Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.05.2021, Qupperneq 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.05.2021, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.5. 2021 LESBÓK L auga rna r í Rey k javí k Fyrir líkama og sál w w w. i t r. i s S ý num hve r t öð ru t illit s s e mi og virðum 2 m e t ra f ja rlægða rmörk in Endurgerð Leonardo DiCaprio var hlutskarpastur þegar boðið var út leyfi til að endurgera dönsku myndarinnar Drykkju, sem hlaut Óskarsverðlaun fyrir viku, á ensku. Ráð- gert er að DiCaprio fari með aðalhlutverkið, sem Mads Mikkelsen lék í dönsku útgáfunni, og framleiði myndina einnig. Myndin fjallar um fjóra miðaldra menn, sem ákveða að láta reyna á kenningu um að það sé affarasælla að vera ávallt eilítið hífaður. Thomas Vinterberg leikstýrði Drykkju, en ætlar ekki að stýra endurgerðinni. „Ég hef séð ýmsar túlkanir á verkum mínum áður,“ sagði hann. „Það fylgir því listræn spenna að sjá eitthvað vaxa í ólíkum útgáfum.“ Hann sagði að aðalhlut- verkið yrði í höndum eins besta leikara, sem völ væri á. „Ég er fullur vonar og forvitni,“ bætti Vinterberg við. DiCaprio í Drykkju Leonardo DiCaprio hyggst leika í endurgerð Drykkju. Morgunblaðið/Halldór Kolbeinsson Ónáð Leikstjóranum Chloé Zhao var hamp- að um allan heim eftir að hún fékk Óskarinn fyrir myndina Hirðingjaland, en heima í Kína var nafn hennar hvorki að finna á samfélags- miðlum né í ríkisfjölmiðlum. Der Spiegel sagði frá því að kínversk stjórnvöld hefðu þurrkað út ummæli um hinn nýbakaða sig- urvegara af félagsmiðlum. Hátíðin var á sunnudag og allar færslur um hana voru horfnar á mánudag. Zhao fæddist í Kína. Um- mæli hennar í viðtölum hafa vakið gremju kínverskra stjórnvalda. Hún fékk Óskar fyrir bestu leikstjórn og bestu mynd og Francis McDormand var verðlaunuð fyrir bestan leik. Zhao hvergi getið í Kína Chloé Zhao er ekki hampað í heimalandinu. AFP Schwarzenegger leiddist við skjáinn. Hvílík leiðindi Kvartsár Arnold Schwarzenegger, vaxtaræktarkóngur, leikari og fyrr- verandi ríkisstjóri Kaliforníu, kvart- aði undan því í viðtali í þætti Jimmy Kimmel að hann hefði verið að drep- ast úr leiðindum við að horfa á beina útsendingu frá Óskarsverðlaunahá- tíðinni og hætt snemma að horfa. „Hvernig gátu þeir með alla þessa hæfileika gert þetta svona leiðin- legt?“ spurði hann í viðtalinu. Schwarzenegger stakk upp á að næst yrði sent út frá hátíðinni frá Muscle Beach í Kaliforníu. Áhorf í Bandaríkjunum á útsend- inguna um liðna helgi dróst saman um um 58% miðað við í fyrra. 9,85 milljónir manna fylgdust með í ár, en 23,6 milljónir í fyrra. F lestir eiga íþróttaskó og margir hafa sterkar skoðanir á því hvernig þeir eigi að líta út, eru jafnvel tilleiðanlegir til þess að borga aðeins aukalega til þess að fá sína uppáhaldsskó. Sennilega eru þó fáir tilbúnir að ganga jafn langt og kaupandinn, sem festi sér notaða strigaskó í liðinni viku fyrir 1,8 millj- ónir dollara eða 223 milljónir króna. Um var að ræða par af Nike Air Yeezy 1, sem rapparinn Kanye West gekk í á sínum tíma. Uppboðshaldarinn Sotheby’s greindi frá þessu á mánudag og kom fram að upphæðin væri þrefalt hærri en áður hefði fengist fyrir íþróttaskó. Í ágúst 2020 seldist par af Nike Air Jordan 1 hjá uppboðs- haldaranum Christie’s fyrir 615 þús- und dollara eða 76 milljónir króna. Metið á verði fyrir strigaskó hefur ítrekað verið slegið undanfarið. Þyk- ir þetta bera því vitni að markaður, sem fyrir áratug taldist úti á jaðri, sé nú farinn að vekja athygli al- mennings og sömuleiðis helstu safn- ara. „Salan markar hæsta opinberlega skráða verð nokkru sinni fyrir sölu á íþróttaskóm,“ sagði í yfirlýsingu frá Sotheby’s. „Með þessari sölu fóru Strigaskór á kvartmilljarð Notaðir strigaskór fóru fyrir metfé hjá Sotheby’s fyrir viku. Markaðurinn með sérstaka og fágæta íþróttaskó hefur farið vaxandi og er ekki lengur úti á jaðri. Það sætir þó tíðindum þegar parið fer á kvartmilljarð króna. Karl Blöndal kbl@mbl.is Kanye West á sviðinu í Staples-höllinni á Grammy-hátíðinni 2008 klæddur skónum góðu. Sérhannaðir íþróttaskór í takmörk- uðu upplagi berast af og til til landsins og myndast þá biðröð. Í febrúar 2017 birtist mynd af fólki um miðja nótt fyr- ir utan Húrra Reykjavík þar sem dag- inn eftir áttu að fara í sölu strigaskór frá Adidas eftir Kanye West með nafn- inu Yeezy Boost 350 V2. „Adidas og Kanye hafa búið til frá- bæra vöru og sinntu góðu markaðs- starfi í kringum það,“ sagði Jón Davíð Jónsson, annar stofnenda Húrra Reykjavík, í samtali við Viðskipta- moggann nokkru síðar. „Þeir halda framboðinu mjög takmörkuðu og það er erfitt að eignast þessa skó. Þeir sem ná að kaupa þá úti í búð á 20 til 30 þúsund krónur geta selt þá á 100 þúsund eða meira á endursölumarkaði. Síðan hefur það gerst á undanförnum árum að skór eru að verða eins konar stöðu- tákn, alveg eins og bílar, húsgögn eða hvað sem er. Það er virði í því að vera í skóm sem enginn getur fengið, það sýnir ákveðna stöðu. Þetta er bara eins og hver önnur söfnun, fólk hafði áhuga á því að safna úrum eða frímerkjum á árum áður. Þetta er í raun alveg eins.“ Beðið eftir strigaskóm Um 70 manns sváfu fyrir utan Húrra Reykjavík um hávetur.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.