Morgunblaðið - 28.06.2021, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 28.06.2021, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2021 • Verð frá: 250.000 m/vsk. • Stærðir 3-600 persónueiningar • Ekkert rafmagn • Meira en 2ja þrepa hreinsun • Verð frá 510.000 m/vsk. • Stærðir 3-1500 persónueiningar • Rafræn vöktun (valkvæmt) • Getur hreinsað eColi allt að 99,9% INNIFALIÐ Í VERÐI ANAEROBIX HREINSIVIRKI með síu yfir 90% hreinsun ONE2CLEAN HREINSISTÖÐ allt að 99% hreinsun • Þægilegar í uppsetningu og lítið viðhald • Fyrir sumarhús, heilsárshús, hótel o.fl. • Engar siturlagnir – fyrirferðarlítil • Mikið pláss fyrir seyru • CE vottað • Uppfylla kröfur til hreinsunar á viðkvæmum svæðum t.d við Þingvallavatn • Afhending á verkstað innan 100km frá Reykjavík • Drengöng með gátlúgu sem tryggja að vökvi komist óhindrað út í jarðveg Guðmundur Sv. Hermannsson gummi@mbl.is Víðförul fílahjörð í Kína hefur vald- ið vísindamönnum miklum heila- brotum, en hjörðin hagar sér þvert á það sem til þessa hefur verið vitað um lifnaðarhætti þessara dýra. Talið er að fílarnir hafi lagt af stað í júlí í fyrra frá Xishuang- banna-þjóðgarðinum í suðvestur- hluta landsins og lagt að baki að minnsta kosti 500 kílómetra vega- lengd. Á göngu sinni í norðurátt hafa þeir komið við í þorpum, bæj- um og borgum, brotið niður hlið og hurðir, stolið mat, leikið sér í leðj- unni, farið í bað í skurði og fengið sér blund á miðjum þjóðvegi. Þá hefur sést til fílanna þar sem þeir spæna í sig uppskeru á ökrum og fá sér að drekka í húsagarði þegar þeim tókst að skrúfa frá vatnskrana með rönunum. Leiðangur fílanna hefur vakið mikla athygli í Kína og raunar víða um heim; þeir eru orðnir samfélags- miðlastjörnur og hægt er að fylgjast með dýrunum í beinni útsendingu allan sólarhringinn í kínverska ríkissjónvarpinu. Það er vísindamönnum einnig ráðgáta hvers vegna fílarnir lögðu af stað í þennan leiðangur. „Í sannleika sagt veit það enginn. Ganga fílanna tengist þó nær örugglega eðlislægri leit að mat, vatni og skjóli og því að víðast hvar í Asíu hafa athafnir mannana þrengt að hefðbundnum búsvæðum fíla,“ segir Joshua Plotnik, aðstoð- arprófessor við Hunter-háskóla í New York, við breska ríkisútvarpið BBC. Hann segir að ferðalagið gæti einnig tengst breytingum á fé- lagslegri samsetningu hjarðarinnar. Í fílahjörðum er elsta og vitrasta kýrin jafnan forystudýrið og henni fylgja ömmur, mæður og frænkur ásamt sonum og dætrum. Eftir að karlfílar verða kynþroska yfirgefa þeir hörðina og fara einförum eða slást í för með öðrum karldýrum í stuttan tíma. Þeir eiga aðeins sam- skipti við kvendýr til að makast en halda síðan aftur á brott. Í fílahjörðinni í Kína voru upp- haflega 16 eða 17 dýr, þar af þrjú karldýr. Tvö þeirra yfirgáfu hópinn um mánuði síðar en það þriðja fylgdi hjörðinni þar til í byrjun júní er það fór að dragast aftur úr. Chen Mingyong, prófessor við Yunnan- háskóla í Kína, sem hefur fylgst með hjörðinni, sagði við kínverska fjölmiðla að fullorðnu kýrnar virtust taka þessu illa og hvöttu hannmeð hljóðum að haska sér en hann lét það sem vind um eyru þjóta. Það kom vísindamönnum einnig í opna skjöldu þegar tvær kýr í hjörðinni eignuðust afkvæmi á leið- inni. „Fílar eru mjög vanaföst dýr og það er óvenjulegt