Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.05.2021, Síða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.05.2021, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.5. 2021 þetta væri. Og hvað væri að gerast. Hann er hár, stór og sterkur og með hníf á lofti. Ég öskraði rosalega hátt þrisvar, og horfði framan í hann en það voru engin viðbrögð. Það var enginn í húsinu og ég áttaði mig fljótt á því að enginn myndi heyra í mér þannig að ég hætti að öskra. Ég áttaði mig á því að ég væri bara að eyða orku og þetta væri ekki að hafa letj- andi áhrif á hann.“ Minnti á rándýr Herdís segist ekki hafa haft mikið ráðrúm til að bregðast við; maðurinn var kominn inn á gang á örskotsstundu. „Hann er með hnífinn hátt á lofti og heggur niður, í átt að höfði mér. Um leið. Og ég set höndina fyrir og gríp hnífinn,“ segir Herdís og sýnir blaðamanni örið á hendinni. Hnífurinn skar djúpan skurð á milli þumals og vísifingurs þar til hann stöðvaðist á beini. „Höndin skarst bara í sundur, alveg inn í miðjan lófa,“ segir hún og segir ótrúlegt hvað hafi farið í gegnum hugann á þessari stundu. Alls kyns litlar og furðulegar hugsanir skutust upp í kollinn. „Ég hugsaði að ég væri ekki að fara í hund- inn á næstunni,“ segir hún og á þá við jógastell- ingu þar sem höndum er þrýst í gólfið. „Næst setur hann ískaldan hnífinn að hálsi mér og ég hugsa, ok, þetta er búið. Ég man ég hugsaði, „Vá hvað ég bjóst ekki við þessu! Er lífið bara búið núna?““ segir Herdís og segir hann þá hafa rykkt hnífnum til baka til að ná að höggva í hálsinn með meira afli. Þessi auka sekúnda eða svo gaf Herdísi færi á að beygja sig undan högginu. „Af því ég var í svo góðu formi vegna jógaæf- inga, þá gat ég sveigt mig frá höggunum. Ég sá mig út undan mér í speglinum á ganginum og mér fannst ég vera að hreyfa mig hægt. Mér leið eins og í Matrix-myndinni. Ég næ að bakka og er þá komin fyrir horn, inn á bað,“ segir Herdís og segir að næst hafi hún króast inni á litlu þvottahúsi sem er inn af baðinu. „Ég hugsaði, hverju á ég að fórna næst? Ég lyfti fæti fyrir búkinn til að verja mig og þá stingur hann í lærið,“ segir Herdís sem er nú komin inn í litla þvottahúsið til að sýna blaða- manni nákvæmlega hvernig atburðarásin var. Ekki er laust við að um hann fari hrollur. „Ég sparka honum frá eins fast og ég get og þá stingur hann mig í hnéð en ég næ að grípa þvottakörfu og ver mig með henni,“ segir hún og lyftir upp þvottakörfu úr hörðu lérefti. Það er ekki sama karfan; hún hafði farið síðar og keypt aðra nákvæmlega eins. „Sjáöldur augna hans voru svo þanin af neyslu að hann minnti mig á rándýr. Þá man ég eftir náttúrulífsmynd, og ég heyrði bara nánast röddina í Attenborough segja frá dýrategund sem leikur sig lífvana til að minnka árásar- hneigð rándýrsins. Ég átti ekki mikinn séns þegar þarna var komið sögu. Ég var orðin mik- ið slæpt og það var ekki margt í stöðunni,“ seg- ir Herdís sem var þá mikið skorin og blóðug og farin að missa blóð og mátt. Ellefu stungusár voru á líkama Herdísar. „Ég ákvað því að prófa að rugla taktinn og lét mig lyppast niður á gólf. Ég vissi ekki hvort ég myndi lifa þetta af. Ég vonaði að hann sæi ekki hjartað berjast í gegnum rifbeinin eða heyrði andardráttinn. Þá öskrar hann: „Ég sleppi þér núna!“ Og svo labbar hann út,“ segir Herdís og segist hafa óttast að hann kæmi aft- ur inn. Í geðrofi og vímu Þegar Herdís heyrir að útidyrnar lokast kemst hún við illan leik inn í eldhús þar sem síminn hennar var. Hún flýtir sér þó fyrst að skella í lás svo ódæðismaðurinn komist ekki aftur inn. Hún nær í símann sem verður strax alblóð- ugur og virkar illa en tekst að hringja á 112. „Ég sagði í símann að maðurinn á neðri hæð- inni hefði reynt að drepa mig og mig vantaði sjúkrabíl. Ég held ég hafi líka nefnt að ég þyrfti handaskurðlækni. Ég hafði svo rosaleg- ar áhyggjur af hendinni. Svo spýttist blóðið út úr fætinum í stöðugum takti og ég var komin með svima. Mér var sagt í símann að ég ætti að ná í eitthvað til að binda um fótinn til að stöðva blæðinguna en ég hafði ekki