Morgunblaðið - 28.06.2021, Page 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2021
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Gott við exemi
• Betri og sterkari
fætur
Carlo Messina, bankastjóri ítalska
bankans Intesa Sanpaolo, telur
ítalska bankakerfið standa vel að
vígi í samanburði við önnur Evrópu-
lönd þökk sé samþjöppun og bættu
lánasafni. Í viðtali sem ítalska við-
skiptadagblaðið Il Sole 24 Ore birti á
sunnudag sagði Messina að helst
þyrfti að stíga fleiri skref í sömu átt:
„Ég vonast til að sjá frekari sam-
þjöppun sem leiði til þess að það
verði til a.m.k. þrjú ráðandi félög.“
Það einkennir ítalska bankageir-
ann að þar starfar fjöldi smárra
banka sem oft þjónusta aðeins til-
tekin héruð eða landshluta og geng-
ur erfiðlega að skila hagnaði. Á síð-
asta ári tók Intesa Sanpaolo yfir
starfsemi bankans UBI en að því er
Reuters greinir frá er UniCredit,
næststærsti banki Ítalíu, að leita að
heppilegum samrunatækifærum.
Ríkisábyrgð framlengd
vegna kórónuveiru
Í viðtalinu hvatti Messina ítölsk
stjórnvöld jafnframt til að fram-
lengja núgildandi reglur um ríkis-
ábyrgð á lánum til fyrirtækja. Legg-
ur hann til að ríkisábyrgðin verði
látin gilda í 20 ár, með það fyrir aug-
um að auðvelda ítalska hagkerfinu
að ná sér aftur á strik eftir áföll
vegna kórónuveirufaraldursins.
„Með því að framlengja [ríkis-
ábyrgðina] og láta hana vara í 20 ár
myndu fyrirtæki í rekstrarvanda fá
nægan tíma til að endurskipuleggja
sig og koma rekstri sínum í gott
horf.“ ai@mbl.is
Vill meiri samþjöppun
í ítölskum bankageira
Tiziana FABI / AFP
Skilvirkt Messina stýrir stærsta banka Ítalíu. Þar er fjöldi smábanka.
- Leggur til 20 ára
ríkisábyrgð á lánum
Binance og þykja aðgerðir stofn-
unarinnar nýjasta dæmið um vax-
andi hörku stjórnvalda um allan
heim þegar kemur að eftirliti með
rafmyntaviðskiptum. Eiga inn-
gripin að lágmarka líkurnar á að
rafmyntir séu nýttar við fjársvik
eða peningaþvætti og að vernda
betur hagsmuni neytenda.
Um helgina sendi FCA frá sér til-
kynningu þar sem neytendur voru
varaðir við því að skipta við Bin-
ance Markets Limited.
Viðvörunarbjöllur í
Japan og Þýskalandi
Binance og dótturfélög þess hafa
ekki fengið starfsleyfi í samræmi
við reglur FCA um starfsemi raf-
myntafyrirtækja. Á félagið að hafa
sótt um slíka skráningu í síðasta
mánuði en dregið umsókn sína til
baka, að því er FT greinir frá.
Í maí varaði fjármálaeftirlit Jap-
ans við því að Binance væri að selja
japönskum ríkisborgurum raf-
myntaþjónustu í leyfisleysi, og í
apríl upplýsti þýska fjármálaeftir-
litið að fyrirtækið hefði að öllum
líkindum brotið reglur um verð-
bréfaviðskipti með því að gefa út
n.k. rafmyntir tengdar hlutabréfa-
verði fyrirtækja. ai@mbl.is
Rafmyntamarkaðinum Binance
hefur verið gert að hætta allri
leyfisskyldri starfsemi í Bretlandi
samkvæmt ákvörðun Breska fjár-
málaeftirlitsins (FCA). Er Binance
einnig gert að varðveita öll gögn
um viðskipti breskra neytenda við
félagið og hætta að auglýsa þjón-
ustu sína á Bretlandsmarkaði.
Binance er í hópi stærstu raf-
myntakauphalla heims og er með
höfuðstöðvar sínar á Cayman-
eyjum en starfrækir dótturfélagið
Binance Markets Limited á Bret-
landsmarkaði auk fjölda dóttur-
félaga í öðrum löndum. Er áætlað
að í síðasta mánuði hafi velta á raf-
myntamarkaði Binance verið um
1.500 milljarðar dala.
Að sögn Financial Times eru inn-
grip FCA einhver þau ströngustu
sem nokkurt stjórnvald hefur beitt
Breska fjármálaeftirlitið
lokar á rekstur Binance
- Rafmyntakauphöllinni meinað að þjónusta Breta
AFP
Högg Binance er rafmyntarisi.
Alþjóðlegi að-
gerðahópurinn
Financial Action
Task Force
(FATF) hefur
bætt Evrópusam-
bandsríkinu
Möltu á „gráa
listann“ svokall-
aða. Einnig bæt-
ast Haítí, Filipps-
eyjar og
Suður-Súdan á listann í nýjustu út-
tekt FATF, en Afríkuríkið Gana
hverfur af listanum, þökk sé úrbótum
sem þarlend stjórnvöld hafa ráðist í.
