Þjálfi - 01.05.1932, Síða 3
ÞJAlfi
3
um langt í land til slíkra afreka. Ætti þessi
samanburður að verða til þess að örva íþrótta-
mennina okkar upp. — þó það sé að vísu gaman
að einstaká garpur nái ágætum árangrum, finnst
oss þó miklu gagnlegra, að sem flestir — helst
allir — iðki íþrót'ir, hvað sem árangrlnum líður.
Stefnuskré „þjálfa“ er sú, að fá alla Vestmanna-
eyinga til þess að iðka íþróttir — án tillits tú af-
reka einstakra íþróttamanna.
ný hafa þeir unnið oss frægð með hinni ágætu
framgöngu sinni — og þeir e!ga eftir að gera það
enn rþreifanlegar.
Vestmeyingar vaknið ! Vaknið til meðvitundar
um,að hér blunda bundnir Kraftar, sem eiga eftir
að gera eyjuna okkar fræga. Sýnið þeim alúð
og nærgætni og styðjið hag þeirra eftir mætti,
Á. G.
Víðavangshlaupið
fyrsta sumardag.
Á sumardaginn fyrsta s. 1. fór fram 17. víða-
vangshlaup I. R. Eins og kuunugt er, tóku 6
Vestmannaeyingar þátt í því. 42 keppendur gáfu
sig fram, og er það mesti keppendafjöldi við
þetta h!aup. Einhverra crsaka vegna hlupu þó
ekki nema 39 og 32 komust að marki. Fyrstur
varð Gísli Finnsson úr K. V. Vann hann þar
glæsilegt afrek, sem lengi mun í minnum haft.
Tók Gísli strax að sér forystuna og »Ieiddi«
hlaupið alia leið að marki. Tíminn var ágætur,
13 mín. 36 sek. (vegalengdin er ca. 4000 st)
Tíminn hjá 2 manni var 13 mín. 47 sek., svo
þar er auðvelt að sjá, hve glæsilegan sigur Gísli
vann. -- 2. og 3. maður í hlaupinu voru báðir
úr U. M. F. Visi á Hvalfjarðarströnd, 4. 5. og 6.
úr K. R. 7. Geir Jónsson K. V. Én frægi hlaup-
arinn okkar Karl Sigurhansson varð aðeins 11.
Eigum vér bágt með að sætta oss við svo lélega
frammistöðu af Karll, enda erum vér þess full-
vissir, að hann aflar sér rækilegrar uppreisnar á
komandi sumri.
7 sveitir frá 5 félögum tóku þátt í hlaupinu
og var önnur sveit K R. fyrst. 2. varð sveit
U. M. F. Vísis og 3. sveit K. V. Má árangur far-
arinnar því teljast góður, þar eð Vestmeyingar
eiga 3. sveit af 7 og fremsta mann af 39.
Suðurfararnir hafa beðið oss að geta þess, að
í. R. hafi tekið ágætlega á móti þeim og sýnt
þeim hina mestu alúð í hvívetna. Færum vér
í. R. bestu þakkir íyrir viðtökurnar.
Vestmeyingar! Enn á ný hafa fþróttamenn
ykkar borið hróður ykkar út um landið. Enn á
Sumar Olympiu-leikarnir
til Noregs?
Oslo 1. apríl 1932.
Amerikumenn hafa afsalað sér Olympiu-Ieikun-
um, sam halda átti í Los Angeles i sumar, og
hefur Norðmönnum verið gefinn kostur á að
halda þá í Oslo.
Ástæðan til þessa er sú, að hinn alkunni
glæpamannaforingi, A1 Capone hefur slopp'ð úr
fangelsi og gengur nú laus. Hefur hann mynd-
að samband við alla alræmdustu áfengis-smygl-
ara og glæpamenn í borgunum Chicago og Los
Angeles, í þeim tilgangi, að hafa Olympiu-ieikana
að féþúfu. En til þess að sporna v/ð þessu, sá
Hoover íorseti sér ekki annað færr, en afsala
Bandaríkjunum leikana. — Vitanlegt er, að tjón
það er Bandaríkin hafa af þessu, nemur miljón-
um króna. Hefur þegar venð iagt fram stórfé
til þess að gera alla leikvanga o. þ. h. eins vel og
ríkmannlega úr garði og kostur er. Öllum þeim
peningum er í rauninni kastað á glæ.
Norðmönnum hefur verið boðið að halda leik-
ana sökum þess, hve ágætlega þeir stóðu sig á
vetrar- Olympiuleikunum í Lake Piacid.
Olympiuleikarnir eru haldnir fjórða hvert ár,
í sínu land'nu hvert árið. Eru þeir eins ogna n-
ið bendir til, haldnir til minningar um leiki þá
er Foru-Grikkir héidu 4. hvert ár á Olymps-
völlum vestan til á Pelopsskaga. Olympsíeik-
arnir eru Iang markverðustu íþróttamót, sem ha’d-
in eru. Áhorfendur skifta oft hundruðum þús-
unda.
f