Hugi : fréttabréf B.S.R.B - 09.01.1976, Síða 1
©
HUGI
FRÉTTABRÉF BSRB
Útgefandi:
Bandalag
starfsmanna
ríkis og bæja
Laugavegi 172
Ábyrgðarmaður:
Haraldur
Steinþórsson
9« janúar 1976 - 1. tbl. 1. árgangur.
Bætt fréttaþjónusta
Blaðið okkar heitir Hugi - og nafnið sækir það £ Snorra-
Eddu eins og Ásgarður.
Blaðinu er ætlað að flytja fréttir og skilaboð fljótt og
vel frá heimkynnum sínum - skrifstofu BSRB að Laugavegi
172 - á alla vinnustaði ríkis- og bæjarstarfsmanna nær
og fjær - í þéttbýli og um dreifðar byggðir.
Síðar verður e.t.v. reynt á vegum blaðsins að kalla eftir
svörum og annast almenna skoðanaköhnun varðandi veiga-
mikil vandamál.
Þessi kynning nægir í bili - Hugi er hlaupinn af stað.
HVERNIG Á HUGI AÐ NÁ TIL ALLRA OPINBERRA STARFSMANNA?
I síðasta tölublaði Ásgarðs er sagt frá stofnun starfs-
nefnda og trúnaðarmannakerfis á vinnustöðum. Öllum þeim,
sem tilnefndir hafa verið af bandalagsfélögunum í þá
fjölmennu sveit, verður sent blaðið svo og þeim sem eru
í stjórn bandalagsfélaga og samninganefnd BSRB.
En Hugi er ekkert einkabréf til útvaldra - heldur er þess-
um trúnaðarmönnum ætlað að sjá um að kynna blaðið á xxh
vinnustað sínum og meðal allra þeirra, sem þeir eru full-
truar fyrir.
Kynningu þarf að haga eftir stærð vinnustaðar og aðstæð-
um. Gera má Huga að veggblaði á auglýsingatöflu eða í
kaffistofu (munið þá eftir að syna allar blaðsiður t.d.
með samstarfi tveggja trúnaðarmanna eða fá viðbótarblað
hjá BSRB - einnig er hægt að festa upp bls. 1 og 4 annan
hvorn dag en bls. 2 og 3 hinn
daginn), einnig má láta blaðið
^anga milli allra starfsmanna
a vinnustaðnum. Að kynningu
lokinni eru trúnaðarmenn beðn-
ir að geyma Hu^a í skjalamöppu,
sem á að vera 1 umsja þess, sem
gegnir trúnaðarmannastarfinu á
hverjum tíma. Blaðið yrði þann-
ig vísir að handbók fyrir
trúnaðarmenn.
Hafi einhver sérstakan áhuga á
að fá Huga sendan, þá ber að
tilkynna það skrifstofu BSRB.
Trúnaðarmaður að starfi