Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.04.2021, Qupperneq 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.04.2021, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.4. 2021 08.00 Barnaefni 08.15 Ást er ást 08.17 Hæna Væna 08.20 Víkingurinn Viggó 08.30 Adda klóka 08.55 Lína langsokkur 09.20 Mia og ég 09.40 Lukku láki 10.05 Ævintýri Tinna 10.25 It’s Pony 10.50 Angry Birds Stella 10.55 Skoppa og Skrítla á póstkorti um Ísland 11.55 Top 20 Funniest 12.05 Nágrannar 13.30 Gulli byggir 14.05 Blindur bakstur 14.30 Dagbók Urriða 15.25 The Office 16.50 60 Minutes 17.40 Víglínan 18.26 Veður 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.40 Sportpakkinn 18.50 Ísland í dag 19.05 Skítamix 19.35 Vegferð 20.05 We Are Who We Are 21.05 Tell Me Your Secrets 21.55 Prodigal Son 2 22.40 Shameless 23.35 Warrior ÚTVARP OG SJÓNVARP Sjónvarp Símans RÚV Rás 1 92,4 . 93,5 Omega N4 Stöð 2 Hringbraut 19.00 Framtíðin er rafmögn- uð; Þáttur 2 19.30 Að austan 20.00 Á elleftu stundu 20.30 Vegabréf; Soffía Ein- arsdóttir 18.00 Tónlist 18.30 Ísrael í dag 19.30 Jesús Kristur er svarið 20.00 Blönduð dagskrá 21.00 Blönduð dagskrá 22.30 Gegnumbrot 23.30 Tónlist 19.30 Hátíð vonarinnar (e) 20.00 Mannamál (e) 20.30 Suðurnesja-magasín Víkurfrétta (e) 21.00 Leiðtoginn 21.30 Sir Arnar Gauti (e) Endurt. allan sólarhr. 12.45 Dr. Phil 16.10 The King of Queens 16.30 Everybody Loves Ray- mond 16.55 The Bachelor 18.25 Life in Pieces 18.50 Með Loga 19.30 This Is Us 20.20 Systrabönd 21.05 Roadkill 22.05 The Good Lord Bird 22.50 The Walking Dead 23.35 The Resident 00.20 Ray Donovan 01.10 The Rookie 01.55 The King’s Speech 03.50 Síminn + Spotify 06.55 Morgunbæn og orð dagsins. 07.00 Fréttir. 07.03 Hringsól. 08.00 Morgunfréttir. 08.05 Á tónsviðinu. 09.00 Fréttir. 09.03 Svona er þetta. 10.00 Fréttir. 10.05 Veðurfregnir. 10.15 Bók vikunnar. 11.00 Guðsþjónusta í Fríkirkj- unni í Hafnarfirði. 12.00 Hádegisútvarp. 12.20 Hádegisfréttir. 13.00 Sögur af landi. 14.00 Víðsjá. 15.00 Lestin. 16.00 Síðdegisfréttir. 16.05 Úr tónlistarlífinu: Tríó í Kammermúsíkklúbbnum. 17.25 Orð af orði. 18.00 Kvöldfréttir. 18.10 Orðin sem við skiljum ekki. 18.50 Veðurfregnir. 18.53 Dánarfregnir. 19.00 Óskastundin. 19.40 Ástir gömlu meistaranna. 20.35 Gestaboð. 21.30 Fólk og fræði. 22.00 Fréttir. 22.05 Veðurfregnir. 22.10 Á reki með KK. 23.10 Frjálsar hendur. 24.00 Fréttir. 00.05 Næturútvarp Rásar 1. 07.15 KrakkaRÚV 07.16 Refurinn Pablo 07.21 Úmísúmí 07.44 Poppý kisukló 07.55 Kúlugúbbarnir 08.18 Lautarferð með köku 08.24 Hæ Sámur – 46. þáttur 08.31 Flugskólinn 08.53 Hrúturinn Hreinn 09.00 Múmínálfarnir 09.22 Robbi og Skrímsli 09.44 Eldhugar – Nellie Bly – blaðakona 09.48 Sjóræningjarnir í næsta húsi 09.59 Minnsti maður í heimi 10.00 Ævar vísindamaður 10.30 Andrar á flandri 11.00 Silfrið 12.10 Straumar 13.15 Kristnihald undir Jökli 14.45 Við getum þetta ekki 15.10 Með sálina að veði – Berlín 16.10 Carmen.Maquia og Ha- vanaklúbburinn 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 KrakkaRÚV 18.01 Stundin okkar 18.30 Landakort 18.35 Menningin – sam- antekt 19.00 Fréttir 19.24 Íþróttir 19.35 Veður 19.45 Landinn 20.20 Ísland: bíóland – Rödd í heimskór kvikmynda 21.25 Sódóma Reykjavík 22.45 Slæpingjar 00.20 Dagskrárlok 9 til 13 100% helgi með Stefáni Valmundar Stefán spilar góða tónlist og fer yfir valið efni úr morgun- og síðdegisþáttum. 13 til 16 100% helgi með Þór Bæring Þór Bæring og besta tónlistin á sunnudegi. Þór er góður að þefa uppi það sem fjölskyldan getur gert til skemmtunar. 