliðstæðar myntir, sem þó lytu ólíkum lög-
málum.
Ítalir vildu út eða langleiðina
Fyrir fáeinum árum voru kröfur vaxandi á Ítalíu um
að koma yrði landinu út úr evrunni áður en mynt-
Tilræði við menn
og heilbrigða
skynsemi
’Systurflokkarnir á Íslandi, Samfylking ogViðreisn, hafa fátt handbært til að veifanú sem mæli með inngöngu Íslands í ESB,eins og álit og atburðarás hafa leikið sam-
bandið síðustu ár.
Reykjavíkurbréf05.02.21