orku í það. Ég ætl- aði að reyna að hringja í nágrannann en þá virkaði síminn ekkert. Ég lagðist niður við dyrnar svo ég gæti örugglega opnað þegar sjúkrabíllinn kæmi og setti svo fótlegginn upp í loft og það hægðist á blæðingunni,“ segir hún. Innan skamms iðaði gatan af lögreglu og sjúkraflutningamönnum og skömmu síðar kom sérsveitin. „Þá var hann með hnífinn á lofti í dyragætt- inni hjá sér,“ segir hún og segir hann hafa ver- ið í geðrofi og í amfetamínvímu. „Þá var kölluð út sérsveit og þeir gasa hann með táragasi og skjóta hann með gúmmíkúl- um, því hann var alveg brjálaður. Ég held hann hafi náð að sprauta sig aftur eftir árásina, því það var sprautunál í vaskinum í eldhúsinu sem er við innganginn. Hann var alla vega brjál- æðislega ör þegar þeir koma.“ Yfirheyrð kvalin og ein Strax var hafist handa við að koma Herdísi á spítala. „Ég afþakkaði verkjalyf og deyfilyf. Ég vildi vera skýr. Ég hafði áhyggjur af hendinni og vildi geta tekið réttar ákvarðanir. Það fyrsta sem ég gerði var að hringja í barnsföður minn og láta hann passa upp á að börnin, og ungu leigjendurnir, kæmu ekki heim í blóðbaðið,“ segir hún. „Svo kemur lögreglumaður á spítalann til að taka skýrslu. Mér finnst þetta svolítið sér- kennilegt, sérstaklega þegar ég fer seinna að skoða stöðu brotaþola. Þetta var mjög óþægi- leg staða. Ég er þarna ein, nakin undir laki og sundurskorin,“ segir hún og segir lögregluna hafa tekið af henni skýrslu þar sem hún lá þarna kvalin því enn átti eftir að sauma sárin og senda hana í aðgerð. „Það var aldrei tekin önnur skýrsla,“ segir Herdís og segir það undarlegt að gerandi eigi rétt á að hafa hjá sér verjanda í yfirheyrslu en brotaþolinn gefur sína skýrslu aleinn. Seinna bað hún um að sakóknari hefði samband við sig eftir að gerandi breytti sínum framburði en það var ekki orðið við því. „Reyndar er það öðruvísi í kynferðisbrota- málum og svo er verið að hnykkja á þessu í lagabreytingum. Ástæða þess að ég ákvað að tjá mig er vegna þess að eins augljóst og mitt mál er og að mörgu leyti þægilegt í afgreiðslu, þá er ég samt að upplifa brotalamir í kerfinu. Ég sé hversu slæmt þetta hefði getað orðið ef atburðarásin hefði ekki legið svona ljós fyrir. Ef ég hefði ekki komist í símann; ef ég hefði ekki staðið þetta af mér? Í málum þar sem sönnunarbyrðin er flóknari sé ég hvernig mál- in gætu þróast á annan veg,“ segir hún. „Það er svo skrítið að þótt maður hafi ekki gert neitt rangt, hefur maður áhyggjur af því að segja eitthvað rangt. Þótt einhver hafi reynt að drepa mig fór ég strax að hafa áhyggjur af því að ég myndi koma því vitlaust frá mér. Og þótt ég hafi verið þokkalega skýr þá var ég í bæði líkamlegu og andlegu áfalli. Ég var í sjokki, var búin að missa mikið blóð og var í grátköstum. Ég vissi ekki hvort ég kæmi til með að geta hreyft á mér hægri höndina.“ Mikilvægt að hafa stjórnina Ákveðið var að senda Herdísi í aðgerð, en fyrir aðgerðina fékk hún vinkonu sína til að koma og vera hjá sér. „Það var rosaleg hjálp í því, líka til að með- taka allar upplýsingarnar. Vinkonan gúgglaði alla læknana og sannfærði mig um að handa- læknirinn væri góður,“ segir hún og brosir. „Þá leið mér betur. Svo hjálpaði mér það mest að skurðlæknirinn gaf mér endalausan tíma fyrir aðgerðina til að ræða við mig. Ég fékk engin verkjalyf né róandi lyf fyrr en ég fór í aðgerðina,“ segir hún og viðurkennir að vissulega hafi hún fundið til. „Ég andaði mig í gegnum þetta. Hann saum- aði svo saman taugar og vöðva í hendinni og annar læknir saumaði saman skurði á fæti. Svo mátti ég fara heim, þannig að ég fór bara heim. Dóttir mín baðaði svo af mér blóðið.“ Hvernig var að koma heim, á vettvang glæpsins? „Það var valdeflandi fyrir mig að gefa þess- um atburði eða þessum aðila ekki meira dag- skrárvald yfir mínu lífi en nauðsynlegt var. Það var mikilvægt fyrir mig að halda stjórninni. Kannski fór ég langt í því en fólk hefur sínar leiðir,“ segir Herdís sem ákvað strax að horf- ast í augu við staðreyndir og halda áfram með lífið. „Það hjálpaði mér svo mikið að handa- skurðlæknirinn hafi sagt við mig: „Gerðu allt sem þú vilt gera; ekki láta neitt stoppa þig.