Morgunblaðið - 28.06.2021, Síða 4

Morgunblaðið - 28.06.2021, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2021 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. At h. að ve rð ge tu rb re ys tá n fy rir va ra . 595 1000 Verona Verð frá kr. 19.950 önnur leið m/ handfarangri Verð frá kr. 39.900 báðar leiðir m/ handfarangri TAKTU FLUGIÐ TIL ÍTALÍU Í SUMAR Vatnshæð mælist óvenjulág í Þór- isvatni um þessar mundir og stafar það líklega af því að veturinn hefur verið kaldur og litlar umhleypingar hafa verið á svæðinu. Þetta segir Óli Grétar Blöndal Sveinsson, for- stöðumaður þróunar vatnsafls hjá Landsvirkjun. Hann segir ekki tíma- bært að segja til um hvort þetta hafi áhrif á raforkuafhendingu. „Það er þessi þurrkatíð núna sem veldur því að Þórisvatnið er óvenju- lágt en það er ekki þar með sagt að jökulbráð geti ekki komið til með að laga stöðuna verulega fram á haust- ið,“ segir hann. Senn nálgist það tímabil þar sem jökulbráðnunin fer á fullt en það er vanalega í júlí og ágúst. „Þórisvatn er aftur á móti þannig að það er töluvert frá jöklum þannig að umhleypingar og úrkoma skipta miklu máli þar líka,“ segir Óli. Vatnsfallið mældist í gær 567,84 metrum yfir sjávarmáli (m.y.s.), í samanburði við síðasta vatnsár þar sem vatnsfallið mældist 576,1 m.y.s. Áætlað meðaltal vantsfalls í Þór- isvatni er 575,07 m.y.s. Lág vatnshæð vegna þurrka Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Þórisvatn Vatnshæðin mælist óvenjulág þessa dagana, sökum þurrkatíðar. - Vatnshæð mælist óvenjulág í Þórisvatni Ari Páll Karlsson ari@mbl.is Búist er við að fullbólusettum muni fjölga um allt að 37 þúsund í vikunni en allir dagarnir fara í endur- bólusetningu. Þetta segir Ragn- heiður Ósk Erlendsdóttir, fram- kvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höf- uðborgarsvæð- isins. Í dag, mánu- dag, verða 4.000 endurbólusettir með bóluefni Moderna. Á morgun verða svo 9.000 skammtar frá Pfizer gefnir í endurbólusetn- ingu. Þá verða tveir stórir Astra- Zeneca dagar í vikunni en á miðviku- dag og fimmtudag verða 11-12.000 skammtar gefnir hvorn daginn. Sendingar aðra hverja viku Allar sendingar eru samkvæmt áætlun að sögn Júlíu Óskar Atla- dóttur, framkvæmdastjóra Distica, dreifingaraðila bóluefnanna á Ís- landi. „Í síðustu viku komu 23.400 skammtar af Pfizer, sem er lang- stærsta sendingin sem hefur komið af bóluefnum frá þeim. Í þessari viku er áætlað að það komi jafn mikið magn,“ segir hún í samtali við Morg- unblaðið. Þá segir hún að út júlí komi aðra hverja viku sendingar frá bæði Pfi- zer og Moderna. Þá liggi ekki fyrir áætlun um Janssen og AstraZeneca. „Við vitum ekki nema með nokk- urra daga fyrirvara hvenær þær sendingar koma,“ segir Júlía. Um 19.200 skammtar af bóluefni AstraZeneca komu til landsins á laugardaginn en 4.800 skammtar voru þegar til af því efni. Því ætti að vera nóg af efni fyrir endurbólusetn- inguna sem er áætluð á miðviku- og fimmtudag. „Ágætis mæting miðað við allt“ Heilsugæslan mun bjóða upp á AstraZeneca þann 7. júlí fyrir þau sem komast ekki í þessari viku og má búast við að allflest sem fengu AstraZeneca verði þá fullbólusett. Þann 13. júlí fá þeir sem fengu Pfi- zer í síðustu viku seinni sprautuna og má þá áætla að um 90% fólks 16 ára og eldri verði orðin fullbólusett. Á þriðjudag í síðustu viku var seinasti Janssen-dagurinn fyrir sumarfrí en þá voru boðaðir þeir sem hafa þegar smitast af Covid-19 eða mælst með mótefni í blóði. Af þeim sem voru boðaðir mættu tæp 60% að sögn Ragnheiðar. „Það var ágætis mæting hjá þeim svona miðað við allt, síðan veit mað- ur ekki hvort þau ætli að taka