Morgunblaðið - 08.05.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.05.2021, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2021 Aðalbókari Félagsbústaðir er öflugt og traust þjónustufyrirtæki á leigumarkaði með um 3.000 íbúðir til útleigu í Reykjavík. Á skrifstofu félagsins starfa að jafnaði 25 manns í anda gilda um samvinnu, virðingu og góða þjónustu. Félagsbústaðir er sjálfstætt hlutafélag í eigu Reykjavíkurborgar og eru í hópi framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi. Nánari upplýsingar um Félagsbústaði má finna á www.felagsbustadir.is. Menntunar- og hæfniskröfur: Félagsbústaðir óska eftir að ráða metnaðarfullan og drífandi einstakling til að gegna ábyrgðarmiklu starfi á fjármálasviði fyrirtækisins. Aðalbókari ber m.a. ábyrgð á færslu fjárhagsbókhalds og reglulegri uppgjörsvinnu og stýrir teymi bókara. Um fullt starf er að ræða og heyrir aðalbókari undir sviðsstjóra fjármálasviðs. Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is) í síma 511 1225. • Ábyrgð og umsjón með færslu fjárhagsbókhalds • Ábyrgð á reglulegri uppgjörsvinnu Félagsbústaða • Ábyrgð á afstemmingum á reikningum birgja, eigna og skulda • Ábyrgð á skilum virðisaukaskatts og kröfum um endurgreiðslu • Ábyrgð á gæðamálum bókhalds • Umsjón með samþykktarferli reikninga • Skýrslugjöf til innri og ytri aðila • Kostnaðargreiningar og innra eftirlit • Þátttaka í þróun bókhalds- og upplýsingakerfa Helstu viðfangsefni og ábyrgð: Umsóknarfrestur er til og með 24. maí 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. • Meistaranám í reikningsskilum og endurskoðun eða sambærilegt nám • Reynsla af bókhalds- og uppgjörsvinnu • Reynsla af stjórnunarstörfum eða stjórnun teyma er kostur • Framúrskarandi samskiptahæfileikar • Hæfni og færni í notkun bókhalds- og upplýsingakerfa • Nákvæm og skipulögð vinnubrögð • Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun • Mjög góð tölvukunnátta Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Hjá Seltjarnarnesbæ starfa rúmlega 300 manns. Í skipuriti Seltjarnarnesbæjar er stjórnsýslu og rekstri skipt upp í fjögur svið. Á hverju sviði er einn sviðsstjóri sem ber ábyrgð gagnvart bæjarstjóra á öllum málaflokkum sem undir sviðið heyra. Skipulags- og umhverfissvið hefur umsjón með öllum nýframkvæmdum á vegum bæjarins og allri starfsemi, sem tengist bygginga- og umhverfismálum bæjarins svo sem byggingareftirliti, brunavörnum, eftirliti með eigum bæjarins, gatna- og fráveitukerfum, umhverfismálum, garðyrkju og opnum svæðum. Seltjarnarnesbær rekur sína eigin hitaveitu með fjórum virkum borholum. Nánari upplýsingar um Seltjarnarnesbæ má finna á www.seltjarnarnes.is. Menntunar- og hæfniskröfur: Laust er til umsóknar starf sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs hjá Seltjarnarnesbæ. Leitað er að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í starf sviðsstjóra sem ber m.a. ábyrgð á skipulagsgerð í bænum í samræmi við lög nr. 123/2010 og reglugerðir og á framkvæmd opinbers byggingareftirlits í samræmi við gildandi lög nr. 160/2010 og reglugerðir. Um fullt starf er að ræða í stjórnsýslu bæjarins og heyrir sviðsstjóri beint undir bæjarstjóra. Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is) í síma 511 1225. • Yfirumsjón með skipulagsgerð, veitingu byggingarleyfa og eftirliti framkvæmda • Samskipti við hönnuði, verktaka og íbúa vegna skipulags- og byggingarleyfa • Ábyrgð og umsjón með útgáfu byggingarleyfa, vottorða og skráningu mannvirkja • Yfirferð og samþykkt aðaluppdrátta, verkfræði- og séruppdrátta • Ábyrgð á starfsemi þjónustumiðstöðvar, smábátahafnar, eignasjóðs, brunavarna, fráveitu, hitaveitu, vatnsveitu, umhverfismála, umferðar- og samgöngumála, framkvæmda- og viðhaldsmála bæjarins • Umsjón með náttúruverndarmálum ásamt umhverfis- og hreinlætismálum • Gerð starfs-, rekstrar-, og framkvæmdaáætlana • Sviðsstjóri situr fundi skipulags- og umferðarnefndar og umhverfisnefndar bæjarins Helstu verkefni og ábyrgð: Umsóknarfrestur er til og með 25. maí 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru konur jafnt sem karlar hvött til að sækja um. Um launakjör fer eftir ákvörðun bæjarráðs um stjórnendakjör Seltjarnarnesbæjar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. • Menntun sem nýtist í starfi • Réttindi skipulags- og byggingarfulltrúa • Reynsla af áætlanagerð, s.s. verk-, kostnaðar- og fjárhagsáætlanagerð • Leiðtogahæfni, jákvæðni, þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum • Þekking á sviði framkvæmda er nauðsynleg • Æskilegt er að umsækjandi uppfylli skilyrði 8. og 25.gr. mannvirkjalaga og 7. gr. skipulagslaga • Góð þekking á lögum og reglugerðum tengdum bygginga- og skipulagsmálum er æskileg • Þekking/reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skipulagshæfni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.