Morgunblaðið - 28.03.2021, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.3. 2021
Útgefandi Árvakur Umsjón Björn Jóhann Björnsson Blaðamenn Ágúst Ingi Jónsson, Guðni Einarsson,
Snorri Másson Kortagerð Sigurður B. Sigurðsson Auglýsingar Auglýsingadeild Prentun Landsprent ehf.
Forsíðumyndina tók
Kristinn Magnússon.
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Eldgosið í Fagradalsfjalli, einnig
kennt við Geldingadali, hefur nú
staðið yfir í rúma viku. Tugþúsundir
Íslendinga og ferðamanna hafa bar-
ið gosið augum og viðbragðsaðilar
búa sig undir enn meiri aðsókn yfir
páskadagana fram undan.
Almennt stendur ekki til að loka
aðgengi að gosinu, nema í óveðri eða
mikilli gasmengun. Kórónuveiran
hefur líka sín áhrif og hafa Almanna-
varnir biðlað til fólks að gæta að
sóttvörnum, halda fjarlægð á milli
og vera með grímu og hanska. Fólk í
sóttkví á ekki að fara að gosinu.
Að öðru leyti er svo mikilvægt að
fara vel útbúinn á svæðið og fylgja
leiðbeiningum lögreglu og björg-
unarsveitarmanna sem vakta svæðið
allan sólarhringinn. Hundruð manna
hafa komið þar að verki og sumir átt
svefnlitlar nætur.
Björgunarsveitin Þorbjörn í
Grindavík hefur stikað gönguleiðir
að gosinu (sjá kort) og búist er við að
gera þurfi þriðju gönguleiðina eftir
því sem gosinu vindur fram og vind-
áttir breytast. Ferðafélag Íslands
hefur sett á sinn vef (www.fi.is) hag-
nýtar leiðbeiningar fyrir þá sem
hyggja á gönguferð að gosinu. Með-
fylgjandi kort byggist að hluta á
þeim upplýsingum.
Bæta á bílastæðamálin
Ferðamálastofa setti upp teljara
við gönguleiðina að gosinu sl. mið-
vikudag. Í lok dags sýndi hann nærri
5.000 manns og daginn eftir um
1.200 manns. Hjálmar Hallgrímsson,
vettvangsstjóri hjá Lögreglunni á
Suðurnesjum, telur að enn fleiri hafi
séð gosið þessa daga þar sem taln-
ingin sé ekki alveg nákvæm. Hún
gefi þó ágæta vísbendingu.
„Þetta er búin að vera strembin
vika. Það gerði okkur erfitt fyrir að
Suðurstrandarvegur er laskaður en
Vegagerðin hefur lagað veginn. Í
framhaldi af því ættum við að geta
opnað veginn í báðar áttir. Við von-
umst til að geta lagað bílastæða-
málin fyrir páska,“ segir Hjálmar.
Lögreglan á Suðurnesjum hefur
aukið viðbúnað sinn og bætt við
mannskap, einnig fengið aðstoð frá
umferðardeild Lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu og sérsveit ríkis-
lögreglustjóra.