bólu- setningu eða ekki, í þessum hóp sem er með mótefni,“ segir hún og tekur fram að það hafi þurft að vera liðnir þrír mánuðir frá Covid-smiti til þess að fá bólusetninguna. Fullbólusett- um fjölgar mikið í vikunni - 90% fólks 16 ára og eldri fullbólusett eftir þrjár vikur, gangi allt eftir Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sprautað Áætlað er að um 37 þús- und fái seinni skammt í vikunni. Bólusetningar » 4.000 skammtar af Mod- erna gefnir í dag, mánudag. » 9.000 hljóta endurbólusetn- ingu með efni Pfizer á morgun. » 11-12.000 skammtar af AstraZeneca á miðvikudag og fimmtudag, hvorn daginn. » Tæplega 60% mæting í bólusetningu hjá þeim sem þegar fengu Covid-19 eða hafa mælst með mótefni. Esther Hallsdóttir esther@mbl.is Orka náttúrunnar (ON) segir fram- kvæmdastjóra Ísorku hafa farið með rangt mál í Morgunblaðinu á laug- ardag, er hann kvað Ísorku ekki hafa sent bréf til kærunefndar útboðs- mála og kvartað þar yfir því að raf- hleðslustöðvar ON væru áfram opn- ar. „Eftir fjölda samtala við fram- kvæmdastjóra Ísorku í gær og í dag hefur komið í ljós að hann fór með rangt mál og hefur hann beðið fram- kvæmdastýru ON afsökunar á því. Lögmaður Ísorku sendi umrætt bréf á kærunefndina eins og ON hefur greint réttilega frá,“ segir í tilkynn- ingu sem ON sendi fjölmiðlum á laugardag. Slökkva á 156 stöðvum í dag Orka náttúrunnar mun taka straum af öllum 156 götuhleðslum sínum víðs vegar í Reykjavík í dag. Fyrirtækið tilkynnti í vikunni að það yrði gert í kjölfar þess að Ísorka hafi kvartað til kærunefndar útboðsmála og bent nefndinni á heimildir sínar til að beita dagsektum. Ísorka neit- aði því í blaðinu á laugardag eins og fyrr segir. „Ísorka hefur aldrei lagt fram kvörtun um að þær séu opnar,“ sagði þá í athugasemd frá Sigurði Ástgeirssyni, framkvæmdastjóra Ís- orku. „RVK og ON eru einfaldlega að fylgja úrskurði kærunefndarinn- ar. Ísorka hefur ekkert með það að gera að stöðvunum hafi verið lokað.“ Vilja frestun réttaráhrifa Reykjavíkurborg hefur óskað eft- ur því að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndarinnar verði frestað. Þau séu íþyngjandi fyrir borgarbúa sem margir hverjir nýti rafknúna bíla og treysti á hleðslustöðvarnar. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sagði við Morgunblaðið að bagalegt væri að nefndin hafi kveðið á um fyr- irvaralausa óvirkni samningsins í stað þess að óvirkja hann frá síðara tímamarki. Sigurður Ástgeirsson, framkvæmdastjóri Ísorku, hefur sagt málið sýna að samstarf ON og borgarinnar sé hættulegt samkeppni á frjálsum markaði og veki upp spurningar um það hvort að Reykja- víkurborg skuli stjórna fyrirtæki á samkeppnismarkaði. Ekki náðist í Sigurð við vinnslu fréttarinnar. Morgunblaðið/Sigurður Unnar Orka Kærunefnd útboðsmála ógilti samning Reykjavíkurborgar við ON um uppsetningu rafhleðslustöðva í borginni. Segja Ísorku hafa farið með rangt mál - ON slekkur á götuhleðslum sínum í Reykjavík í dag Forsaga málsins er sú að kæru- nefnd útboðsmála ógilti samning Reykjavíkurborgar við Orku nátt- úrunnar um uppsetningu raf- hleðslustöðva í borginni fyrr í júní í kjölfar kæru Ísorku. Samkvæmt úrskurðinum stóð Reykjavíkurborg ekki rétt að út- boðinu og hefði átt að bjóða verkið út á Evrópska efnahagssvæðinu. Þar með féll réttur til gjaldtöku á stöðunum niður og Reykjavík- urborg var gert að bjóða verkið út aftur. ON brást við með því að hætta gjaldtöku og taka niður merkingar á stæðunum. Áfram var hægt að nýta stöðvarnar. ON mun hins veg- ar taka straum af stöðvunum í dag. Útboðið dæmt ógilt FORSAGA MÁLSINS Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.