Morgunblaðið - 08.05.2021, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2021
Stjórnarráð Íslands
Dómsmálaráðuneytið
Embætti héraðsdómara
laust til umsóknar
Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti héraðsdómara sem mun hafa starfsstöð við
Héraðsdóm Reykjavíkur en sinna störfum við alla héraðsdómstólana eftir ákvörðun dómstólasýslunnar. Skipað
verður í embættið frá 1. september 2021.
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 29. gr. laga nr. 50/2016. Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 620/2010
er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um: 1) menntun og framhaldsmenntun, 2) reynslu af dómstörfum,
3) reynslu af lögmannsstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og
öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra
o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun, 7) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum
við undirbúning lagasetningar o.fl., 8) almenna og sérstaka starfshæfni, 9) andlegt atgervi og sjálfstæði í
vinnubrögðum og 10) tvo fyrrverandi/núverandi samstarfsmenn/yfirmenn, sem og símanúmer þeirra eða
netföng, sem geta veitt dómnefnd bæði munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni
umsækjanda, sbr. 5. mgr. 5. gr. reglna nr. 620/2010 og 11) aðrar upplýsingar sem varpað geti ljósi á faglega
eiginleika og færni umsækjanda sem máli skiptir fyrir störf héraðsdómara.
Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) ferilskrá, 2) afrit af prófskírteinum, 3) afrit dóma ímunnlega fluttum
málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 4) afrit af stefnu og greinargerð í málum
sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 5) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem
umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 6) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjanda.
Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 7) Önnur gögn sem varpa ljósi
á faglega færni umsækjanda til starfa sem héraðsdómari.
Umsóknir skulu berast dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 24. maí nk. Til þess að hraða afgreiðslu umsókna
og bréfaskiptum er áskilið að umsóknir og fylgigögn berist dómsmálaráðuneytinu á minnislykli eða með
rafrænum hætti á netfangið starf@dmr.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Dómsmálaráðuneytinu,
7. maí 2021.
Vélamaður
Garðyrkjudeild Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma
auglýsir eftir vélamanni:
Starfssvið:
! Vinna með garðyrkjumönnum að umhirðu og grafartekt í kirkjugörðunum.
Menntun og hæfniskröfur:
! Hafa E-réttindi á vinnuvélar.
! Vera þjónustulipur og tilbúinn að sinna tilfallandi verkefnum.
! Vera skipulagður og nákvæmur í starfi.
Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á: kari@kirkjugardar.is fyrir 26. maí n.k.
Nánari upplýsingar veitir garðyrkjustjóri í síma 585-2700 eða kari@kirkjugardar.is
Upplýsingar um Kirkjugarðana má nálgast á netinu: www.kirkjugardar.is
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytið auglýsir stöðu sérfræðings á
skrifstofu sjávarútvegsmála.
Við leitum að einstaklingi með hald-
bæra reynslu og þekkingu á sviði
sjávarútvegsmála, svo sem reynslu
af skipstjórn, útgerðastjórn, haf-
rannsóknum eða annarri þekkingu
eða reynslu sem nýtist í starfinu.
Umsóknarfrestur er til 17. maí
næstkomandi.
Sækja skal um starfið gegnum
www.starfatorg.is, þar eru jafnframt
allar nánari upplýsingar þar á meðal
varðandi hæfniskröfur og helstu
verkefni.
Sérfræðingur á skrif-
stofu sjávarútvegsmála
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á