Þróttur. Knattspyrnudeild - 01.11.1988, Blaðsíða 2

Þróttur. Knattspyrnudeild - 01.11.1988, Blaðsíða 2
Hvað er að gerast hjá Þrótti? skoraö á foreldra í Langholtshverfi að taka þátt í að efla og styrkja þaö starf sem fram fer á vegum foreldra- félagsins. A undanfömum vikum og mán- uöum hefur fariö fram mikil umræöa innan Knattspymufélagsins Þróttar um uppbyggingu félagsstarfsins. Margir elchi Þróttarar hafa tekió þátt í þessari umræóu, en hugmyndin er sú aö virkja ennþá fleiri til starfa í fram- tíðinni. Það kostar mikla fjármuni aö halda uppi öflugu íþróttastarfi og rétt er aó nota tækifærið hér til aö þakka þeim fjölmörgu aðilum, einstakling- um og fyrirtækjum, sem stutt hafa við bakió á félaginu á undanförnum árum. Til þess aö styðja ennfrekar við þá uppbyggingu sem framundan er á vegum Þróttar, hefur verið stofnaður sérstakur styrktarmannasjóóur, sem greint er frá hér annars staðar í blaöinu og eins væntum við þess að íbúarhverfisinsminnistÞróttarerþeir fylla út getraunaseöla sína. Félags- merki Þróttar er 104, eða hió sama og póstnúmer hverfisins og meó því aó merkja við það númer á getrauna- seólunum, er tryggt að hluti upp- hæöarinnar rennur beint til hverfis- félagsins. Besti stuðningurinn sem Knattspymufélagið Þróttur getur þó fengiö er að íbúar Langholtshverfis fjölmenni á leiki félagsins og vonan- di verður þaó fastur liður í tilverunni hjá mörgum að láta sjá sig á heima- leikjunum við Sæviöarsund á sumri komanda. Þaó var oft gríðarleg stemmning á heimaleikjunum á gamla malarvellinum fyrstu árin sem Þróttur var í hverfinu og þessa stemmningu hyggjumst við endur- vekja á næsta ári - á 40 ára afinæli Knattspymufélagsins Þróttar. Knattspyma Vogaskóli Sunnudagur Kl. 9.40-11.10 5. Flokkur " 11.10-12.45 Meistaraflokkur " 12.50-14.20 6. Flokkur " 14.20-15.50 4. Flokkur " 15.50-17.10 3. Flokkur " 17.10-18.50 2. Flokkur Laugardalshöll Þriðjudagur Kl. 18.00 -18.50 5. og 6. Flokkur Eflir að meistarafiokkur félagsins féll niður í 3. deild nú í hanst hafa Þróttarar sest niður og fariðyfir sín mál. Haldnir vom tveir fundir innan félagsins þar sem staðan innan knatt- spymudeildarinnar var rædd opin- skátt.Umræóumarvommálefnalegar og niðurstaóan var eindregið sú að nú þyrfti að snúa blaóinu við. Hingaö og ekkilengra. Öllum er ljóst að starfið innan deildarinnar hefur á ýmsum sviðum mistekist á síöustu árum. Þetta vióur- kenna menn og vilja f leiðinni stuðla að því aó betur verói gert á næstu árum. Þetta er mikilvægt. Á þessum fundum kom fram um 20 manna hópur, flestir þekktir Þróttarar, sem lýsti sig reiöubúinn til aó takast á við það erfiða verkefni að endurskipu- leggja og byggja upp starf innan deildarinnar á næstu mánuðum. Þriggja manna „vinnuráði“ var falið aö koma þessu starfi af stað. Valin hefúr veriö sú leið að stofna sérstaka vinnuhópa sem fá aftnarkað verkefni til að vinna aó. Þannig em fleiri kallaðir til starfa og fleiri hendur vinna „létt verk“. Með þessu móti getur núverandi stjóm deildarinnar fengið svigrúm til þess að skila af sér betra borði til næstu stjómar. Engum dylst að starfió hefúr legiö á allt of fáum mönnum sfðustu árin. Vinnu- ráðið er skipað þeim Tryggva Geirs- syni, formanni Þróttar, Omari Sig- geirssyni og Gísla Sváfnissyni. Þeir hafa síóustu vikumar veriö að koma vinnuhópunum af stað. Helstu verk- efni sem þessar sérskipuðu nefndir fást vió em: 1. Unglingstarfið: Hópurinn hefúr þegar skilaö af sér tillögum. 2. Auglýsinganefnd: Skoðar hvaöa leióir gefa félaginu bestan árangur varðandi auglýsingar á félagssvæði Þróttar. 3. Framtíðarsjóður: Hópurinn vinnur að því að stofna stuðningsmannaklúbb Þróttar. 4. Bingónefnd: Hún endurskoðar rekstur bingósins sem deildin rekur f Glæsibæ. 5. Meistarflokksráð: Vmnuraö öllum málefnum er snúa að meistarflokki félagsins. 6. Hiis-og vailarnefnd: Setur umgengisreglur og fylgir þeim eftir í Þróttheimum og á félagssvæóinu. Nefndin sér einnig um viðhald á svæöinu. 7. Félgasstarfið: Hópurinn á aö skipuleggja félagsstarf allra flokka í deildum félagsins með nýtingu Þróttheima í huga. 8. Flugeldasala: Hópurinn stjómar starfi í kringum flugeldasöluna. 9. Herrakvöld; Nefndin undirbýr skemmtikvöld fyrirfélgasmenn. 10. Ritnefnd: Heldur úti fréttablaði félagsins og gefur út dreifirit þegar þess þarf með. Unglingastarfið Árangur yngri flokka Þróttar á knattspyrnuvellinum hefur verið slakur síðustu árin. Þó eru nokkrar undantekningar þar á. í ár vann 5 fiokkur félagsins sig upp um riðil í íslandsmóti og í 6. flokk félagsins er nú mikill efniviður sem var félagi sínu til sóma í sumar. Árangur í fjóróa, þriðja og öórum flokki var hins vegarmeð rýraramóti. Þetta er okkur öllum mikið áhyggjuefni. Nú í haust var skipuó nefnd til að vara í saumana á unglin- gastarfinu og hefur hún skilaö tillögum til aðalstjómar um hvað gera skuli. Mikilægast er að áhugasamir og reyndir menn með tilskylda menntun ráðist til starfa fyrir yngri flokka félagsins. Nauðsynlegt er einnig aó hver þjálfari hafi tvo aöstoðarmenn með sér.Við verðum að samræma þjálfunina í flokkunum þannig að sífellt sé verið að byggja á því sem fyrirer. Fram hafa komiö óskir um að stofna sjöunda flokk (8 ára og yngri). Gert er ráð fyrir að það verói gert eftir næstuáramót. Foreldrafélag Þróttar, sem var stofnað í fyrra, gegnir afar þýðingarmiklu hlutverki í starfi yngri flokkanna. Fyrsta árið lofar góöu og atorka þessa fólks sem hefúr gefið sig til starfans er aódáunarverð. 2 FréttabréfÞRÓTTAR

x

Þróttur. Knattspyrnudeild

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þróttur. Knattspyrnudeild
https://timarit.is/publication/1575

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.