Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.02.2021, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.2. 2021
SÉRBLAÐ
SMARTLANDS
BLAÐIÐ
Fylgir Morgunblaðinu 12. febrúar
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til 8. febrúar
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Fjallað verður
um tískuna 2021
í förðun, snyrtingu,
útliti og fatnaði auk
umhirðu húðarinnar,
heilsu, dekur o.fl.
08.00 Strumparnir
08.20 Blíða og Blær
08.45 Víkingurinn Viggó
08.55 Adda klóka
09.20 Mia og ég
09.40 Lína Langsokkur
10.05 Lukku láki
10.30 Ævintýri Tinna
10.50 It’s Pony
11.20 Angry Birds Stella
11.30 Are You Afraid of the
Dark?
12.10 Nágrannar
12.35 Nágrannar
12.55 Nágrannar
13.15 Nágrannar
13.40 Nágrannar
14.00 Impractical Jokers
14.20 First Dates
15.05 Supernanny US
15.50 Trans börn
16.50 60 Minutes
17.35 Víglínan
18.26 Veður
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.40 Sportpakkinn
18.50 Ísland í dag
19.05 Tónlistarmennirnir okk-
ar
19.30 The Great British Bake
Off
20.30 Years and Years
21.35 Two Weeks to Live
22.00 Briarpatch
22.45 Coyote
23.35 Humans
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 93,5
Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
20.00 Úr gamla safninu á N4
– Glettur að austan
20.30 Tónlist á N4
Endurt. allan sólarhr.
15.00 Joel Osteen
15.30 Charles Stanley
16.00 Trúarlíf
17.00 Times Square Church
18.00 Tónlist
18.30 Ísrael í dag
19.30 Jesús Kristur er svarið
20.00 Blönduð dagskrá
20.00 Mannamál (e)
20.30 Suðurnesja-magasín
Víkurfrétta (e)
21.00 Kaupmaðurinn á horn-
inu (e)
21.30 Sjónin (e)
Endurt. allan sólarhr.
10.00 The Block
11.00 The Block
12.00 Dr. Phil
12.45 Dr. Phil
13.30 Dr. Phil
14.15 The Bachelor
15.35 Það er komin Helgi
16.50 The King of Queens
17.10 Everybody Loves Ray-
mond
17.35 For the People
18.20 This Is Us
19.30 Vinátta
20.00 The Block
21.20 Law and Order: Special
Victims Unit
22.10 Your Honor
23.10 Cold Courage
24.00 Station 19
00.45 The Resident
01.30 The Rookie
02.15 MacGyver
03.00 Snowfall
06.55 Bæn og orð dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Hringsól.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Á tónsviðinu.
09.00 Fréttir.
09.03 Svona er þetta.
10.00 Fréttir og veðurfregnir.
10.15 Bók vikunnar.
11.00 Guðsþjónusta í Linda-
kirkju.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
13.00 Sögur af landi.
14.00 Víðsjá.
15.00 Lestin.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Strokið um strengi: Sin-
fóníuhljómsveit Ís-
lands 65 ára.
17.00 Sunnudagskonsert.
17.30 Orð af orði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Loftslagsdæmið.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Óskastundin.
19.40 Ameríski draumurinn –
staða svartra og bar-
átta þeirra.
20.35 Gestaboð.
21.30 Fólk og fræði.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Á reki með KK.
23.10 Frjálsar hendur.
24.00 Fréttir.
07.15 KrakkaRÚV
07.16 Refurinn Pablo
07.21 Úmísúmí
07.44 Kalli og Lóa
07.56 Poppý kisuló
08.06 Lalli
08.13 Kúlugúbbarnir
08.36 Nellý og Nóra
08.43 Flugskólinn
09.05 Hrúturinn Hreinn
09.12 Múmínálfarnir
09.34 Kátur
09.36 Konráð og Baldur
09.49 Sjóræningjarnir í næsta
húsi
10.00 Kiljan
10.40 Baráttan – 100 ára
saga Stúdentaráðs
11.00 Silfrið
12.10 Eldað úr afskurði
12.40 Ólympískar lyftingar
13.35 Dans
14.30 Keila
16.00 Frjálsíþróttir
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Stundin okkar
18.25 Menningin – samantekt
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir á sunnudegi
19.40 Veður
19.50 Landinn
20.25 Fyrir alla muni
21.00 Um Atlantsála
22.00 Lítil þúfa – Mótmæli við
Mangrove
00.10 Silfrið
12 til 16 Þór Bæring Besta blandan af tónlist á
sunnudegi og létt spjall með Þór Bæring. Hækkaðu í
gleðinni með K100.
16 til 18 Tónlistinn Topp40 með Dj Dóru Júlíu. Einn
vinsælasti plötusnúður landsins kynnir 40 vinsælustu
lög landsins á hverjum einasta sunnudegi. Tónlistinn
er eini opinberi vinsældalisti landsins.
18 til 00 K100 tónlist Besta tónlistin dunar í allt
kvöld.
