Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.04.2021, Side 18
viðskiptadíllinn fyllt upp í hjartasárin?
Það er alveg sama hvað þú munt fara á
mörg reiðistjórnunarnámskeið í útlönd-
um eða láta skipta oft um blóð í þér. Ef
þú mengar tilveruna jafnóðum með
sjálfum þér og öllu sem þér
fylgir þá muntu tapa.
Svona rugl yfirtekur allt
og einn daginn missir þú
tökin.
Þegar öllu er á botn-
inn hvolft. Er ekki
betra að vera
bara bolurinn
sem maður er og
tana bara á Tene í
stað þess að vera í
eilífri baráttu við
eitthvað sem aldrei
mun taka enda? Það er
alveg sama hvað þú
eignast mikla peninga,
þú munt aldrei eignast
nóg, ef þú ert á sama
stað og frændur okkar í
Noregi.
ar eigin lífsstíls og gjörða.
Sem er kannski ekki skrýtið.
Ímyndaðu þér að þú værir að hagn-
ast verulega á hverjum degi
vegna innherjaupplýsinga og
værir háður hugbreytandi efn-
um sem þú sogaðir upp í nef-
ið í tíma og ótíma. Þú gætir
ekki tekist á við daginn
nema fá fixið þitt. Inn í
þetta blandast kannski
einhvers konar sam-
viskubit yfir því að
vera of oft með æxl-
unarfærin á stöðum
sem þau eiga ekki að
vera á. Kannski er samt bjart-
sýni að tala um samviskubit.
Fólk á þessum stað er nátt-
úrulega löngu búið að glutra
því niður.
Hvernig myndi þér líða ef
þú værir í þessari stöðu?
Væri lífið gott? Værir þú að
lifa til fulls? Getur flottasti jepp-
inn, dýrasta vændiskonan eða besti
L
andsmenn hafa svo sem ekki mikið annað
að gera þessa dagana fyrir utan nátt-
úrlega Brynjar Níelsson alþingismann
sem tanar á Tene. Hann er, ólíkt norsku efna-
hagsbrotamönnunum, alveg laus við allan hé-
góma og sportar sig um í hvítum sportsokkum
og plasttöfflum án þess að skammast sín. Það
að geta klætt sig eins og Brynjar er mikil list og
merki um að viðkomandi hafi ríkulegt sjálfs-
traust. Að fá að vera „landsþekkt drusla“ í friði
er fag sem ætti að kenna í háskóla en
þetta orðalag notaði hann sjálfur fyrir
nokkrum árum þegar ég tók viðtal
við hann um hans eigin klæða-
burð.
Ólíkt okkar manni Brynjari
þá eru norsku efnahags-
brotamennirnir minna af-
slappaðir og svo eru þeir svo-
lítið litlir í sér svona í
grunninn, eða alla vega þegar
á reynir. Fatastíllinn er upp-
skrúfaður og það sést langar
leiðir á klæðaburði þeirra að
Jeppe, William, Adam og Henrik
eru ekki frjálsir menn. Þeir eru fang-
Brynjar Níelsson al-
þingismaður naut lífs-
ins á dögunum í hvít-
um sokkum og
plasttöfflum. Hér er
hann ásamt Gústaf
bróður sínum. Hann
hefur fengið sama
fatauppeldi og Brynjar.
NRK
Hvort er betra, að tana á
Tene í plasttöfflum eða
sperra sig með Gucci-belti?
Norsku efnahagsbrota-
mennirnir í þáttunum Exit
eru alltaf glerfínir til fara.
. Norskir efnahags-
brotamenn fara helst
ekki út úr húsi nema vera
með klút í jakkavasanum.
Sjónvarpsþættirnir Exit, sem fjalla um norska efnahagsbrotamenn, eiginkonur þeirra, börn,
hjákonur og vændiskaup og hefðbundið peningavesen, eru komnir aftur á dagskrá RÚV.
Þegar fólk lifir jafn tilbreytingarsnauðu lífi og við landsmenn þessa dagana er nauðsynlegt
að geta verið fluga á vegg hjá óþekka og makalausa fólkinu í útlöndum.
Marta María mm@mbl.is
Hér getur þú séð hvernig
best er að klæða sig ef þú
ert eins innréttaður og
frændur okkur í Noregi.
Adam í öllu
sínu veldi.
Þú felur ekki óviðeigandi
gjörðir og hugsanir í ljós-
bláum blazer-jakka.
Ítalska tískuhúsið
hefur notið mikilla vinsælda
síðustu ár. Þótt tískuhúsið
geri margt gott þá er
Gucci-belti við flekklausan
pólóbol ekki að virka.
Virkaði kannski einhvern
tímann, en alls
ekki núna.
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.4. 2021
LÍFSSTÍLL