Morgunblaðið - 08.05.2021, Síða 10

Morgunblaðið - 08.05.2021, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2021 Stjórnarráð Íslands Dómsmálaráðuneytið Embætti héraðsdómara laust til umsóknar Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti héraðsdómara sem mun hafa starfsstöð við Héraðsdóm Reykjavíkur en sinna störfum við alla héraðsdómstólana eftir ákvörðun dómstólasýslunnar. Skipað verður í embættið frá 1. september 2021. Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 29. gr. laga nr. 50/2016. Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 620/2010 er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um: 1) menntun og framhaldsmenntun, 2) reynslu af dómstörfum, 3) reynslu af lögmannsstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun, 7) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetningar o.fl., 8) almenna og sérstaka starfshæfni, 9) andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum og 10) tvo fyrrverandi/núverandi samstarfsmenn/yfirmenn, sem og símanúmer þeirra eða netföng, sem geta veitt dómnefnd bæði munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda, sbr. 5. mgr. 5. gr. reglna nr. 620/2010 og 11) aðrar upplýsingar sem varpað geti ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skiptir fyrir störf héraðsdómara. Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) ferilskrá, 2) afrit af prófskírteinum, 3) afrit dóma ímunnlega fluttum málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 4) afrit af stefnu og greinargerð í málum sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 5) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 6) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjanda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 7) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem héraðsdómari. Umsóknir skulu berast dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 24. maí nk. Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum er áskilið að umsóknir og fylgigögn berist dómsmálaráðuneytinu á minnislykli eða með rafrænum hætti á netfangið starf@dmr.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir. Dómsmálaráðuneytinu, 7. maí 2021. Vélamaður Garðyrkjudeild Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma auglýsir eftir vélamanni: Starfssvið: ! Vinna með garðyrkjumönnum að umhirðu og grafartekt í kirkjugörðunum. Menntun og hæfniskröfur: ! Hafa E-réttindi á vinnuvélar. ! Vera þjónustulipur og tilbúinn að sinna tilfallandi verkefnum. ! Vera skipulagður og nákvæmur í starfi. Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á: kari@kirkjugardar.is fyrir 26. maí n.k. Nánari upplýsingar veitir garðyrkjustjóri í síma 585-2700 eða kari@kirkjugardar.is Upplýsingar um Kirkjugarðana má nálgast á netinu: www.kirkjugardar.is Atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytið auglýsir stöðu sérfræðings á skrifstofu sjávarútvegsmála. Við leitum að einstaklingi með hald- bæra reynslu og þekkingu á sviði sjávarútvegsmála, svo sem reynslu af skipstjórn, útgerðastjórn, haf- rannsóknum eða annarri þekkingu eða reynslu sem nýtist í starfinu. Umsóknarfrestur er til 17. maí næstkomandi. Sækja skal um starfið gegnum www.starfatorg.is, þar eru jafnframt allar nánari upplýsingar þar á meðal varðandi hæfniskröfur og helstu verkefni. Sérfræðingur á skrif- stofu sjávarútvegsmála atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.