Morgunblaðið - 28.06.2021, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2021
TILBOÐ Í SÓL
ALBÍR PLAYA HOTEL & SPA 4*
ALBÍR, SPÁNN
FRÁBÆRT FJÖLSKYLDUHÓTEL MEÐ HÁLFU FÆÐI
WWW.UU.IS | 585 4000 | INFO@UU.IS
01. - 08. JÚLÍ
VERÐ FRÁ: 79.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
HÁLFT
FÆÐI
INNIFALIÐ FLUG, GISTING, HÁLFT FÆÐI, HANDFARANGUR OG INNRITAÐUR FARANGUR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Óheimilt að svara ákalli Landverndar
- Landvernd skoraði á sveitarfélög að taka gjald fyrir nagladekk - Valdið liggur hjá ráðuneytinu
Urður Egilsdóttir
urdur@mbl.is
Landvernd samþykkti ályktun um gjaldskyldu
fyrir notkun nagladekkja á höfuðborgarsvæð-
inu á aðalfundi sínum 12. júní. Með ályktuninni
skoraði Landvernd á sveitarfélög á höfuðborg-
arsvæðinu að taka upp gjaldskyldu fyrir nagla-
dekk. Samkvæmt umferðarlögum hafa sveitar-
félögin ekki heimild til þess konar gjaldskyldu
heldur liggur valdið hjá samgöngu- og sveit-
arstjórnarráðherra.
Kom til álita að veita heimild árið 2019
Í skriflegu svari frá Þórmundi Jónatanssyni,
upplýsingafulltrúa samgöngu- og sveitarstjórn-
arráðuneytisins, um breytingu á því ákvæði
segir hann að árið 2019 hafi komið til álita að
veita sveitarfélögum sérstaka heimild til gjald-
töku vegna notkunar negldra hjólbarða.
„Við opið samráð í samráðsgátt stjórnvalda
komu á hinn bóginn fram athugasemdir við að
slík heimild yrði veitt og var hún því ekki í
frumvarpi,“ segir í svari Þórmundar og enn
frekar að breytingar í þessa veru séu ekki til
sérstakrar skoðunar hjá ráðuneytinu sem
stendur.
Í ályktun Landverndar segir að rót vandans
hvað viðkemur svifryksmengun sé nagladekk
og tímatakmarkanir á notkun þeirra hafi ekki
skilað sér í minni notkun. Gildandi reglur segja
til um bann á notkun nagladekkja frá 15. apríl
til 31. október. Sektir liggja við því að aka á
negldum hjólbörðum utan tímabilsins og sekta
má fyrir hvern negldan hjólbarða.
Í svari Reykjavíkurborgar við fyrirspurn
Morgunblaðsins segir meðal annars að borgin
hafi oft skoðað málið af alvöru og beðið um leyfi
fyrir gjaldtöku oftar en einu sinni, en aldrei
fengið það í gegn.
Ný reglugerð til að takmarka umferð
Þórmundur bendir á að unnið sé að undir-
búningi reglugerðar um takmarkanir á umferð
vegna mengunar á grundvelli 85. gr. umferð-
arlaga. Drög að reglugerðinni kveða á um að
sveitarstjórn eða Vegagerðin hafi heimild til að
takmarka eða banna umferð, þegar um þjóðveg
er að ræða, um stundarsakir á vegi eða svæði
þegar mengun er yfir heilsufarsmörkum eða
hætta er talin á að svo verði.
Bönn gætu byggt á endabókstaf
Slíkar takmarkanir vegna mengunar frá öku-
tækjum geta t.d. falist í breytingum á hámarks-
hraða, takmörkun á umferð stærri ökutækja
eða takmörkun almennrar umferðar með því að
heimila tilteknum bifreiðum akstur á
ákveðnum svæðum eftir oddatölu/jafnri enda-
tölu eða sambærilegum endabókstaf skráning-
armerkja.
Drög að reglugerðinni voru kynnt í samráðs-
gátt stjórnvalda í upphafi árs og er nú unnið úr
ábendingum og athugasemdum sem bárust.
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Áttföld eftirspurn var í hlutafjárút-
boði flugfélagsins Play sem lauk á
föstudag. Stefnt er að því að kynna
niðurstöður útboðsins eigi síðar en í
lok dagsins í dag.
Andri Ingason, sérfræðingur í fyr-
irtækjaráðgjöf hjá Arctica Finance
sem sér um útboðið, segir eftir-
spurnina hafa verið umfram vænting-
ar.
