Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.02.2021, Qupperneq 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.02.2021, Qupperneq 18
Sigrún Arna keypti húsið sem hún býr í árið 2009með manni sínum. Það þurfti lítið að gera fyrirhúsið en Sigrún Arna hefur fengið útrás fyrir sköpunargleðina með málningu. „Ekki spyrja manninn minn hvað hann er búinn að mála oft,“ segir Sigrún Arna og hlær. Hún er nýlega búin að mála veggi og loft í litnum heimagráum. Litinn bjó hún til í samstarfi við Sérefni þegar búðin hennar opnaði í vor. Hún segir fólk ekki eiga að hræðast að mála veggi og loft í sama lit. „Í fyrsta lagi þarftu ekki að teipa og skera. Það er miklu auðveldara fyrir fólk. Mér finnst líka heildar- útgáfan koma vel út. Fólk á ekki að hræðast að vera með dökka liti í öllu rýminu. Ég var að dekkja svolítið núna. Mér finnst heimilið miklu meira kósý núna,“ segir Sig- rún. Margt breyttist þegar liturinn dekktist. „Gólfefnið mitt breyttist og lýsingin í húsinu varð allt önnur. Það gerir alveg helling að mála. Ef þig langar að gera eitt- hvað og breyta til heima hjá þér þá mæli ég með því að mála.“ Heima er Sigrún Arna með klassískan skandinavískan stíl og velur vandaða vöru þegar hún kaupir sér nýja hluti. „Ég kaupi mér hluti sem mér þykja fallegir og flottir. Ég kaupi mér ekki oft nýja hluti en þegar ég splæsi þeim á mig vil ég fallega og vandaða hönnun,“ segir Sigrún Arna sem segist vera sérstaklega veik fyrir stólum, ljósum og lömpum. Sigrúnu Örnu dreymir um að eignast Eggið í rauð- um lit eftir Arne Jacobsen. Falleg listaverk heilla hana líka. Á meðan hún bíður eftir Egginu nýtur hún þess að horfa á fallegt listaverk eftir Hjalta Parelius sem heitir einmitt Hænan í egginu. „Ég sá hana bara á netinu og hún greip mig strax. Af því þetta er rauða eggið.“ Við borðstofuborðið nýtur sín einnig fallegt málverk eftir Brynhildi Guðmundsdóttur. Málverkið kemur ein- staklega fallega út á dökkmáluðum veggnum og segir Sigrún Arna það hafi fengið nýtt líf þegar hún málað heimilið í vetur. „Litirnir urðu enn þá fallegri. Málverkin og ljósakrónurnar breyttust líka mjög mikið.“ Sigrún Arna segir að það sé nóg að gera í innanhúss- hönnun í Vestmannaeyjum. „Ég og Rikki vinur minn sem er innanhússarkitekt er- um að byrja með mjög skemmtilegt verkefni saman sem fer mjög vel af stað. Við erum til dæmis með nýbyggingu á Sambýli Vestmannaeyja sem er svo gaman að taka þátt í að innrétta. Svo eru Eyjamenn svo mikið smekkfólk og alltaf að græja og gera og eru farnir að leita mun meira til faglærðra áður en þeir fara í framkvæmdir,“ segir Sigrún sem mælir mikið með því að leita til fagaðila þeg- ar framkvæmdir eru annars vegar. Sigrún Arna opnaði búðina Heimadecor í Vest- mannaeyjum í maí. „Það hefur verið minn draumur að opna búð í mörg ár. Ég var í skemmtilegri vinnu í verslun en langaði samt að eiga mína búð. Svo er ég með þessa veiki sem kallast straxveiki! Segjum að ég hafi fengið skothelda hugmynd fyrir hádegi og komin með lyklana að húsnæðinu seinni- partinn. Fólk er líka bara „Sigrún það er Covid, þetta er hræðileg hugmynd!“ en það stoppaði mig ekki og það hefur ekki einn dagur liðið sem ég hef séð eftir því að hafa opnað Heimadecor. Það er búið að vera brjálað að gera, allir heima að versla út af Covid. Eins gott að ég lét þennan heimsfaraldur ekki taka af mér þennan draum.“ Í búðinni er Sigrún Arna meðal annars í samstarfi við Sérefni, Lúmex og Zenus. Eitt það sem skiptir mestu máli er góð lýsing. Sigrún Arna mælir með að fá fagaðila til þess að hjálpa til við að velja ljós. Mismunandi ljósgjafar setja einmitt sterkan svip á heimili Sigrúnar Örnu. Lampar og hangandi ljós eru úti um allt en Sigrún Arna segir mikinn mun á þeim öllum. Hvað heldur þú að verði í tísku árið 2021? „Jarðlitir, viður, hlýleiki, plöntur og fallegar gard- ínur.“ PH-ljósið er full- komið í eldhúsinu. „Eyjamenn eru svo mikið smekkfólk“ Sigrún Arna á góða kaffivél og nýtur þess að drekka kaffið í sófanum á morgnana. Vestmannaeyingurinn Sigrún Arna Gunnarsdóttir útskrifaðist sem innanhússhönnuður í Svíþjóð árið 2018. Hún býr í fallegu einbýlishúsi á æskuslóðunum í Vestmannaeyjum þar sem hún er sinnir bæði starfi sínu sem innanhússhönnuður og rekur verslunina Heimadecor. Guðrún Selma Sigurjónsdóttir gudrunselma@mbl.is Sigrún Arna opnaði ný- lega búðina Heima De- cor í Vestmannaeyjum. 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.2. 2021 LÍFSSTÍLL VEFVERSLUN www.betrabak.is OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN OPNUNARTÍMI einstakra verslana sjá www.betrabak.is FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 KRINGLUNNI Reykjavík 820 6015

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.