að þeir færi sig úr stað þegar þeir eiga von á sér – venjulega leita þeir að öruggu um- hverfi,“ sagði Lisa Olivier, starfs- maður dýraverndarsamtakanna Game Rangers International í Sam- bíu, við BBC. Hún sagði að myndir, sem birst hafa af fílunum sofandi þétt uppi við hver annan, séu einnig óvenjulegar. Venjulega sofi ungviðið á jörðinni en fullorðnu dýrin halli sér upp að tré eða termítahraukum þegar þau sofa. „Þau eru svo stór, að það tek- ur þau langan tíma að standa upp ef hætta steðjar að og það reynir einn- ig mjög á hjartað og lungun að standa upp. Að þau hafi sofið liggj- andi á jörðinni bendir til þess að þau hafi öll verið örmagna eftir að hafa brugðist við ókunnum að- stæðum,“ segir Olivier. Fílum í Yunnan-héraði í Kína hef- ur fjölgað á síðustu áratugum. Á ní- unda áratug síðustu aldar voru þeir rúmlega 190 en þeir eru nú taldir vera yfir 300. Fílahjörð á ferðalagi - Leiðangur fíla um Kína hefur vakið athygli og undrun Hjörðin er á ferð 500 km norður af kjörlendi sínu Frá miðjum apríl hafa fílarnir eyðilagt 56 hektara af ræktarlandi og er tjónið á uppskerunni metið á 6,8 milljónir júan, um 130 milljarða kr. Fílarnir 15. júní Víðförlu fílarnir í Kína Heimildir: Fréttir í kínverskum fjölmiðlum Heimild: maps4news.com 500 km PEKING 100 km Yuxi Jinning Xishuangbanna- þjóðgarðurinn Xishuangbanna Dai sjálfstjórn- arhéraðið Mengyang Menglun Mengla Shangyong Mangao YUNNAN KÍNA MJANMAR LAOS VÍETNAM Eshan Sést til fílanna Pu’er Mojiang Shiping Yuanjiang Kunming desember 2020 júlí 2020 16. maí, 2021 16. apríl 2021 27. maí23. júní 28. maí 2. júní Xiyang 7. júníShijie 14. júní Mynd sem stjórn- völd í Yunnan birtu AFP Svefnstaður Mynd sem stjórnvöld í Yunnan-héraði birtu af fílunum sofandi. Metfjöldi dauðsfalla varð af völdum kórónuveirunnar í Moskvu í gær. Þá voru aðgerðir hertar í Suður-Afríku næstu tvær vikur til að hægja á smit- um af völdum Delta-afbrigðisins. Fleiri en 21 þúsund smit greindust í Indónesíu í gær og mörg lönd í Asíu hafa hert samkomutakmarkanir. Víðtækar bólusetningar hafa dregið úr fjölda smita í mörgum efnameiri ríkjum en Delta-afbrigðið er áfram áhyggjuefni víða. Það hefur nú dreift sér til 85 ríkja og þykir það hvað mest smitandi af þeim afbrigð- um sem hafa komið fram. Skæð þriðja bylgja í Rússlandi Á sama tíma og létt er á takmörk- unum víða í Evrópu og í Bandaríkj- unum tekst Rússland nú á við skæða þriðju bylgju faraldursins. Smitum þar af völdum Delta-afbrigðisins hef- ur fjölgað mikið síðan um miðjan júní. Fleiri en 144 dauðsföll urðu í Moskvu gær vegna kórónuveirunnar en veiran er einnig á miklu flugi í Sankti Pétursborg. Sex leikir Evrópukeppninnar í fót- bolta hafa farið fram í Sankti Péturs- borg og eiga átta liða úrslit einnig að fara þar fram á föstudaginn. Þrátt fyrir að aðeins helmingur af hefð- bundnum áhorfendafjölda sé leyfi- legur á leikjunum safnast þar saman fleiri en 26 þúsund manns. Yfirvöld í Moskvu biðla nú til al- mennings í Rússlandi að láta bólu- setja sig, en nokkuð er um að íbúar hafi efasemdir gagnvart bóluefninu. esther@mbl.is AFP Covid-19 Takmarkanir hafa víða verið framlengdar eða hertar. Delta-afbrigðið veldur usla víða - Metfjöldi dauðsfalla í Moskvu í gær

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.