Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.05.2021, Qupperneq 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.05.2021, Qupperneq 32
SUNNUDAGUR 2. MAÍ 2021 AVANA model 2570 L 224 cm Leður ct. 15 Verð 509.000,- L 244 cm Leður ct. 15 Verð 529.000,- LEUCA model 3186 L 167 cm Leður ct. 15 Verð 369.000,- L 207 cm Leður ct. 15 Verð 419.000,- ESTRO model 3042 L 164cm Leður ct. 10 Verð 359.000,- L 198 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,- ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla LEVANTE model 3187 L 204 cm Leður ct. 25 Verð 459.000,- L 224 cm Leður ct. 25 Verð 479.000,- CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (Visa / Euro) í allt að 6 mánuði. Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15 ETOILE model 2623 L 200 cm Leður ct. 25 Verð 549.000,- L 230 cm Leður ct. 25 Verð 599.000,- Á þriðjudag gaf útgefandinn W.W. Norton út að ekki yrðu prentuð fleiri eintök af bókinni Philip Roth: The Biography eftir Blake Bailey og sama ætti við um sjálfsævisögu Bai- leys, The Splendid Things We Plan- ned. Viku áður hafði forlagið tekið ævisögu rithöfundarins og hætt kynningu eftir að ásakanir komu fram um að ævisöguritarinn hefði beitt tvær konur kynferðislegu of- beldi og komið ósæmilega fram við táningsstúlkur þegar hann var kennari á tíunda áratugnum. Roth, sem fékk fjölda viðurkenn- inga á ferlinum og lést 2018, fékk Bailey á sínum tíma til að skrifa ævi- sögu sína eftir að hafa hafnað öðrum því að hann var ekki ánægður með hvernig fjalla ætti um meðferð hans á konum og ávirðingar um kvenfyrirlitningu. W.W. Norton sagði ásakanirnar gegn Bailey það alvarlegar að bregðast þyrfti við og tilkynnti að jafnhá upphæð og hann fékk greidda fyrir fram fyrir bókina yrði gefin samtökum, sem berjast gegn kyn- ferðislegu ofbeldi og ofsóknum og vinna í þágu fórnarlömba. Bailey neitaði alfarið öllum ásök- unum á hendur sér í tölvupósti til fréttaveitunnar AFP. Ævisaga Roths kom út 6. apríl og seldist vel. Hún var prentuð í 50 þús- und eintökum í upphafi að því er fram kom í The New York Times og kom ekki fram hjá forlaginu hvað myndi verða um eintök, sem þegar hefðu verið prentuð. Bókin var enn til sölu hjá vefversl- uninni Amazon í vikunni. AFP Ævisögu Roths slaufað Rithöfundurinn Philip Roth hafði áhyggjur af því hvernig fjallað yrði um framkomu hans við konur og valdi sérstaklega ævisöguritara sem hann treysti. Nú hefur forlagið hætt útgáfu ævisögunnar út af ásökunum um að höfundur hennar hafi gerst sekur um kynferðislegt ofbeldi. Philip Roth tekur á móti orðu í Hvíta húsinu árið 2011 fyrir framlag sitt til bandarískra bókemnnta. Greint var frá því í Morgunblaðinu 14. maí 1966 hvaða höfundar hefðu verið vinsælastir í almenn- ingsbókasöfnum landsins um á fyrri hluta sjöunda áratugarins. Birt var skrá um útlán bóka árin 1962, 1963 og 1964 eftir höfundum. Árið 1962 voru flestar bækur teknar út eftir Guðmund G. Hagalín og var Guðrún frá Lundi í öðru sæti. Árið eftir voru bækur eftir Ingibjörgu Sigurðardóttur oftast teknar út og enn var Guðrún frá Lundi í öðru sæti. Árið 1964 höfðu þær haft sætaskipti, Guðrún frá Lundi var komin í efsta sætið og Ingibjörg Sigurðardóttir komin í annað sætið. Bækur Guðrúnar frá Lundi eru enn vinsælar hjá gestum almenningsbókasafna. Listar þá og nú eru reyndar ekki með öllu sambærilegir því að nú eru vinsælustu titlarnir teknir saman, en ekki vinsælustu höfundarnir. Dalalíf eftir Guðrúnu frá Lundi toppaði útlánalista almenningssafna hér á landi árin 2017 og 2018. Árið 2019 var hins vegar Arnaldur Indriðason í efsta sæti með Stúlkuna hjá brúnni og 2020 Hvíti- dauði eftir Ragnar Jónasson. Bókin Vetrarmein eftir Ragnar er síðan efst það sem af er þessu ári. GAMLA FRÉTTIN Lásu Guðrúnu frá Lundi og lesa enn Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Guðrún Baldvina Árnadóttir, skáldkona frá Lundi í Skagafirði. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Sissy Spacek leikari Isabelle Huppert leikari Auður Ava Ólafsdóttir rithöfundur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.