Það er virkilega líflegur hlað-
varpsmarkaður á Íslandi og einn
af þeim sem er mjög virkur í
þeim bransa er Snæbjörn Ragn-
arsson hjá Hljóðkirkjunni. Þeir
Logi Bergmann og Siggi Gunn-
ars heyrðu í Snæbirni og ræddu við hann um hlaðvarps-
menningu landsins og hvernig það gangi að halda úti
góðu hlaðvarpi og að fá laun fyrir vinnuna. Snæbjörn
segir að allir og amma þeirra séu með „Podcast“ í dag
en margir af þeim sem framleiði hlaðvörp séu ekki að
því fyrir hinn almenna markað heldur aðeins sjálfa sig
og vini sína. Hann viðurkennir að peningahliðin í hlað-
varpsheiminum sé erfið og að þeir þurfi sjálfir að sjá til
þess að geta fengið laun fyrir vinnuna sína. Þá segir
hann hlaðvarpsmarkaðinn í raun vera svo glænýjan að
þeir hafi ekkert eldra til þess að bera sig saman við en
viðurkennir að það besta fljóti alltaf á toppnum. Viðtalið
við Snæbjörn má nálgast í heild sinni á K100.is.
Það besta flýtur
alltaf á toppnum
Tónlistarveitan Spotify er víðaorðin markaðsleiðandi á sínusviði. Úrvalið þar er gríðar-
legt og um leið er spilun laga á
veitum á borð við Spotify, Apple
Music, Amazon Music og Deezer
notuð til þess að meta og mæla
vinsældir. Ekki eru þó allir á einu
máli um trúverðugleika vinsælda-
mælinga á Spotify.
Notendum tónlistarveita fjölgaði
verulega í fyrra. Þeir eru nú um
400 milljónir og er það 100 millj-
ónum meira en um mitt ár 2019.
Þar ber sænska fyrirtækið Spotify
höfuð og herðar yfir aðra með 32%
markaðshlutdeild og notendum
fjölgar jafnt og þétt.
„Látið lagið ganga á
meðan þið sofið“
Í tímaritinu Der Spiegel var rakið
hvernig kanadíski söngvarinn Just-
in Bieber skoraði á aðdáendur sína
að streyma lagi sem hann gaf út
fyrir ári í gríð og erg svo það næði
fyrsta sæti vinsældalistans. Lagið
var í öðru sæti. „Látið lagið ganga
á meðan þið sofið,“ sagði Bieber.
Lagið náði ekki fyrsta sætinu,
en þessi hvatning söngvarans vakti
umræðu um það hversu berskjald-
aðar streymisveiturnar væru fyrir
tilraunum til að hafa áhrif á vin-
sældir tónlistar.
Í Der Spiegel er einnig sagt frá
því að fyrir tveimur árum hafi
þýski kvikmyndatökumaðurinn og
blaðamaðurinn Ilhan Coskun
ákveðið að gera tilraun með það í
huga að gera heimildamynd. Út-
koman var myndin Kauptu þig inn
á listana! eða Kauf dich in die
Charts! Coskun hafði samband við
tölvuhakkara, sem hafði stært sig
af því að hafa átt við streymistölur
vinsælla þýskra tónlistarmanna, og
fékk hann til að sýna sér hvernig
ætti að fara að.
Coskun, sem aldrei hafði komið
nálægt tónlist, tók upp lag og
gerði við það myndband. Hakk-
arinn notaði svokallaða botta eða
skriftur til að spila lagið hvað eftir
annað inni á streymisveitunni og
brátt hafði laginu verið streymt
100 þúsund sinnum á Spotify. Til
þess að vinna verkið fann hakkar-
inn ónotaða reikninga á Spotify,
braust þar inn og sleppti bottanum
lausum.
Milljón streymi fyrir
þúsund evrur
Samkvæmt hakkaranum bjóða
ýmsir upp á þjónustu af þessum
toga. Hægt sé að fá milljón
streymi fyrir þúsund evrur og þeg-
ar mikið liggi við sé samið við
fjölda hakkara víða um heim í af-
kimum netsins til að búa til vin-
sældir.
Haft er eftir aðstoðarmanni
Coskuns í Der Spiegel að hann
þekki hakkara, sem hafi átt við
streymistölur bandaríska rapp-
arans 6ix9ine, sem í viðtali við
New York Times fyrir skömmu
þrætti ekki fyrir að það væri rétt:
„Allir blása tölurnar sínar upp.“
Spotify er með reglur og gefur
út viðvaranir ef þeim er ekki hlýtt
og úthýsir þeim, sem brjóta þær
ítrekað. Þá eru streymi ekki talin
með, fara ekki inn á lista og engar
greiðslur inntar af hendi. Sam-
kvæmt Der Spiegel veitir Spotify
hins vegar engar upplýsingar um
hversu mikið er af brotum og við-
vörunum. Fyrirtækið gefur ekki
einu sinni upp hversu margir vinni
við að fylgja reglunum eftir.
Svo er spurningin hvort vin-
sældalistar séu ekki úreltir.
Spotify notar reiknirita eða algó-
ritma til að mæla með tónlist við
viðskiptavini út frá því hvaða tón-
list þeir velji sér. Þannig fái fólk
tónlist við sinn smekk óháð öllum
listum.
Svo hefur Spotify gefið lista-
mönnum kost á að kaupa sig inn í
reikniritana þannig að tónlist
þeirra er haldið að viðskiptavinum.
Gagnrýnendur spyrja á móti hver
munurinn sé á því og aðferðum
hakkaranna. Í það minnsta er ljóst
að vinsældalistar byggja ekki á ná-
kvæmum vísindum og gagnsæið
gæti hæglega verið meira.
Justin Bieber syngur
í Kórnum í Kópavogi
fyrir fimm árum.
Morgunblaðið/Ófeigur
Hakkarar koma
af stað sístreymi
ÁTT VIÐ VINSÆLDALISTA Á STREYMISVEITUM