Morgunblaðið - 28.03.2021, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.03.2021, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.3. 2021 Útgefandi Árvakur Umsjón Björn Jóhann Björnsson Blaðamenn Ágúst Ingi Jónsson, Guðni Einarsson, Snorri Másson Kortagerð Sigurður B. Sigurðsson Auglýsingar Auglýsingadeild Prentun Landsprent ehf. Forsíðumyndina tók Kristinn Magnússon. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Eldgosið í Fagradalsfjalli, einnig kennt við Geldingadali, hefur nú staðið yfir í rúma viku. Tugþúsundir Íslendinga og ferðamanna hafa bar- ið gosið augum og viðbragðsaðilar búa sig undir enn meiri aðsókn yfir páskadagana fram undan. Almennt stendur ekki til að loka aðgengi að gosinu, nema í óveðri eða mikilli gasmengun. Kórónuveiran hefur líka sín áhrif og hafa Almanna- varnir biðlað til fólks að gæta að sóttvörnum, halda fjarlægð á milli og vera með grímu og hanska. Fólk í sóttkví á ekki að fara að gosinu. Að öðru leyti er svo mikilvægt að fara vel útbúinn á svæðið og fylgja leiðbeiningum lögreglu og björg- unarsveitarmanna sem vakta svæðið allan sólarhringinn. Hundruð manna hafa komið þar að verki og sumir átt svefnlitlar nætur. Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík hefur stikað gönguleiðir að gosinu (sjá kort) og búist er við að gera þurfi þriðju gönguleiðina eftir því sem gosinu vindur fram og vind- áttir breytast. Ferðafélag Íslands hefur sett á sinn vef (www.fi.is) hag- nýtar leiðbeiningar fyrir þá sem hyggja á gönguferð að gosinu. Með- fylgjandi kort byggist að hluta á þeim upplýsingum. Bæta á bílastæðamálin Ferðamálastofa setti upp teljara við gönguleiðina að gosinu sl. mið- vikudag. Í lok dags sýndi hann nærri 5.000 manns og daginn eftir um 1.200 manns. Hjálmar Hallgrímsson, vettvangsstjóri hjá Lögreglunni á Suðurnesjum, telur að enn fleiri hafi séð gosið þessa daga þar sem taln- ingin sé ekki alveg nákvæm. Hún gefi þó ágæta vísbendingu. „Þetta er búin að vera strembin vika. Það gerði okkur erfitt fyrir að Suðurstrandarvegur er laskaður en Vegagerðin hefur lagað veginn. Í framhaldi af því ættum við að geta opnað veginn í báðar áttir. Við von- umst til að geta lagað bílastæða- málin fyrir páska,“ segir Hjálmar. Lögreglan á Suðurnesjum hefur aukið viðbúnað sinn og bætt við mannskap, einnig fengið aðstoð frá umferðardeild Lögreglunnar á höf- uðborgarsvæðinu og sérsveit ríkis- lögreglustjóra. Mikið hefur mætt á Björgunar- sveitinni Þorbirni. Formaðurinn Bogi Adolfsson, sem einnig er sjúkraflutningamaður, hefur lítið sofið að undanförnu. „Þetta er eins og ef þyrla myndi hrapa í bakgarð- inum hjá þér, það verða einhver læti,“ segir Bogi, spurður hvernig það var að fá eldgosið í fangið í ná- grenni Grindavíkur. „Annars höfum við horft á þetta í lausnum, ekki vandamálum. Aðalmálið er að allir passi sig, búi sig vel til göngunnar og hugi að sóttvörnum.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gæta þarf að sér í gosgöngu - Tugþúsundir hafa sótt eldgosið í Geldingadölum heim - Verið vel útbúin og hugið að sóttvörnum Fyrir gönguferðina Notið bestu gönguskóna sem þið eigið Athugið veðurspána Takið þetta með Takið líka með auka par af sokkum og hælsæris- plástur Leggið snemma af stað Velja þarf gönguleið eftir vindaspá hverju sinni, örugg- ast er að hafa vindinn í bakið Vatn á flöskum, hitabrúsa með kaffi eða kakói og smurt nesti fyrir daginn Farsímasam- band er nú orðið ágætt á Fagradalsfjalli Síminn ykkar er líka átta- viti, vasaljós, landakort og GPS-tæki – takið því aukahleðslu- banka með fyrir símann Munið líka Verið í eða takið með vind- og vatnsþéttan hlífðarfatnað, einnig salernis- pappír og plastpoka fyrir rusl Eldgosið í Geldingadölum hefur heillað Íslendinga og þá fáu erlendu ferðamenn sem eru á landinu. Að mörgu er að hyggja áður en lagt er af stað á gosstöðvarnar. Stikaðar leiðir að gosstöðvunum G ru n n ko rt /L o ft m yn d ir eh f. B Gönguleið B er um 4 km og er nokkru erfiðari en leið A A Gönguleið A frá Suður- strandarvegi að Geldingadölum er um 3,5 km og um einnar og hálfrar klst. ganga fyrir vel búið fólk Stórihrútur Festarfjall Borgar- fjall Ná tth ag i Ísólfsskáli Nátthagakriki Geldingadalir Suður strandarvegur Gri nda vík, 7 k m Krísuvík, 10 km A B Fagradals- fjall Heimild: Björgunar- sveitin Þorbjörn/ Steinar Þór Íslandsstofa fylgist grannt með umfjöllun erlendra fjölmiðla um Ísland. Eftir að eldgosið hófst fyr- ir viku rauk umfjöllunin upp líkt og gosið sjálft, samanber með- fylgjandi línurit hér til hliðar. Í gær hafði verið minnst á gosið í nærri 11 þúsund umfjöllunum, þar af um 1.200 sinnum í stórum miðl- um. Kristjana Rós Guðjohnsen, fag- stjóri almannatengsla hjá Íslands- stofu, segir mesta umfjöllun hafa verið í Bandaríkjunum, eða 38%, og þar á eftir koma Þýskaland, Ástralía og Bretland. „Mikið af stórbrotnu myndefni hefur birst í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum sem að hjálpar okkur að miðla þessum fréttum út í heim,“ segir Kristjana. Hún segir marga hafa verið duglega að birta myndefni á sam- félagsmiðlum af eldgosinu. Tekur þar dæmi af frægu myndbandi Björns Steinbekk sem hefur ratað í stóra miðla á borð við Daily Mail og ITV News, auk þess sem stór- leikarinn Will Smith deildi því á sinni instagramsíðu. „Okkar fyrstu viðbrögð eru að koma á framfæri upplýsingum um eldgosið og setja það í samhengi fyrir almenning erlendis, það skiptir máli að skilaboðin séu skýr um að gosið sé lítið og að fólki eða innviðum stafi ekki hætta af því og það hafi ekki áhrif á flug,“ segir Kristjana enn fremur en Ís- landsstofa á einnig náið samstarf við utanríkisráðuneytið um alla upplýsingamiðlun. bjb@mbl.is Umfjöllun um gosið í erlendum miðlum Fjöldi skipta sem gosið í Geldingadölum var nefnt frá 19. mars 2021 6.000 5.000 4.000 3.000 2.000 1.000 0 19.3. 20.3. 21.3 22.3. 23.3. 24.3. 25.3. 26.3. Heimild: Íslandsstofa Gosið hefur samtals 10.855 sinnum verið nefntí erlendummiðlum Ellefu þúsund umfjallanir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.