„Þetta er virkilega jákvætt og sýnir
að fjárfestar, bæði almennir fjárfestar
og fagfjárfestar, vilja taka þátt í þess-
ari vegferð með okkur,“ segir hann.
Alls bárust um 4.600 áskriftir í
hlutafjárútboði Play og hljóða þær
samtals upp á 33,8 milljarða króna.
Stjórn Play fundaði í gærkvöldi til
að fara yfir áskriftirnar en þær voru
að andvirði 6,7 milljarða í gegnum
áskriftarleið A og rúmra 27 milljarða í
gegnum áskriftarleið B, en stefnt var
að því að safna fjórum milljörðum
króna.
Eftirspurnin áhugaverð
Kristján Sigurjónsson, ritstjóri
ferðavefsins Túrista, segir í samtali
við Morgunblaðið að eftirspurnin hafi
verið áhugaverð í ljósi þess að félagið
hafi rétt nýhafið rekstur. „Síðan er
spurning hvort þær væntingar bygg-
ist á því að rekstur Play gangi vel eða
þá hvort fólk reikni með að Icelandair
komist ekki á sama skrið og það var
áður á.“
Samkeppnin í fluggeiranum sé orð-
in töluverð hér á landi en þar sem
Play sé að sækja á sama markað og
Icelandair muni samkeppnin einkum
verða á milli þessara tveggja félaga.
„Svo er það þannig að Play fer inn á
áfangastaði þar sem Icelandair er fyr-
ir og samkeppni þeirra verður því
vafalítið hörð. Og ekki minnkar hún
þegar Play hefur flug til Norður-Am-
eríku á næsta ári því þá stefnir líka í
að Play muni aðeins fljúga til borga
þar, sem eru í dag hluti af leiðakerfi
Icelandair,“ segir hann.
Fleiri gætu viljað ferðast
Sumarvertíðin verður sérstök og
ekki eins ábatasöm og í venjulegu ári,
að mati Kristjáns. „Veturinn verður
spennandi því hlutfallslega eru færri
sæti seld núna en áður. Aftur á móti
gætu fleiri ákveðið að ferðast út í
heim í vetur eftir að hafa haldið sig
heima í sumar.“
Stefna að því að til-
kynna úthlutun í dag
- Áttföld eftirspurn - Í harðri samkeppni við Icelandair
Morgunblaðið/Unnur Karen
Flugtak Hlutafjárútboði Play var vel tekið og var eftirspurnin áttföld.
Bandaríski ferðamaðurinn Paul Es-
till fannst heill á húfi á laugardag
eftir að hans hafði verið leitað í
meira en sólarhring. Estill varð við-
skila við eiginkonu sína í göngu við
gosstöðvarnar síðdegis á föstudag.
Nærri 300 manns komu að leitinni
og voru allar tiltækar björgunar-
sveitir kallaðar út.
„Þú átt aldrei að yfirgefa göngu-
félaga þinn. Þú átt alltaf að vera
með vatn og farsíma. Þetta eru mis-
tök sem við gerðum og þetta er út-
koman. Hann dó næstum því,“ sagði
Becky Estill, eiginkona hans í
kvöldfréttum Rásar 1 í gær. Hann
var fluttur á Landspítalann og
gekkst þar undir læknisskoðun.
Fannst heill á húfi
sólarhring síðar
Morgunblaðið/Sigurður Unnar
Leit Björgunarsveitir leituðu mannsins.
Gestir Árbæjarsafns gátu upplifað
ferðalag til fortíðar í gær, undir yf-
irskriftinni „Sunnudagur til sælu“.
Starfsfólk safnsins klæddist fatn-
aði frá 19. öld og sinnti hefð-
bundnum störfum sem nauðsynleg
voru á hverjum bæ.
Gestir gæddu sér á nýbökuðum
lummum frá húsfreyjunni í Árbæ
og fengu kaffi og heimabakað góð-
gæti í Dillonshúsi. Á baðstofuloft-
inu sat kona við tóskap og í safn-
húsi var prentari að störfum.
Hægt var að heimsækja hin ýmsu
dýr og lét telpan á myndinni það
ekki fram hjá sér fara.
Í haganum voru kindur og lömb
en auk þess voru landnámshænur á
vappi um svæðið. Stemningin ein-
kenndist af gleði og eftirvæntingu,
ekki síst meðal yngri kynslóð-
arinnar.
Sunnu-
dagur
til sælu
Morgunblaðið/Sigurður Unnar
Húsdýrin heimsótt í ferðalagi til fortíðar á Árbæjarsafni