16 til 18 Tónlistinn Topp40 Dj Dóra Júlía fer yfir 40 vinsælustu lög landsins á eina opinbera vinsældalista Íslands. Á bilinu 7-800 Íslendingar eru staddir á Kanaríeyjum þessa dagana og er Þórunn Reynis- dóttir, forstjóri Úrvals-Útsýnar ein af þeim. Þeir Logi Bergmann og Siggi Gunnars heyrðu í Þór- unni í Síðdegisþættinum og fengu að vita hvernig staðan er á Kanaríeyjum og hvernig það sé að ferðast á tímum heimsfaraldurs. „Það er bara voðalega huggulegt hérna og rólegt og bara notalegt. Ekki yfir neinu að kvarta. Fínasta veður, frábært golf- veður,“ útskýrir Þórunn sem segist ekki skilja það að fólk vilji ekki ferðast. Þórunn segir að þrátt fyrir heims- faraldurinn séu enn veitingastaðir og annað opið á Kan- aríeyjum. Þar sem Kanaríeyjar eru ekki skilgreindar sem sérstakt áhættusvæði getur fólk farið í sóttkví heima hjá sér eftir ferðalagið. Þórunn segir algjöran lúx- us að ferðast þegar svo fáir ferðamenn eru á svæðinu. Viðtalið við þórunni má nálgast í heild sinni á K100.is. Segir stöðuna huggu- lega á Kanaríeyjum Ég er á góðum stað núna vegnaþess að ég hef verið vinnusömen aldrei náð að verða fræg, sem ég er mjög þakklát fyrir. Því fer fjarri að nafn mitt sé á allra vörum fyrir þær sakir að ég mæti ekki í öll samkvæmin,“ segir breska leik- konan Olivia Cooke í samtali við breska blaðið The Independent og blaðamaðurinn bætir við að Cooke og vinir hennar, sem margir hverjir eru líka leikarar, séu ekki týpurnar sem verja sínum dýrmæta tíma í að fylgjast með þegar „einhver helvítis umslög“ eru opnuð. Cooke þarf ekki að ómaka sig um aðra helgi enda hlaut hún ekki til- nefningu til Óskarsverðlauna fyrir frammistöðu sína í Sound of Metal, eins og mótleikarinn, Riz Ahmed. Það breytir þó ekki því að þessi 27 ára gamla leikkona þykir standa sig vargavel í myndinni sem fjallar um pönktrymbil sem skyndilega fer að tapa heyrn. Cooke leikur unnustu hans og félaga í tónlistinni en þegar okkur áhorfendur ber að garði eru þau í ansi harðsnúnum dúett. Mögu- lega er tjaldtími Cooke ekki nægi- lega mikill í Sound of Metal til að hægt hefði verið að réttlæta tilnefn- ingu. Ýmsar aðrar leikkonur voru þó kallaðar og tökum ekkert af þeim. Cooke hefur verið meira áberandi í fyrri verkum sínum, svo sem í stór- mynd Stevens Spielbergs, Ready Player One, og í sjónvarpsþáttunum Bates Motel, þar sem hún lék Emmu Decody, stúlkuna sem Norman Bates var að skjóta sér í, frá 2013-17. Þá er hún í burðar- hlutverki í búningadramanu Vanity Fair, sem Ríkissjónvarpið hóf sýn- ingar á í vikunni, en það byggist á skáldsögu Williams Makepeace Thackerays frá því herrans ári 1848. Gott nafn þarna á ferðinni, þannig að við skulum skrifa það aftur, Willi- am Makepeace Thackeray. Og kannski einu sinni enn? Nei, látum þetta duga. Í viðtalinu við The Independent viðurkennir Cooke þó að hún hafi mest gaman af sokölluðum „indie“- verkefnum; það er myndum sem gerðar eru á jaðrinum, oftar en ekki fyrir takmarkað fé. Sound of Metal tikkar í það box og einnig myndin sem hún lék í næst á eftir henni, Pixie eftir breska leikstjórann Barnaby Thompson. Þar er á ferð- inni biksvartur spétryllir og fer Cooke með titilhlutverkið, hina eld- hressu Pixie O’Brien. Meðal auka- leikara er Alec gamli Baldwin, þann- ig að Donald Trump er líklega ekki búinn að sjá myndina. Veit ekki með Brynjar og Kára. Þrátt fyrir alls kyns hömlur í kvikmyndagerð vegna heimsfarald- ursins hefur Cooke ekki setið auðum höndum og þegar er búið að frum- sýna tvær myndir, sem hún leikur í, á þessu ári. Annars vegar er það rómantísk dramagamanmynd með vísindaskáldsögulegu ívafi eftir hinn bandaríska Chad Hartigan, Little Fish. Cooke er þar í forgrunni. Hins vegar erum við að tala um Naked Singularity, sem er fyrsta mynd bandaríska leikstjórans Chase Pal- mers. Hún mun vera á dramatísku nótunum og leikur Cooke á móti John Boyega. Eftir að hafa búið um fjögurra ára skeið í Bandaríkjunum flutti Cooke aftur heim til Bretlands í byrjun ársins. Hún fagnar því í viðtalinu. „Mér fannst ég glata svolitlu af per- sónuleika mínum þar; það var eins og fólk skildi mig ekki almennilega. Ég saknaði þess líka að geta grillað í fólki án þess að það sármóðgaðist.“ orri@mbl.is Olivia Cooke er lítið fyrir samkvæmi. Getty Images via AFP Í MÖRG HORN AÐ LÍTA HJÁ OLIVIU COOKE Aldrei náð að verða fræg Cooke ásamt Darius Marder, leikstjóra Sound of Metal, og Riz Ahmed leikara. Getty Images via AFP - heimili, hönnun, tíska og samkvæmislífið Lífstílsvefurinn okkar - fylgt landsmönnum í 10 ár SMARTLAND MÖRTUMARÍU Vertu með á nótunum

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.