Morgunblaðið - 28.06.2021, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.06.2021, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 8. J Ú N Í 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 149. tölublað . 109. árgangur . niður dagana.Bókaðu borgarferð haust og byrjaðu að telja LÆKNAR LANG- ÞREYTTIR Á ÁSTANDINU BELGAR OG TÉKKAR FARA ÁFRAM VANN MÓTIÐ OG FÖÐUR SINN UM LEIÐ EM Í KNATTSPYRNU 27 TEKKEN-MÓT MBL.IS 6THEÓDÓR SKÚLI 11 Ferðamönnum hefur fjölgað veru- lega síðustu tvær vikurnar og má segja að íslenska ferðaþjónustu- sumarið sé farið að taka við sér. Umferð farþega gegnum Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur fjölgað úr um eitt til tvö þúsund á dag í um fjögur til fimm þúsund, á aðeins tveimur vikum og verður óhjá- kvæmilega til þess að það hægist á röðum, að sögn Arngríms Guð- mundssonar, aðstoðaryfirlög- regluþjóns Lögreglunnar á Suður- nesjum. „Það er bara meiri þungi, það fjölgar ferðamönnum og afkasta- getan er bara ákveðið mikil,“ segir hann í samtali við Morgunblaðið. Ísland komst á föstudag í heims- fréttirnar þegar öllum takmörk- unum var aflétt innanlands, fyrst allra Evrópuríkja. Bólusetningar hér á landi hafa gengið hratt og örugglega síðustu vikur. Í vikunni heldur lokaspretturinn áfram þegar allt að 37 þúsund manns hljóta sinn seinni skammt. Gangi allt eftir verða um 90% þeirra sem eru 16 ára og eldri full- bólusett innan þriggja vikna. »4 Fleiri ferðamenn á ferli Morgunblaðið/Eggert Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Vatnshæð í Þórisvatni mælist mun lægri nú en á sama tíma í fyrra. Skýrist þetta meðal annars af því að veturinn hefur verið kaldur og vorið hefur verið úrkomulítið á Suður- og Suðvesturlandi, að sögn Óla Grétars Blöndal Sveinssonar, forstöðumanns þróunar vatnsafls hjá Landsvirkjun. „Það veldur því að Þórisvatn er frek- ar lágt og mun lægra en á síðasta ári,“ segir hann. Of snemmt er að segja til um hvort þetta verði til þess að takmarkanir verði á raforkuaf- hendingu en vatnsfallið mældist í gær 567,84 metrum yfir sjávarmáli (m.y.s.), í samanburði við síðasta vatnsár þar sem vatnsfallið mældist 576,1 m.y.s. Áætlað meðaltal vatns- falls í Þórisvatni er 575,07 m.y.s. „Við sjáum á næstu mánuðum hvað áhrif jökulbráðnunin hefur, sem er að fara á fullt í júlí og ágúst venjulega. Það er yfirleitt sá tími sem við erum að fá mikla hækkun inn í lónin,“ segir Óli. Þórisvatn sé hins vegar töluvert frá jöklum þann- ig að umhleypingar og úrkoma eigi stóran þátt í vatnshæðinni. „Lægsti punkturinn er vanalega kringum mánaðamótin maí/júní. Þetta er það lægsta sem má vænta miðað við árstíma en síðan er spáð hlýindum fram undan,“ segir hann. Þótt að Þórisvatn sé nú óvenjulágt geti jökulbráð komið til með að laga stöðuna verulega fram á haustið. »4 Vatnshæðin óvenjulág - Vatnshæð í Þórisvatni mun lægri en á sama tíma í fyrra Með því að taka ákvörðun um að hleypa úr lóninu við Árbæjarstíflu með varanlegum hætti og eyða þannig lóni sem þar hefur verið í eitt hundrað ár, án nauðsynlegra skipulagsbreytinga eða leyfa og án samráðs við íbúa á svæðinu, hefur Orkuveita Reykjavíkur brotið gegn lögum og rétti íbúa. Þetta segir Björn Gíslason, borg- arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, í að- sendri grein í Morgunblaðinu í dag. Stýrihópur sem Björn sat í skilaði nýverið skýrslu um framtíð Elliða- árdalsins til borgarráðs. Þar var meðal annars fjallað um þá ákvörðun að hleypa úr lóninu og skilaði Björn sératkvæði í því máli. Hann segir að þetta muni hafa verulega neikvæð áhrif á landslag útivistarsvæðisins og nær- umhverfi íbúa. »15 Eyðing lónsins hafi verulega neikvæð áhrif Björn Gíslason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.