Mikið hefur mætt á Björgunar-
sveitinni Þorbirni. Formaðurinn
Bogi Adolfsson, sem einnig er
sjúkraflutningamaður, hefur lítið
sofið að undanförnu. „Þetta er eins
og ef þyrla myndi hrapa í bakgarð-
inum hjá þér, það verða einhver
læti,“ segir Bogi, spurður hvernig
það var að fá eldgosið í fangið í ná-
grenni Grindavíkur. „Annars höfum
við horft á þetta í lausnum, ekki
vandamálum. Aðalmálið er að allir
passi sig, búi sig vel til göngunnar og
hugi að sóttvörnum.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gæta þarf að sér í gosgöngu
- Tugþúsundir hafa sótt eldgosið í Geldingadölum heim - Verið vel útbúin og hugið að sóttvörnum
Fyrir gönguferðina Notið bestu gönguskóna
sem þið eigið
Athugið veðurspána
Takið þetta með
Takið líka með auka
par af sokkum
og hælsæris-
plástur
Leggið snemma af stað
Velja þarf gönguleið eftir
vindaspá hverju sinni, örugg-
ast er að hafa vindinn í bakið
Vatn á flöskum, hitabrúsa
með kaffi eða kakói og
smurt nesti fyrir daginn
Farsímasam-
band er nú orðið
ágætt á Fagradalsfjalli
Síminn ykkar er líka átta-
viti, vasaljós,
landakort og
GPS-tæki
– takið því
aukahleðslu-
banka með
fyrir símann
Munið líka
Verið í eða takið með vind-
og vatnsþéttan
hlífðarfatnað, einnig salernis-
pappír og plastpoka fyrir rusl
Eldgosið í Geldingadölum hefur heillað Íslendinga og þá
fáu erlendu ferðamenn sem eru á landinu. Að mörgu er
að hyggja áður en lagt er af stað á gosstöðvarnar.
Stikaðar leiðir
að gosstöðvunum
G
ru
n
n
ko
rt
/L
o
ft
m
yn
d
ir
eh
f.
B Gönguleið B er
um 4 km og er nokkru
erfiðari en leið A
A Gönguleið A frá Suður-
strandarvegi að Geldingadölum
er um 3,5 km og um einnar
og hálfrar klst. ganga fyrir vel
búið fólk
Stórihrútur
Festarfjall
Borgar-
fjall
Ná
tth
ag
i
Ísólfsskáli
Nátthagakriki
Geldingadalir
Suður
strandarvegur
Gri
nda
vík,
7 k
m
Krísuvík, 10 km
A
B
Fagradals-
fjall
Heimild: Björgunar-
sveitin Þorbjörn/
Steinar Þór
Íslandsstofa fylgist grannt með
umfjöllun erlendra fjölmiðla um
Ísland. Eftir að eldgosið hófst fyr-
ir viku rauk umfjöllunin upp líkt
og gosið sjálft, samanber með-
fylgjandi línurit hér til hliðar. Í
gær hafði verið minnst á gosið í
nærri 11 þúsund umfjöllunum, þar
af um 1.200 sinnum í stórum miðl-
um.
Kristjana Rós Guðjohnsen, fag-
stjóri almannatengsla hjá Íslands-
stofu, segir mesta umfjöllun hafa
verið í Bandaríkjunum, eða 38%,
og þar á eftir koma Þýskaland,
Ástralía og Bretland. „Mikið af
stórbrotnu myndefni hefur birst í
fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum
sem að hjálpar okkur að miðla
þessum fréttum út í heim,“ segir
Kristjana.
Hún segir marga hafa verið
duglega að birta myndefni á sam-
félagsmiðlum af eldgosinu. Tekur
þar dæmi af frægu myndbandi
Björns Steinbekk sem hefur ratað
í stóra miðla á borð við Daily Mail
og ITV News, auk þess sem stór-
leikarinn Will Smith deildi því á
sinni instagramsíðu.
„Okkar fyrstu viðbrögð eru að
koma á framfæri upplýsingum um
eldgosið og setja það í samhengi
fyrir almenning erlendis, það
skiptir máli að skilaboðin séu skýr
um að gosið sé lítið og að fólki
eða innviðum stafi ekki hætta af
því og það hafi ekki áhrif á flug,“
segir Kristjana enn fremur en Ís-
landsstofa á einnig náið samstarf
við utanríkisráðuneytið um alla
upplýsingamiðlun. bjb@mbl.is
Umfjöllun um gosið í erlendum miðlum
Fjöldi skipta sem gosið í Geldingadölum var nefnt frá 19. mars 2021
6.000
5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
0
19.3. 20.3. 21.3 22.3. 23.3. 24.3. 25.3. 26.3.
Heimild: Íslandsstofa
Gosið hefur samtals
10.855 sinnum verið nefntí erlendummiðlum
Ellefu þúsund umfjallanir