Eins og frægt er hafnaði Ísland á
gráa listanum í árslok 2019 og tiltók
FATF 51 ágalla í umgjörð og fram-
kvæmd íslenskra stjórnvalda hvað
varðar eftirlit með peningaþvætti og
fjármögnun hryðjuverka. Var Ísland
tekið af listanum í október 2020.
Reuters greinir frá að Robert
Abela, forsætisráðherra Möltu, þyki
ósanngjarnt að landið skuli lenda á
lista FATF. Hefur hann heitið því að
grípa tafarlaust til aðgerða til að full-
nægja kröfum aðgerðahópsins. „Þótt
mér þyki ákvörðun [FATF] órétt-
mæt þá munum við halda áfram því
umbótaferli sem við höfum hafið,
enda störfum við af heilindum og trú-
um á vandaða stjórnunarhætti,“
sagði Abela á blaðamannafundi.
Styggir fjárfesta
Bernard Grech, sem leiðir malt-
versku stjórnarandstöðuna, sagði
ákvörðun FATF geta stefnt í voða
ört vaxandi fjármála- og leikjageira
sem í dag mynda nærri því fimmtung
af hagkerfi eyríkisins. Í skýrslu sem
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn gaf út í
maí síðastliðnum kom fram að þegar
lönd rata á gráa lista FATF geti þau
vænst marktæks samdráttar í inn-
streymi fjármagns enda varist fjár-
festar að stunda viðskipti í löndum
sem FATF hefur í sigtinu.
Maltversk stjórnvöld hafa lengi
þurft að sæta gagnrýni vegna um-
gjarðar skatta- og fjármála sem þar
er við lýði. Hafa gagnrýnendur m.a.
gert athugasemdir við að fjársterkir
einstaklingar geti keypt sér malt-
verskan ríkisborgararétt og að ekki
hafi verið gripið til aðgerða gegn
embættismönnum sem Panama-
skjölin svokölluðu sýndu að höfðu
komið sér upp leynilegum aflands-
félögum. ai@mbl.is
FATF setur
Möltu á gráa
listann
- Stjórnvöld lofa
frekari umbótum
Robert
Abela
28. júní 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 123.09
Sterlingspund 171.16
Kanadadalur 100.1
Dönsk króna 19.781
Norsk króna 14.514
Sænsk króna 14.55
Svissn. franki 134.26
Japanskt jen 1.1122
SDR 175.93
Evra 147.1
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 178.1221
Hrávöruverð
Gull 1783.25 ($/únsa)
Ál 2397.5 ($/tonn) LME
Hráolía 75.54 ($/fatið) Brent
Hólmfríður Björk Sigurðardóttir
lögmaður hefur bæst í eigendahóp
lögmannsstofunnar Juris.
Juris er í hópi stærri lögmanns-
stofa á Íslandi og leggur einkum
áherslu á lögfræði á sviði viðskipta
og fjármála. Hjá
stofunni starfa
25 manns, þar á
meðal lögmenn
með íslensk lög-
mannsréttindi og
enskir lögmenn
með lögmanns-
réttindi bæði á
Íslandi og Eng-
landi.
Í tilkynningu
frá stofunni kemur fram að Hólm-
fríður hafi lokið lagaprófi frá Há-
skóla Íslands árið 2010 en samhliða
náminu starfaði hún hjá Lex lög-
mannsstofu og hjá Samkeppniseft-
irlitinu. Hólmfríður gekk til liðs við
Juris 2010 og hlaut málflutnings-
réttindi fyrir héraðsdómi árið 2011.
Í tilkynningu Juris segir jafn-
framt að Hólmfríður hafi öðlast víð-
tæka reynslu af málum á helstu
réttarsviðum lögfræðinnar, og
einkum sérhæft sig í málum á sviði
samkeppnisréttar og annarrar
fyrirtækjaráðgjafar, þar með talið
félaga- og samningaréttarlegum
málefnum, gerð áreiðanleikakann-
ana og samrunatilkynninga í
tengslum við kaup og sölu fyrir-
tækja. Hólmfríður hefur einnig
sinnt fjölbreyttri ráðgjöf við fyrir-
tæki, stofnanir og sveitarfélög á
sviði stjórnsýsluréttar og útboðs-
mála. Samhliða lögmannsstörfum
hefur Hólmfríður sinnt stunda-
kennslu við lagadeild Háskólans í
Reykjavík, m.a. í fjármunarétti og
samkeppnisrétti.
Eiginmaður Hólmfríðar er Egill
Árni Guðnason, jarðeðlisfræðingur
hjá Íslenskum orkurannsóknum, og
saman eiga þau tvö börn. ai@mbl.is
Hólmfríður Björk
Sigurðardóttir
Hólmfríður Björk í
eigendahóp Juris