Morgunblaðið - 28.03.2021, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 28.03.2021, Blaðsíða 10
Frá því jörðin opnaðist á Reykjanesskaga kl. 20:45 föstudagskvöldið 19. mars hefur eldgosið laðað til sín fjölda fólks, sem skiptir orðið þúsundum eins og frá er greint framar í blaðinu. Skiptir þá litlu hvort fólk hefur farið að nóttu eða degi. Alltaf blasir við ný og ný sviðsmynd, eins vinsælt og það orð hefur verið undanfarnar vikur og mánuði í jarðhræringunum á Reykjanesskaga. Fram undan eru fjölmörg tækifæri til að ná myndum af gosinu, sem vísindamenn telja að geti haldið áfram árum saman. Hið sérstaka við þetta eldgos er að það er nánast í túnfæti byggðar á suð- vesturhorni landsins, þar sem stærstur hluti þjóð- arinnar býr. Hafi fólk ekki séð eldgos áður er komið kjörið tækifæri til að standa í návígi við gló- andi hraunið og taka af sér mynd í leiðinni. Þó að gosið teljist ekki orðið stórt miðað við mörg önnur hér á landi þá er það myndrænt, ekki síst að kvöldi til líkt og hér síðastliðið fimmtudagskvöld þegar ljósmyndari var á ferð. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Aðdráttarafl hraunsins er mikið en betra að fara varlega. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Á einni viku er hraunið á góðri leið með fylla einn af Geldingadölunum. Gígurinn er heldur ekki langt frá sömu hæð og nærliggjandi fell. Mannfólkið við hraunið er eins og maurar á þúfu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Eldgosið lokkar og laðar Sumir stytta sér leið með þyrlu og láta flugmanninn taka af sér mynd. Morgunblaðið/Eggert 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.3. 2021

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.