Þjálfi - 01.05.1932, Blaðsíða 2

Þjálfi - 01.05.1932, Blaðsíða 2
2 ÞJALFI „kviknar hjá kotum og seljum, og kviðfylli gerist í nautum ogbeljum“, en hann nær bráðari þroska og betri ilm. það starf, sem áhugasamir, ungir menn leggja í sum- aríþróttirnar hér veitir líka hraðari þroska og meiri göfgi en margt af því starfi, sem vinna má árið alt og hægt er að nota til kviðfylli. þegar íþróttastarfið er unnið í réttum anda, þá þroskar það bæði sál og bkama. það miðar að því marki, sem ein af öndvegisþjóðum heimsins setti æskulýð sínum, en það er „men« sana in corp- ore sano“ — heilbrigð sál í hrausturn líkama Sumarið síðasta var viðburðarríkur tími í íþrótta- sögu Vestmannaeyja, þar sem þá var hér háð hið fyrsta íþróttamót í. S.í. utan höfuðstaðarins — íþróttamót, sem veittl íþróttamönnum okkar mörg ný met og verðlaun. Siðan hefur fallið úr leík í b’li úr hópi Vestmannaeyinga einn af giæsilegustu og fjölhæfustu iþróttamönnum lands- ins. þess meiri vandi legst á herðar hinna, sem drengtlega og vel börðust fyrir þeim árangri, er þá náðist. því meiri einbeitningu, vilja og vöðva þarf hjá þeim til að halda metum hans innan K. V. Og eftir því sem óhapp og aldur höggva fleiri skörð í fylkinguna, eftir því verður að leggja meiri áherslu á að ala upp frá blautu barnsbeini nýja, marksækna og áhugasama íþrótta- menn. En aldurinn færist því miður alt of fljótt yfir marga íþróttamenn. Innan þrítugs hafa margir þeirra mist þann áhuga, stælni og þrautseigju, sem hver góður íþróttamaður þarf að hafa. þess- ir nauðsynlegu eiginleikar tilheyra fyrst og fremst æskunni, og þverrun þeirra er fyrst og fremst éUinörk. Ellin kemur öllum á kné að lokum, eins og þóríhöll Útgarða-Loka, og er ekkert við því að segja, en ofsnemt er að láta hana heykja sig í hnjánum á unga aldri. Iþróttamenn og meyjar! í nafni íþróttaráðs Vestmannaeyja óska ég ykkur gleðilegs sumars, —- sumars, sem megi flytja ykkur margar ánægju legar stundir við iðkunn íþrótta og þeim skemt- un og gleði, er á horfa. Hitti þa.ð ykkur með eldmóð æskunnar og áhuga hins sanna íþrótta- manns, sem lifir reglusömu lífi, iðinn við æfing- ar og drenglyndur í gatð keppinauta. Flytji það ykkur frama og sigra, gleði og gengi í leik! P. V. G. Kolka. Nýjustu heimsmet 1932. Frjólsar íþróttir: Georg Spitz (U- S. A ) setti nýlega nýtt heims- met í hástökki, stökk hann 2 04 st. Er það 2 mm. hærra en met Amerikumannsias Osborne’s. (ieorg Venzka (U. S. A.) setti einnig fyrir skðmmu heimsmet í ^500 st. hlaupi innanhúss. Tíminn var 5.53,4 trdn. Eldra metið sem var 3,56 mín. átti finski hlaupagarpurinn Nurmi. Gulzar Ahmed (Indland) setti nýiega nýtt heims- met í 1 enskrar rm'Iu-hlaupi (ensk míla er = 1609 st.). Tími hans er 4 08 4 mín. og er það 8/10 sek. skemmri timi en met það, er frakkinn Ladou- meque setti í okt. síðastl — Ahmed hefur fram að þessu verið óþekktur hlaupari, en fyrr slikt afrek er hann nú vitanlega orðinn heimsfrægur. Sand: Clara Dennis (AusturrÍKÍ) setti nýlega nýtt hein:Smet í 200 st. bringusundk Tíminn var 3,08,6 m. (fslenska metið er 3 41 mín, sett af þórunni Sveinsdóttur í K. R.) Leonard Spence (U. S. A.) setti fýrir skömmu nýtt met í 100 yards bringusundí. Timmn er 1,06,4 mrn. (100 yards — 93 st.). Skautahlaup: 20. marz s. 1. setti Norðmaðurinn Synnöve Lie nýtt heimsmet í 500 st. hraðhlaupi á 56 sek. Einnig setti hún nýtt met í 1000 st. hraðhlaupi. Na'ði hún óskaplegum flýti, — rann skeiðið á 1,52,2 mín. — Verna Leskhe (Finnland) setti fyrir nokkru nýtt heimsmet í 5 rasta skautahlaupi. Var tim- inn 11,02,9 mín. Fyrra metið átti pólsk stúlka, Sonia Netringen; var það 11,30,5 mt'n. 23. marz. s. 1. hljóp Ameríkumaðurinn Ben Eastman 400 st. á 46 sek. Vakti þetta stórkost- lega afrek feikna athygli meðal íþróttamanna um allan heim. Hefur hmgað til þótt stórkostlega góður árangur að hlaupa þessa vegalengd á 50 sek., en ávo kemur þessi Ameríkumaður og renn- ur skeiðið á 46 sek. Til samanburðar má geta þess, að íslenzka metið er 54,4 og þykir gott! Er fróðlegt að bera saman öll þessi íþróttaaf- rek út um heim og árangurlnn hjá okkur. — það er auðvelt að sjá, hversu óskaplega við eig-

x

Þjálfi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjálfi
https://timarit.is/publication/1591

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.