“ Hann sagði að ég ætti að halda minni rútínu og mætti gera allt innan skynsamlegra marka varðandi líkamlegu áverkana. Þótt ég væri meidd var ég ekki veik og ég hafði engan áhuga á að sitja kyrr. Það hefði gert mig brjál- aða. Ég þurfti að halda rútínu og byrja strax að vinna mig frá þessu.“ Fékkstu áfallahjálp á spítalanum? „Nei. Ekki þar. Ég fékk seinna þrjá sál- fræðitíma í boði ríkisins. Börnin mín fengu enga áfallahjálp af því þau voru ekki vitni að atburðinum.“ Fór beint á kaffihúsið sitt Herdís vaknaði morguninn eftir árásina í sínu rúmi, staðráðin í að halda sínu striki. „Ég fór á uppáhaldskaffihúsið mitt. Ég vildi sjá kunnugleg andlit. Þarna er alltaf sami hóp- urinn á morgnana og ég vissi að einhverjir væru búnir að frétta af þessu. Átti ég bara að sitja heima og fá mér kaffi ein og vita að fólk væri að ræða hvað kom fyrir eða átti ég að mæta og segja fólki frá sjálf, þó að það væri auðvitað erfitt? Ég fór og fékk kannski kökk í hálsinn, en það var líka mín lækning. Og þá gat ég líka stýrt umræðunni sjálf,“ segir Herdís og segir að á sveimi hafi verið misvísandi fréttir af árásinni. Á næstu vikum var Herdís smátt og smátt að gera sér grein fyrir stöðunni. Hvernig hefur höndin gróið? „Ég er tilfinningalaus í vísifingri og hef ekki kraft í gripinu. Fínhreyfingar eru ekki góðar. Ég get vonandi náð upp betri styrk. Svo er ég með verki og stundum bólgna liðirnir upp.“ Af hverju ertu með klút bundinn um hönd- ina? „Ég er með taugahnúða í lófanum því taug- arnar fóru í sundur. Það er svo mikil skynjun; ofurnæmni og mikið áreiti á taugarnar. Það er ertandi og truflandi og klúturinn hjálpar og þá fæ ég ekki eins mikla verki.“ Herdís hefur verið í mikilli sjúkraþjálfun til að ná sem bestum bata. „Ég hef líka verið í vandræðum með fótinn. Ég var mikil fjallgöngukona og ætlaði upp á fjall sem fyrst. Ég hef verið alveg brjál- æðislega kvalin í fætinum og það kemur og fer. Stundum gat ég ekki sofið fyrir verkjum í fæt- inum. Ég er miklu verri í kulda þannig að ég hlakka til sumarsins.“ Einnig hefur Herdís farið til sálfræðings reglulega síðan hún varð fyrir árásinni. „Þó að mér finnist ég vera í lagi þá er ég kannski ekki dómbær á það þannig að ég ákvað að fara til sálfræðings til að komast sem heilust út úr þessu.“ Fannst ég vera svikin Datt þér aldrei í hug að flytja úr húsinu þar sem þessi skelfilegi glæpur átti sér stað? „Nei. Þetta er ekki húsinu að kenna. Ég hef oft verið spurð að þessu og líka hvort ég geti verið ein heima. Ég er rökhyggjumanneskja og ég skapaði þetta heimili alveg sjálf og kann mjög vel við það. Ég ætla ekki að láta þetta eyðileggja ánægjuna af því að búa hérna. Það er svo mikil sál í því sem ég er að gera hér. Þetta var náttúrulega rosaleg óheppni, eða það hélt ég fyrst. Sjálf árásin er kannski ekki að trufla mig eins mikið og það sem á eftir kemur. Ég er þá að meina hvernig kerfið virkar, en það er mikil vinna sem fór í gang í kjölfarið. Ég var jákvæðari fyrst, áður en ég vissi hvað hann var hættulegur, áður en ég fattaði hvað var mikil brotalöm í kerfinu,“ segir Herdís. „Það fóru að berast fréttir af því að hann ætti að baki langa afbrotasögu. Þá finnst mér ég vera svikin. Ég heyrði það fyrst í fréttum að hann hefði verið góðkunningi lögreglunnar,“ segir Herdís og fannst að fyrst lögreglan gat upplýst fjölmiðla um það, þá ætti almenningur að geta nálgast þær upplýsingar líka. „Það er mjög áhugavert að eins og sjá má inni á dómstólar.is eru skýrar reglur um birt- ingu dóma og úrskurða en þeim er greinilega ekki fylgt eftir. Leigumiðlunin hafði flett hon- um upp en þar kom ekkert fram þrátt fyrir ’ Sjáöldur augna hans voru svo þanin af neyslu að hann minnti mig á rándýr. Þá man ég eftir náttúrulífsmynd, og ég heyrði bara nán- ast röddina í Attenborough segja frá dýrategund sem leikur sig lífvana til að minnka árásarhneigð rándýrsins. Ég átti ekki mikinn séns þegar þarna var komið sögu.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.