Þróttur. Knattspyrnudeild - 01.11.1988, Page 3
Nýir þjálfarar
ráðnirtil Þróttar
Uppskeruhátiðin
Nú áhaustdögumeru nýirmenn að
komatilstarfafyrirÞrótt. Hinnkunni
og reyndi þjálfari Magnús Jónatans-
son hefur verið ráóinn til að þjálfa
meistaraflokk félagsins. Magnús
hefur komið víða við í þjálfun og var
síðast meö lió Selfyssinga í 2. deild-
inni. Áður hefiir hann þjálfað hjá Vík-
ing, U.B.K., Í.B.Í., K.R. og fleirum.
Hann er fyrst og fremst kunnur fyrir
að fara með lið upp á við en hefur þó
fallið með eitt lið á ferlinum.
Magnús er líka þekktur innan
knattspymunnar sem ötull fr æðari og
hefur hann sinnt fræóslumálum innan
K.S.Í á undanfömum árum. Hlutverk
hins nýja þjálfara er ekki auðvelt.
Strákamir okkar féllu niður í 3. deild
og nú þarf að nú upp réttum anda og
laða fram sigurvilja og vinna leiki. Ef
þaö tekst verður gaman aö vera meö í
fótbolta.
Þrðttarar bjóða Magnús velkom-
inn til starfa og binda við hann vonir
um að takast megi að snúa gengi
félagsins við á vellinum.
Búist er við að gengið verði frá
ráóningu þriggja þjálfara á næstu
dögum. Þeir em Gísli Sváfnisson,
Jóhann Hreióarsson og Rúnars
Sverrisson, en þeir hafa veriö á
námskeiöum á vegum Þróttar.
Þróttheimar
Getraunakaffi
Ungir og gamlir Þróttarar!
Komið í getraunakaffi og
kökur á laugardögum frá kl.
11.00 til 13.00
Leikirástaðnum:
Ballskák
Borðtennis
Skák
Fótbóltaspil
Getraunakaffió á laugar-
dögum er upplögð stund til að
rabba við gömlu félagana.
Hin árlega uppskeruhátið knatt-
spyrnudeildar Þróttar var haldin í
Glæsibæ 30. október síðastliðinn.
Foreldraféiag Þróttar átti mikinn
þátt í að hátiðin heppnaðist með
miklum ágætum.
Þar mættu allir flokkar félagsins
og stjóm deildarinnar verölaunaði þá
einstaklinga og hópa sem höfðu
skarað fram úr í sumar. Mæting var
mjög góó eóa um 250 manns þar af
um 70 fullorðnir.
Formaður félagsins, Tryggvi E.
Geirsson, ávarpaði félagsmenn og
h vatti alla Þróttara til að standa saman
og leggja sitt af mörkum til þess að
bæta félagið sitt.
Eftir mikla kökuveislu afhenti
síðan formaður knattspymudeildar,
Jón Ólafsson, viðurkenningar til
þeirra sem skömðu fram úr í ástundun
og getu.
Fyrirtækið Sanitas gaf þeim
leikmönnum sem hlutu vióur-
kenningu bolta og Heildverslunin
Hoffell gaf þeim leikmönnum sem
hlutu viðurkenninguna „Besti
leikmaður“ íþróttafatnaó. Magnús
Pétursson, eigandi Hofells, hét því að
styrkja þá flokka félagsins sem ynnu
íslandsmeistaratitil ríflega á næsti ári.
Þessi hlutu vióurkenningan
6. flokkur: Besti leikmaóur Gauti
Guðmundsson og Bjami Vesterdal.
Besta mæting: Stefán Óli Sig-
urðsson og Ingvi Sveinsson. Mestar
framfarin Haraldur B. Haraldsson og
Erlendur Sigurósson.
5. flokkur: Besti leikmaóur:
Ármann Ármannsson og Njörður
Ludvigsson. Besta mæting: Fjalar
Þorgeirsson og Óskar Ingólfsson.
Mestarframfarin ÓlafurBjömGunn-
arsson og Sigurgeir Finnsson.
4. flokkur: Besti leikmaður:
Tómas Eggertsson. Besta mæting:
Guðni Ingvason, Hlynur Marteinn og
Gylfi Gylfason. Mestar ffamfarir:
Guðmundur Guðjónsson.
3. flokkur: Besti leikmaður: Hall-
dór Steingrímsson. Besta mæting:
Vignir Arason, Þór Curtis og Mar-
teinn B. Helgason. Mestar framfarir:
Ólafur Freyr Sæmundsson.
2. flokkur: Besti leikmaður: Val-
geir Baldursson. Rúnar Steinn Ragn-
arsson hlaut viðurkenningu fyrir góóa
frammistöðu meó þremur flokkum,
öðrum flokki, fyrsta flokki og meist-
araflokki.
Meistaraflokkur: Besti leik-
maður. Sverrir Pétursson, hann var
jafnframt kjörinn leikmaður Þróttar
1988.
Viðurkenningar fyrir 100 meist-
araflokksleiki: Sigurður Hall-
varðsson og Nikulás Jónsson.
Viðurkenningar fyrir 200 meist-
araflokksleiki: Guðmundur Erhngs-
son og Jóhann Hreiðarsson.
Besti flokkur Þróttar 1988 var
Eldri flokkur.
Hann vann sinn riðil í
íslandsmótinu, vann sex leiki og gerði
eitt jafntefli. Varð að sætta sig við
silfurverölaun í mótinu eftir tvo
úrslitaleiki við Keflvíkinga.
Uppskerahátíðinni lauk síðan með
því að Þróttarar spiluöu bingó. Sumir
reyndu allt hvað þeir gátu til að
klófesta vinningana en uróu samt aó
lúta í lægra haldi.
FréttabréfÞRÓTTAR
3